Fara í efni

Öldungaráð

Öldungaráð Dalvíkurbyggðar
Starfsmi öldungaráðs byggir á ákvæðum 6.–8. gr. laga um málefni aldraðra nr. 125/1999. Einnig er fjallað um öldungaráð í 2. mgr. 38. gr. laga um félagsþjónustu sveitarfélaga nr. 40/1991.

Í hverju sveitarfélagi, eða sveitarfélögum sem starfa saman að öldrunarmálum og þjónustu við eldra fólk, skal starfa öldungaráð. Hlutverk ráðsins er að fjalla um þjónustu við aldraða og stuðla að framkvæmd og þróun öldrunarmála.

Kostnaður við starf öldungaráðs greiðist af sveitarfélögunum á starfssvæði þess í hlutfalli við íbúafjölda hvers sveitarfélags.

Í öldungaráði skulu að lágmarki sitja þrír fulltrúar kjörnir af sveitarstjórn að loknum sveitarstjórnarkosningum, þrír fulltrúar tilnefndir af félagi eldri borgara og einn fulltrúi frá heilsugæslunni.

Ef tvö eða fleiri sveitarfélög eiga samstarf um öldrunarþjónustu skulu þau, ásamt félögum eldri borgara á þjónustusvæðinu, koma sér saman um skipan öldungaráðs.

Sveitarstjórnir velja öldungaráðinu formann úr hópi öldungaráðsmanna.
Öldungaráð skal hafa eftirtalin verkefni á starfssvæði sínu:
1. Að fylgjast með heilsufari og félagslegri velferð aldraðra og samhæfa þjónustu.
2. Að gera tillögur til sveitarstjórna um öldrunarþjónustu.
3. Að leitast við að tryggja að aldraðir fái þá þjónustu sem þeir þarfnast og kynna öldruðum þá kosti sem í boði eru.
4. Öldungaráðið skal í störfum sínum hafa að leiðarljósi markmið laganna, sbr. 1. gr.

Skipan Öldungaráðs Dalvíkurbyggðar:
Byggðaráð; 3 kjörnir fulltrúar og 3 til vara. Formaður byggðaráðs er jafnframt formaður Öldungaráðs.

Helgi Einarsson, formaður
Freyr Antonsson, varaformaður.
Lilja Guðnadóttir.

Varamenn:
Katrín Sif Ingvarsdóttir.
Sigríður Jódís Gunnarsdóttir.
Monika Margrét Stefánsdóttir.

Fulltrúar frá Félagi eldri borgara:
Fulltrúi frá Heilsugæslunni – HSN: Starfsmaður Öldungaráðs:
Eyrún Rafnsdóttir, sviðsstjóri félagsmálasviðs