Sundskáli Svarfdæla
Sundskáli Svarfdæla var reistur 1929 og er því næstelsta yfirbyggða sundlaug landsins. Laugin er 12,5 m að lengd og á botni sundlaugarinnar er að finna hafmeyju í djúpu lauginni.
Skálinn hefur verið leigður út til einstaklinga og hópa árið um kring en nú hefur því verið hætt þar sem reglur um öryggi á sundstöðum segja að það sé ekki heimilt án sérstakrar gæslu.
Allar nánari upplýsingar gefa rekstraraðilar, sem eru Kristjana Arngrímsdóttir og Kristján E. Hjartarson, í s. 846-3390 / 862-6155 eða á netfangið trollahondum@gmail.com