Við fáum mjög misvísandi skilaboð í samfélaginu og oft er erfitt að átta sig á því hvað er rétt eða rangt. Við erum mjög ólík og það er ekki það sama sem hentar öllum hvort sem við erum að tala um mataræði, hreyfingu, svefn eða andlega líðan. Það er oft freistandi að velja einföldustu leiðina en reynslan sýnir að skyndilausnir virka ekki. Markmiðið er að finna leið til að læra á okkur sjálf, finna okkar leið til betri heilsu og upplifa árangur sem endist til langframa.
Borðum okkur til betri heilsu
Laugardaginn 6. febrúar héldu Sólveig Sigurðardóttir og Erla Gerður Sveinsdóttir námskeið sem hét „borðum okkur til betri heilsu“. Námskeiðið var vel sótt og lofaði Sólveig því að senda uppskriftir til gesta námskeiðsins. Hún gekk hins vegar lengra og lofaði okkur að birta þetta hér svo sem flestir geti notið. Ef ykkur líst vel á þetta þá hefur Sólveig gefið út uppskriftahefti með um 60 uppskriftum. Hægt er að fylgjast með Sólveigu og hafa samband við hana á Facebook „Lífsstíll Sólveigar“ https://www.facebook.com/Lífsstíll-Sólveigar-178553395625596/timeline
Hér má finna 6 uppskriftir frá Sólveigu:
Dásamlegur Chia grautur fyrir tvo
Gott brauð sem hentar öllum í fjölskyldunni
Granóla Bar
Himnesk súpa
Hummus
Kínóa
Heilbrigður lífsstíll Erla Gerður Sveinsdóttir læknir
Öll viljum við búa við góða heilsu, fyrirbyggja sjúkdóma og láta þá sjúkdóma sem upp koma takmarka okkur sem minnst. Við viljum hafa orku og styrk til að gera það sem veitir okkur gleði, upplifa sálarró og lifa sátt við okkur sjálf og umhverfið. Umfram allt viljum við njóta lífsins.
Það var mér mikið gleðiefni hversu margir gáfu sér tíma til að koma og huga að heilsunni í Árskógi þann 8. janúar síðastliðinn. Í kjölfarið hafa fjölmargir skráð sig í fjarnám hjá okkur í Heilsuborg og ég hlakka til að vinna með ykkur áfram að því að bæta lífsstíl og heilsu.
Í starfi mínu sem læknir hef ég unnið með fjölda einstaklinga sem hafa gert breytingar á sínum högum og uppskorið betri heilsu og lífsgæði. Í kjölfarið hef ég skilgreint leið sem skilar árangri, þessa leið kalla ég Heilsuborgarleiðina. Hún miðar að því að vinna með líkamanum í stað þess að vera í togstreitu á móti honum – finna leið sem gefur langvarandi árangur. Þar þurfum við að taka tillit til ótal margra atriða svo sem líkamssamsetningar, stjórnunar blóðsykurs, meltingar- og þarmaflóru, streitu, áreitis, svefns, líkamsklukkunnar og virðingar við okkur sjálf. Regla í daglegu lífi er sem rauður þráður í gegnum þessa þætti og auðveldar okkur að finna jafnvægi. Til að gera langa sögu stutta þá komumst við ansi langt með því að hafa eftirfarandi atriði í huga.
Borðum morgunmat innan við klukkustund eftir að við vöknum. Borðum veglegan hádegismat og góðan kvöldmat. Borðum millibita þannig að við verðum alltaf hæfilega södd og hæfilega svöng.
Því minna sem búið er að vinna hráefnið í matnum, því meiri næringu skilar hann til okkar. Þannig er líka betra að borða matinn frekar en að drekka hann. Engin ein tegund matar hefur öll þau efni sem við þurfum og því þurfum við að gæta að fjölbreytni. Höfum grænmeti ávallt sem hluta af okkar daglegu fæðu.
Við þurfum að taka tillit til okkar daglegu starfa, svo sem hreyfingar, vaktavinnu og fleiri atriða, þegar við ákveðum hvernig við dreifum matnum okkar yfir daginn og gæta að magni þeirrar orku sem við innbyrðum.
Okkur hættir til að háma í okkur matinn eða hafa hugann við eitthvað annað þegar við erum að borða svo sem að horfa á sjónvarpið. Það eykur líkur á því að við missum yfirsýn yfir magnið og kílóin hlaðist upp. Þegar við borðum það sem ekki er á hollustulistanum er líka mikilvægt að leyfa sér að njóta í hæfilegu magni en hleypa ekki samviskubiti og skömm, inn í hugann.
Hreyfing eflir heilsu hjá öllum en það er mismunandi hvaða hreyfing hentar okkur. Það gildir hér sem annarsstaðar að það er ekki endilega víst að meira sé betra. Finnum hreyfingu sem okkur finnst skemmtileg og okkur líður vel með að stunda.
Svefn hefur mikil áhrif á heilsuna okkar. Það er svo ótal margt sem gerist í líkamanum þegar við sofum. Tileinkum okkur góðar svefnvenjur og virðum svefntímann.
Til að njóta lífsins sem best þarf jafnvægi í líkama, huga og daglegu lífi. Það getur verið flókið að finna þetta jafnvægi og oft ætlum við okkur of mikið í einu. Mikilvægt er að sætta sig við sjálfan sig eins og maður er og setja sér raunhæf markmið um það sem maður vill bæta og efla í eigin lífi.
Verum okkar eigin besti vinur, sýnum okkur virðingu og gefum okkur tíma til að sinna heilsunni.
Skoðum stöðu okkar og möguleika til breytinga. Finnum leið sem okkur líður vel með og getur orðið hluti af lífinu til framtíðar. Setjum okkur áætlun og tökum síðan eitt skref í einu í átt að þeim.
Jákvæð nálgun skilar betri árangri en boð og bönn. Með jákvæðu hugarfari komumst við lengra, leiðin verður ánægjulegri og hindranirnar færri.