Dýrahald í Dalvíkurbyggð.
Gæludýrahald er skráningarskylt innan þéttbýlismarka í Dalvíkurbyggð, skv. samþykkt um hunda- og kattahald og annað gæludýrahald í Dalvíkurbyggð.

Umsókn um leyfi til hunda- og/eða kattahalds skal senda framkvæmdasviði Dalvíkurbyggðar innan tveggja vikna frá því að dýr er tekið inn á heimili. Innheimt er skráningar- og árgjald í samræmi við gjaldskrá sveitarfélagsins og er gjöldunum ætlað að standa undir kostnaði sveitarfélagsins við hunda- og kattahald og annað gæludýrahald. Innifalið í árgjaldinu er m.a. ormahreinsun og hefur Dalvíkurbyggð frumkvæði að því að bjóða upp á slíka þjónustu ár hvert, á haustin. Skylt er skv. samþykktinni að mæta með dýrin í ormahreinsun eða framvísa vottorði frá dýralækni um hreinsun.
- Skráðu þig inn á Þjónustugátt Dalvíkurbyggðar.
- Farðu í Umsóknir
- Veldu Umsóknir og eyðublöð á framkvæmdasviði og síðan Umsókn um gæludýrahald. Einnig er hægt að finna umsóknina með því að skrifa „dýr“ í leitargluggann.
- Fylltu út umsóknina og sendu hana inn.
Er umsókn hefur verið samþykkt er plata með nafni og númeri dýrs, ásamt símanúmeri eiganda, send umsækjanda.