Veitu- og hafnaráð Dalvíkurbyggðar
98. fundur
16. september 2020
kl.
08:00
-
10:35
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Sigurður Valdimar Bragason
formaður
Monika Margrét Stefánsdóttir
varaformaður
Kristján Hjartarson
aðalmaður
Gunnþór Eyfjörð Sveinbjörnsson
aðalmaður
Óskar Þór Óskarsson
varamaður
Starfsmenn
Þorsteinn K. Björnsson
sviðsstjóri
Rúnar Þór Ingvarsson
Starfsmaður
Katrín Sigurjónsdóttir
sveitarstjóri
Fundargerð ritaði:
Þorsteinn K. Björnsson
sviðsstjóri veitu- og hafnasviðs
Dagskrá
3.
Hafnasambandsþing 2020
Með rafpósti, sem dagsettur er 24.ágúst 2020, kom eftirfarandi fram:Stjórn Hafnasambands Íslands fundaði í dag og tók ákvörðun um að fresta hafnasambandsþingi vegna Covid-19 en þingið átti að fara fram 24.-25. september nk.Ekki hefur verið tekin ákvörðun um nýja dagsetningu. Nánari upplýsingar með nýrri dagsetningu verða sendar út í lok september.
Lagt fram til kynningar.
5.
Fyrirhugað seiðaeldi við Árskógssand.
Erindi frá 954. Byggðaráðs Dalvíkurbyggðar, þar sem eftirfarandi var fært til bókar: "Tekið fyrir erindi frá Laxós ehf. dagsett 26. ágúst 2020, þar sem farið er yfir stöðu verkefnis vegna fyrirhugaðs seiðaeldis á Árskógssandi. Óskað er eftir nánari upplýsingum um tvennt:1. Hvort leyfi muni fást til að lengja fyrirhugaða landfyllingu á Árskógssandi til austurs.2. Hvort sveitarfélagið muni geta afhent það magn af vatni sem félagið þarf í framtíðinni.Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að vísa ofangreindu erindi til veitu- og hafnaráðs og umhverfisráðs, eftir því sem við á."Í framangreindu bréfi er lögð fram sú spurning, til veitu- og hafnaráðs, hvort Laxós ehf. geti fengið allt að 100 m3/klst af heitu vatni vegna seiðaeldisstöðva á landfyllingu við Árskógssandshöfn í tveimur áföngum. Ljóst er að með núverandi afkastagetu virkjunarsvæðisins að Brimnesborgum er það ekki hægt, en það hefur verið til umræða að bora þriðju vinnsluholuna. Verði farið í þá framkvæmd og borholan stæði undir þeim væntingum sem svæðið býður uppá þá ætti slíkt að geta gengið eftir en jafnframt þyrfti einnig að stækka stofnlögnina að notanda.
Veitu- og hafnaráð samþykkir samhljóða með fimm atkvæðum að fela sviðsstjóra að gera kostnaðaráætlun vegna borunar á nýrri vinnsluholu að Brimnesborgum.
6.
Fjárhagsáætlun 2021
Farið var yfir samantekt á fyrirhuguðum framkvæmdum næsta árs og þær bornar saman við þriggja ára áætlun.
7.
Gjaldskrár á Veitu- og hafnasviði.
Við gerð fjárhagsáætlana hvert ár er tekin umræða um nauðsyn þess að breyta gjaldskrám á veitu- og hafnasviði.Gjaldskrá Vatnsveitu Dalvíkurbyggðar og Hitaveitu Dalvíkur hafa ekki breyst síðan 2018 en Hafnasjóðs og Fráveitu Dalvíkurbyggðar tóku breytingum um síðustu áramót.Farið hefur verið í ýmsar kostnaðarsamar framkvæmdir á síðustu árum, þar má nefna: Austurgarður hjá Hafnasjóð, hreinsistöðvar hjá Fráveitu, geymsluskáli og undirbúningur Brimnesvirkjunar hjá Hitaveitu og viðhald á brunndælum og skoðun á nýjum brunnsvæðum hjá Vatnsveitu.Rétt er einnig að geta þess að samningsbundnar launahækkanir hafa átt sér stað.Að framansögðu leggur sviðsstjóri til að allar gjaldskrá á veitu- og hafnasviði hækki um 2,4%, sem er verðbólguspá fyrir 2021.
Veitu- og hafnaráð samþykkir samhljóða með fimm atkvæðum tillögu sviðsstjóra og felur honum að leggja breyttar gjaldskrár fyrir næsta fund ráðsins.
8.
Frávikagreining 2020
Á fundinum var kynnt frávikagreining fyrir málaflokka veitu- og hafnasviðs vegna janúar til júní.Sviðsstjóri fór yfir hvern málaflokk fyrir sig og svaraði fyrirspurnum ráðsmanna.
Lagt fram til kynningar.