Fara í efni

Veitu- og hafnaráð Dalvíkurbyggðar

95. fundur
6. maí 2020 kl. 08:00 - 10:15
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Sigurður Valdimar Bragason formaður
Monika Margrét Stefánsdóttir varaformaður
Kristján Hjartarson aðalmaður
Gunnþór Eyfjörð Sveinbjörnsson aðalmaður
Óskar Þór Óskarsson varamaður
Starfsmenn
Þorsteinn K. Björnsson sviðsstjóri
Rúnar Þór Ingvarsson Starfsmaður
Katrín Sigurjónsdóttir sveitarstjóri
Fundargerð ritaði:
Þorsteinn K. Björnsson sviðsstjóri veitu- og hafnasviðs
Dagskrá
1.
Varp dýpkunarefnis í hafið - Dalvíkurhöfn
Málsnúmer 202003030
Með bréfi sem dagsett er 5. mars 2020 staðfestir Umhverfisstofnun leyfi fyrir Hafnasjóð Dalvíkurbyggðar til að varpa dýpkunarefni í hafið.
Lagt fram til kynningar.
2.
Orkuskipti í höfnum - beiðni um upplýsingar
Málsnúmer 202004043
Með rafpósti 4. apríl 2020 kemur fram að: "Sem liður í aðgerðaáætlun stjórnvalda í loftslagsmálum er stefnt að orkuskiptum í höfnum og haftengdri starfsemi, þ.e. að tryggja innviðuppbyggingu sem stuðli að notkun endurnýjanlegra orkugjafa í stað jarðefnaeldsneytis.Í aðgerðapakka ríkisstjórnarinnar sem kynntur var fyrir skemmstu er gert ráð fyrir 300 m.kr. til ýmissa verkefna á sviði orkuskipta, þ.m.t. til haftengdrar starfsemi. Verkefni sem styrkt verða af umræddum fjármunum þurfa að hefjast eigi síðar en 1. sept. 2020 og skal vera lokið fyrir 1. apríl 2021." Með rafpósti sem barst 4. maí 2020 fylgdi sem viðhengi excelskjal til útfyllingar.
Veitu- og hafnaráð felur sviðsstjóra að ganga frá og skila inn umsókn til Umhverfis- og auðlindaráðuneytis vegna framangreinds erindis.
3.
Frávikagreining 2020
Málsnúmer 202005013
Á fundinum var kynnt frávikagreining fyrir veitu- og hafnasvið vegna janúar til mars.
Sviðsstjóri fór yfir hvern málaflokk fyrir sig og svaraði fyrirspurnum ráðsmanna.
4.
Framkvæmdir árið 2020
Málsnúmer 202002001
Sviðsstjóri fór yfir stöðu framkvæmda sem fyrirhugaðar eru á veitu- og hafnasviði á árinu 2020.
Farið var yfir stöðu framkvæmda og gerð grein fyrir áföllnum kostnaði. Sviðsstjóra falið að leita skýringa á framúrkeyrslu vegna endurbóta á smábátabryggju í Dalvíkurhöfn sem lagðar verði fram á næsta fundi ráðsins.