Veitu- og hafnaráð Dalvíkurbyggðar
73. fundur
11. apríl 2018
kl.
08:00
-
09:15
í Múla á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Sigurður Valdimar Bragason
formaður
Ásdís Svanborg Jónasdóttir
varaformaður
Kristján Hjartarson
Aðalmaður
Heiða Hilmarsdóttir
varamaður
Silja Pálsdóttir
Varamaður
Starfsmenn
Bjarni Theódór Bjarnason
Sveitarstjóri
Þorsteinn K. Björnsson
Sviðstjóri
Fundargerð ritaði:
Þorsteinn K. Björnsson
sviðsstjóri veitu- og hafnasviðs
Dagskrá
1.
Fundargerðir Hafnasambands Íslands - 2018
Fyrir fundinum lá fundargerð 401. fundar stjórnar Hafnasambands Íslands. Fundurinn var haldinn mánudaginn 26. febrúar kl. 11:30 2018, í fundarsalnum Hlaðbúð, Borgartúni 30 í Reykjavík.Sviðsstjóri vill vekja athyli á 6. lið fundargerðarinnar þar sem fjallað er um minnisblað Jóns Þorvaldssonar aðstoðarhafnarstjóra Faxaflóahafna, dags. 29. nóvember 2017, um varp dýpkunarefna í sjó og umfjöllun Umhverfisstofnunar um málsmeðferð skv. reglum útgefnum í desember 2016.Hægt er að lesa minnisblaðið, sem er fylgiskjal undir málinu.
Lögð fram til kynningar.
2.
Austurgarður, niðurrekstur, verkfundagerðir
Vinna við niðurrekstur á stálþili gengur eins og búast mátti við. Fyrir fundinum liggur fundargerð 3. verkfundar sem haldinn var 1.3.2018 og var undirrituð og staðfest á 3. verkfundi sem haldinn var 15.03.2018.
Lögð fram til kynningar.
3.
Áætlun hafnaryfirvalda um móttöku úrgangs og farmleifa frá skipum
Með bréfi sem dagsett er 20. mars 2018, kynnir Umhverfisstofnun áform sín um áminningu og gerir kröfu um úrbætur um móttöku og meðhöndlun farmleifa frá skipum.Endurskoðuð áætlun barst frá Dalvíkurbyggð 5. janúar 2017. Umhverfisstofnun gerði athugasemdir við áætlunina þess efnis að í hana vantaði tölur um magn og tegund úrgangs.Leiðréttingar hafa ekki borist og hefur Umhverfisstofnun því ekki getað staðfest endurskoðaða áætlun hafna Dalvíkurbyggðar frá 2016, eins og henni ber samkvæmt 3.mgr. 6.gr. reglugerðar 122/2014.Umhverfisstofnun veitir Dalvíkurbyggð frest til 9. apríl 2018 til að bæta úr vanefndum og koma sjónarmiðum sínum á framfæri vegna fyrirhugaðrar áminningar sbr. 13.gr. stjórnsýslulaga nr. 37/1993.Sviðsstjóri hefur rætt við lögfræðing Umhverfisstofnunar vegna bréfs stofunarinnar og er nauðsyn á að skila inn umbeðnum upplýsingum fyrir helgi.
Sviðsstjóra falið að svara erindinu og koma umbeðnum upplýsingum til stofnunarinnar.
4.
Erindi vegna flotbryggju á Hauganesi
Fyrir fundinum liggur tilboð frá Króla ehf í flotbryggju með uppsetningu og öllum frágangi. Tilboðsverð er kr. 10.550.000 m/VSK og fyrirhuguð afgreiðsla er um miðjan júní n.k.Verkkaupi þarf að sjá um að ná í flotbryggjuna til Akureyrar.
Veitu- og hafnaráð samþykkir framlagt tilboð frá Króla ehf í flotbryggju fyrir Hauganes og óskar jafnframt eftir viðauka vegna þessara framkvæmdar að fjárhæð kr. 4.000.000,-.
5.
Ósk um viðlegupláss
Með rafpósti sem dagsettur er 3. apríl 2018óskar Össur Willard eftir viðleguplássi í Dalvíkurhöfn frábyrjun maí fyrir 10 metra ribbát. Óskað er eftir plássi við flotbryggju. Báturinn verður notaður til farþegaflutninga og aðra atvinnustarfssemi.
Veitu- og hafnaráð samþykkir umsóknina og felur sviðsstjóra og hafnavörðum að finna hentugt legupláss fyrir umsækjanda.
6.
Starfsmannamál.
Gunnþór E. Sveinbjörnsson, yfirhafnavörður mun láta af störfum þann 30. apríl 2018. Veitu- og hafnaráð þakkar Gunnþóri vel unnin störf fyrir Hafnasjóð Dalvíkurbyggðar og óskar honum alls hins best í framtíðinni.Á fundinn var einnig mættur Rúnar Ingvarsson á sinn fyrsta fund ráðsins og bauð formaður hann velkominn til starfa.