Veitu- og hafnaráð Dalvíkurbyggðar
70. fundur
6. desember 2017
kl.
08:00
-
09:45
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Sigurður Valdimar Bragason
formaður
Ásdís Svanborg Jónasdóttir
varaformaður
Kristján Hjartarson
Aðalmaður
Hólmfríður Guðrún Skúladóttir
aðalmaður
Silja Pálsdóttir
Varamaður
Starfsmenn
Þorsteinn K. Björnsson
Sviðstjóri
Gunnþór Eyfjörð Sveinbjörnsson
Starfsmaður
Fundargerð ritaði:
Þorsteinn K. Björnsson
sviðsstjóri veitu- og hafnasviðs
Dagskrá
2.
Sérstakt strandveiðigjald til hafna
Með bréfi, sem dagsett er 27.10.2017, frá Fiskistofu kemur fram að hlutur Hafnasjóðs Dalvíkurbyggðar í sérstöku strandveiðigjaldi hafna á árinu 2017 er kr. 540.189.-.
Lagt fram til kynningar.
3.
Gjaldskrá Hafnasjóðs Dalvíkurbyggðar 2018
Við afgreiðslu á gjaldskrá Hafnasjóðs Dalvíkurbyggðar fyrir árið 2017 var samþykkt eftirfarandi ákvæði: „Um breytingar á gjaldskrá Hafnasjóðs Dalvíkurbyggðar: Gjaldskrá Hafnasjóðs Dalvíkurbyggðar er miðuð við vísitölu byggingarkostnaðar í september 2016 sem er 131,6 stig og breytist til samræmis við breytingar á þeirri vísitölu tvisvar á ári, 1. janúar og 1. júlí ár hvert í fyrsta sinn 1. júlí 2017. Allir gjaldskrárliðir sem taka til útselts tímagjalds skulu breytast miðað við launavístölu og er viðmiðunarvísitalan 1. ágúst 2016 sem er 583,4 stig. Aflagjald í gjaldskrá breytist ekki nema með sérstakri ákvörðun sveitarstjórnar.“Nú um áramótin virkjast þetta ákvæði í gjaldskránni í fyrsta sinn og er breyting á þeim liðum sem byggingarvísitala nær til 3,42% og launavísitala 8,11%.
Veitu- og hafnaráð samþykkir samhljóða framlagða uppfærslu á gjaldskrá Hafnasjóðs Dalvíkurbyggðar 2017 til samræmis við breytingu á vísitölum sem gildir frá 1. janúar 2018.
4.
Gjaldskrá og reglur um útleigu verbúða 2018
Við afgreiðslu á gjaldskrá vegna leigu á verðbúðum fyrir árið 2017 var samþykkt eftirfarandi ákvæði: „Um breytingar á gjaldskrá vegna leigu á verbúðum: Gjaldskrá Hafnasjóðs Dalvíkurbyggðar er miðuð við vísitölu byggingarkostnaðar í september 2016 sem er 131,6 stig og breytist til samræmis við breytingar á þeirri vísitölu tvisvar á ári, 1. janúar og 1. júlí ár hvert í fyrsta sinn 1. júlí 2017.“Nú um áramótin virkjast þetta ákvæði í fyrsta sinn og er breytingin á byggingarvísitölunni 3,42%.
Veitu- og hafnaráð samþykkir samhljóða framlagða uppfærslu á gjaldskrá vegna leigu á verðbúðum sem gildir frá 1. janúar 2017 til samræmis við breytingu á vísitölum.
5.
Tilkynning um tjón vegna vatnsleka.
Eigendur að Skíðabraut 18, Dalvík, Aurora Leisure ehf hafa höfðað mál á hendur Dalvíkurbyggð til viðurkenningar á bótaskyldu á tjóni sem varð er heimlögn kaldavatnsins fór að leka.
Lagt fram til kynningar.
6.
Gjaldskrá Vatnsveitu Dalvíkurbyggðar 2018.
Gjaldskrá fyrir Vatnsveitu Dalvíkurbyggðar fyrir árið 2017 var samþykkt eftirfarandi ákvæðum: „Vatnsgjald er miðað við vísitölu byggingarkostnaðar september 2016, 131,6 stig og breytist til samræmis við breytingar á þeirri vísitölu einu sinni á ári í fyrsta sinn 1. janúar 2018.“ Og einnig „Aukavatnsgjald er miðað við vísitölu byggingarkostnaðar 1. september 2016 , 131,6 stig og breytist til samræmis við breytingar á þeirri vísitölu tvisvar á ári 1. janúar og 1. júlí ár hvert.“ Og einnig „Mælaleiga er miðað við vísitölu byggingarkostnaðar 1. september 2016 , 131,6 stig og breytist til samræmis við breytingar á þeirri vísitölu tvisvar á ári 1. janúar og 1. júlí ár hvert.“og að lokum „Heimæðargjald er miðað við vísitölu byggingarkostnaðar 1. september 2016 , 131,6 stig og breytist til samræmis við breytingar á þeirri vísitölu.“Nú um áramótin virkjast þetta ákvæði í fyrsta sinn og er breytingin á byggingarvísitölunni 3,42%.
Veitu- og hafnaráð samþykkir samhljóða framlagða uppfærslu á gjaldskrá Vatnsveitu Dalvíkurbyggðar 2017 sem gildir frá 1. janúar 2018.
7.
Gjaldskrá Fráveitu Dalvíkurbyggðar 2018
Gjaldskrá fyrir Fráveitu Dalvíkurbyggðar fyrir árið 2017 var samþykkt eftirfarandi ákvæðum: „Fráveitugjald er miðað við vísitölu byggingarkostnaðar 1. september 2016, 131,6 stig og breytist til samræmis við breytingar á þeirri vísitölu einu sinni á ári í fyrsta sinn 1. janúar 2018.“ Og einnig „Rotþróargjald er miðað við vísitölu byggingarkostnaðar 1. september 2016, 131,6 stig og breytist til samræmis við breytingar á þeirri vísitölu einu sinni á ári í fyrsta sinn 1. janúar 2018.“Nú um áramótin virkjast þetta ákvæði í fyrsta sinn og er breytingin á byggingarvísitölunni 3,42%.
Veitu- og hafnaráð samþykkir samhljóða framlagða uppfærslu á gjaldskrá Fráveitu Dalvíkurbyggðar sem gildir frá 1. janúar 2018.
8.
Viðaukar 2017 á veitu- og hafnasviði
Sviðsstjóri veitu- og hafnasviðs lagði fram samantekt á þeim viðaukum sem inn voru sendir til byggðarráðs vegna fyrirséðra breytinga sem taka til tekna annarsvegar hjá Hafnasjóði Dalvíkurbyggðar og hinsvegar vegna Hitaveitu Dalvíkur. Um er að ræða verðþróun á fiskverði og minni landaður afli hjá Hafnasjóði og hvað Hitaveitu varðar er um minni sölu á heitu vatni til iðnaðar og gott tíðarfar. Einnig hafa framkvæmdir Hafnasjóðs við Austurgarð tafist og er talið eðlilegt að lagfæra þörf til lántöku vegna þessa nær því sem verkefni kallar á.
Veitu- og hafnaráð samþykkir samhljóða framlagt erindi um viðauka 2017.
9.
Jöfnun húshitunarkostnaðar 2017.
Fyrir fundinum liggur útreikningur á jöfnun húshitunarkostnaðar fyrir árið 2016. Í honum er tekið tillit til breytinga á gjaldskrám veitufyrirtækja og er gjaldið nú 232,19 kr/m3 húss. Heildarkostnaður Hitaveitu Dalvíkur er því um kr. 2.846.323,-.
Veitu- og hafnaráð samþykkir samhljóða framlagðan útreikning.
10.
Fráveita, tilboð í hreinsibúnað.
Sviðsstjóri veitu- og hafnasviðs lagði fram tilboð frá tveimur aðilum í búnað til hreinsunar á fráveitu þannig að útræsi uppfylli kröfur um 1. stigs hreinsun. Annars vegar er um snígilshreinsun en hinsvegar um „tröppurist“ að ræða. Munur á þessum tveimur útfærslum er sá að tröppurist hreinsar betur heldur en snígillinn en rýmið sem búnaðurinn kallar á er svipaður.Fyrir ráðinu liggja tvö tilboð í tröppurist frá Andersons Water á kr. 5.944.000,- og frá Mellegard & Naij á kr. 4.168.000,-Síngilbúnaðurinn er frá Varma og vélaverk á kr. 5.115.000,-.Svisstjóri leggur til að gengið verði til samninga við Mellegard & Naij.
Veitu- og hafnaráð samþykkir samhljóða tillögu sviðsstjóra.
11.
Starfsmannamál
Starfsmannamál voru til umræðu á fundinum.