Veitu- og hafnaráð Dalvíkurbyggðar
69. fundur
9. nóvember 2017
kl.
16:00
-
17:15
í Múla á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Sigurður Valdimar Bragason
formaður
Ásdís Svanborg Jónasdóttir
varaformaður
Kristján Hjartarson
Aðalmaður
Hólmfríður Guðrún Skúladóttir
aðalmaður
Daði Valdimarsson
varamaður
Starfsmenn
Bjarni Theódór Bjarnason
Sveitarstjóri
Þorsteinn K. Björnsson
Sviðstjóri
Fundargerð ritaði:
Þorsteinn K. Björnsson
sviðsstjóri veitu- og hafnasviðs
Dagskrá
1.
Fundargerðir 2017
Fyrir fundinum lá fundargerð 398. fundar stjórnar Hafnasambands Íslands sem haldinn var 25. október sl. Í viðhengi með rafpósingum var hluti úr skýrslu Samtaka Iðnaðarins þar sem fjallað er um ástand hafna. Fram kom að skýrsluna í heild má finna á vefsíðu Samtaka iðnaðarins.
Lagt fram til kynningar.
2.
Dalvíkurhöfn:Fyllingu við Austurgarð verðkönnun.
Vegna erfiðleika með dýptkun, en það efni sem upp kom átti að nota til landfyllingar, var ákveðið að fara í verðkönnun á milli verktaka til þess að ljúka þeim verkþætti sem lítur að landfyllingu verkefnisins. Þessi leið var farin með samráði við siglingarsviði Vegagerðar ríkins. Þrjú tilboð bárust, þau voru:Árni Helgason ehf 25.400.000 100,0%Steypustöðin Dalvík ehf 27.600.000 108,7%Dalverk eignarhaldsfélag ehf31.260.000 123,1%Dalverk eignarhaldsfélag ehf33.760.000 132,9%
Veitu- og hafnaráð samþykkir samhljóða að gengið sé að tilboði lægstbjóðanda Árna Helgasonar ehf.
3.
Veitu- og hafnaráð, skoðunarferð 2017.
Síðasti liðurinn var skoðunarferð þar sem framkvæmdir ársins voru skoðaðar.