Veitu- og hafnaráð Dalvíkurbyggðar
66. fundur
19. september 2017
kl.
08:00
-
09:30
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Sigurður Valdimar Bragason
formaður
Kristján Hjartarson
Aðalmaður
Hólmfríður Guðrún Skúladóttir
aðalmaður
Daði Valdimarsson
varamaður
Silja Pálsdóttir
Varamaður
Starfsmenn
Bjarni Theódór Bjarnason
Sveitarstjóri
Þorsteinn K. Björnsson
Sviðstjóri
Fundargerð ritaði:
Þorsteinn K. Björnsson
sviðsstjóri veitu- og hafnasviðs
Ásdís Jónasdóttir og Gunnar Aðalbjörnsson boðuðu forföll og voru varamenn boðaðir í þeirra stað: Silja Pálsdóttir og Daði Valdimarsson.
Silja Pálsdóttir mætti ekki til fundar og boðaði ekki forföll.
Gunnþór Eyfjörð Sveinbjörnsson boðaði forföll.
Silja Pálsdóttir mætti ekki til fundar og boðaði ekki forföll.
Gunnþór Eyfjörð Sveinbjörnsson boðaði forföll.
Dagskrá
1.
Starfs- og fjárhagsáætlun veitu- og hafnasviðs 2018
Á fundinum var farið yfir starfs- og fjáhagsáætlun fyrir árið 2018 ásamt fylgigögnum.
Veitu- og hafnaráð samþykkir framlagða starfs- og fjárhagsáætlun fyrir árið 2018.
2.
Hafnafundur 2017
Með rafpósti sem dagsettur er 15.09.2017 boðar stjórn Hafnasambands Íslands til 8. hafnafundar, sem haldinn verður á Húsavík, fimmtudaginn 21. september nk. Dagskrá fundarins hefst um kl. 10:00 en gert er ráð fyrir að formlegum fundahöldum ljúki um kl. 16:00 sama dag.
Veitu- og hafnaráð samþykkir að sviðstjóri og yfirhafnavörður sæki fundinn.