Fara í efni

Veitu- og hafnaráð Dalvíkurbyggðar

56. fundur
7. desember 2016 kl. 07:30 - 09:00
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Pétur Sigurðsson Formaður
Ásdís Svanborg Jónasdóttir Aðalmaður
Kristján Hjartarson Aðalmaður
Hólmfríður Guðrún Skúladóttir aðalmaður
Silja Pálsdóttir Varamaður
Starfsmenn
Þorsteinn K. Björnsson Sviðstjóri
Fundargerð ritaði:
Þorsteinn K. Björnsson sviðsstjóri veitu- og hafnasviðs
Dagskrá
1.
Fundargerðir 2016
Málsnúmer 201601130
Fyrir fundinum lá fundargerð 389. fundar stjórnar Hafnasambands Íslands sem haldinn var 11. nóvember sl.Á fundinum var kjörið í starfsnefndir Hafnasambandsins 2016 - 2018, auk þess voru afgreiddar ályktanir sem 40. Hafnasambandsþing, sem haldið var á Ísafirði í okt sl., hafði vísað til stjórnar.
Lagt fram til kynningar.
2.
Samþykkt um Fráveitu Dalvíkurbyggðar, endurskoðun 2014
Málsnúmer 201410237
Með bréfi sem dagsett er 25. nóvember 2016 frá Umhverfis- og auðlindaráðuneyti kemur fram að ráðuneytið hefur staðfest og sent til birtingar í B - deild Stjórnartíðinda Samþykkt um fráveitur og rotþrær í Dalvíkurbyggð.
Lagt fram til kynningar.
3.
Farþegagjald, upplýsingaskylda aðila í ferðaþjónustu.
Málsnúmer 201611067
Á 286. fundi sveitarstjórnar sem haldinn var 22.11.2016 var eftirfarandi fært til bókar: "Bjarni Th. Bjarnason, sem leggur fram eftirfarandi tillögu:„Forsvarsfólk hvalaskoðunarfyrirtækja í Dalvíkurbyggð hefur mótmælt samþykkt veitu- og hafnaráðs frá 9. nóvember sl. og telur að það fyrirkomulag sem lagt er til um upplýsingaskyldu sé illframkvæmanlegt þ.e. að senda inn tölur um farþegafjölda fyrir hverja ferð. Sveitarstjórn leggur til að veitu- og hafnaráð taki málið upp að nýju og leiti leiða til að koma á fyrirkomulagi sem jafnt hafnasjóður og ferðaþjónustuaðilar geta sætt sig við.“Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda tillögu sveitarstjóra."
Veitu- og hafnaráð samþykkir að formaður og sviðsstjóri boði hagsmunaaðila til fundar um ofangreint málefni og leggi fram tillögu að lausn málsins á næsta fund ráðsins.
4.
Jöfnun húshitunarkostnaðar 2016.
Málsnúmer 201612023
Fyrir fundinum liggur útreikningur á jöfnun húshitunarkostnaðar fyrir árið 2016. Í honum er tekið tillit til breytinga á gjaldskrám veitufyrirtækja og er gjaldið nú 314,77 kr/m3 húss. Heildarkostnaður Hitaveitu Dalvíkur er því um kr. 3.932.000,-.
Veitu- og hafnaráð samþykkir framlagðan útreikning.