Veitu- og hafnaráð Dalvíkurbyggðar
55. fundur
9. nóvember 2016
kl.
07:30
-
10:00
í Múla á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Pétur Sigurðsson
Formaður
Óskar Óskarsson
Varaformaður
Ásdís Svanborg Jónasdóttir
Aðalmaður
Kristján Hjartarson
Aðalmaður
Hólmfríður Guðrún Skúladóttir
aðalmaður
Starfsmenn
Bjarni Theódór Bjarnason
Sveitarstjóri
Þorsteinn K. Björnsson
Sviðstjóri
Gunnþór Eyfjörð Sveinbjörnsson
Starfsmaður
Fundargerð ritaði:
Þorsteinn K. Björnsson
sviðsstjóri veitu- og hafnasviðs
Dagskrá
1.
Deiliskipulag Skáldalæk-Ytri
Umhverfis- og tæknisvið Dalvíkurbyggðar óskar hér með eftir umsögn þinnar stofnunar vegna deiliskipulagstillögu á frístundasvæði í landi Skáldalæks ytri í Dalvíkurbyggð. Jörðin Skáldalækur ytri er í einkaeigu og hefur eigandi jarðarinnar látið vinna tillögu að deiliskipulagi með fjórum frístundahúsalóðum innan skipulagsreitsins.
Veitu- og hafnaráð gerir engar athugasemdir við umrædda deiliskipulagstillögu á frístundasvæði í landi Skáldalæks ytri í Dalvíkurbyggð, en bendir á að stofnæð vatnsveitu liggur í gegnum svæðið og verður því að taka tillit til þess.
2.
Stöðumat janúar - sept 2016
Á fundinum var kynnt stöðumat fyrir fyrstu níu mánuði ársins.
Lagt fram til kynningar.
3.
Fundargerðir 2016
Fyrir fundinum lá fundargerð 388. fundar stjórnar Hafnasambands Íslands sem haldinn var 12. október 2016.
Lögð fram til kynningar.
4.
Farþegagjald, upplýsingaskylda aðila í ferðaþjónustu.
Umræður hafa verið innan veitu- og hafnaráðs hvernig upplýsingaskyldu fyrirtækja í ferðaþjónustu sem nýta sér aðstöðu hjá Hafnasjóði Dalvíkurbyggðar er háttað.
Veitu- og hafnaráð samþykkir að frá og með áramótum skal ferðaþjónustuaðilum sem greiða farþegagjald til Hafnasjóðs Dalvíkurbyggðar gert skylt að senda rafpóst við brottför skips þar sem fram kemur skipsnúmer ásamt fjölda farþega um borð.
5.
Austurgarður, nýbygging og tilheyrandi
Á fund ráðsins var mættur Fannar Gíslason,verkfræðingur, starfamaður á Siglingasviði Vegagerðar ríkisins. Fannar kynnti þær tillögur sem eru til umræðu um staðsetningu á hafnargarðinum.
Veitu- og hafnaráð samþykkir að væntanlegur austurgarður verði hannaður í samræmi við fyrirliggjandi deiliskipulag og mun Fannar sendi inn teikningu í samræmi framangreinda bókun.