Fara í efni

Veitu- og hafnaráð Dalvíkurbyggðar

54. fundur
20. október 2016 kl. 07:30 - 10:00
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Pétur Sigurðsson Formaður
Óskar Óskarsson Varaformaður
Ásdís Svanborg Jónasdóttir Aðalmaður
Kristján Hjartarson Aðalmaður
Hólmfríður Guðrún Skúladóttir aðalmaður
Starfsmenn
Bjarni Theódór Bjarnason Sveitarstjóri
Þorsteinn K. Björnsson Sviðstjóri
Fundargerð ritaði:
Þorsteinn K. Björnsson sviðsstjóri veitu- og hafnasviðs
Dagskrá
1.
Sérstakt strandveiðigjald hafna
Málsnúmer 201610051
Með bréfi sem dagsett er 11. október 2016 kynnti Fiskistofa innheimt gjald vegna strandveiða á hverri höfn Hafnasjóðs Dalvíkurbyggðar. Fram kom í bréfinu að greiðsla muni berast innan skamms frá Fjársýslu ríkisins til Hafnasjóðs.
Lagt fram til kynningar.
2.
Gjaldskrá Hitaveitu Dalvíkur 2017.
Málsnúmer 201608019
Kynntar voru breytingar á gjaldskrá Hitaveitu Dalvíkur fyrir árið 2017. Gjaldskráin hefur tekið breytingum byggingarvísitölu frá september 2015 til september 2016, eða um 2,812%. Einnig er lagt til fyrirkomulag verðbreytinga á henni til framtíðar litið.
Veitu- og hafnaráð samþykkir framlagða gjaldskrá og vísar henni til sveitarstjórnar til staðfestingar.
3.
Gjaldskrá Fráveitu Dalvíkurbyggðar 2017.
Málsnúmer 201608018
Kynntar voru breytingar á gjaldskrá Fráveitu Dalvíkurbyggðar fyrir árið 2017. Gjaldskráin hefur tekið breytingum byggingarvísitölu frá september 2015 til september 2016, eða um 2,812%. Einnig er lagt til fyrirkomulag verðbreytinga á henni til framtíðar litið.Vakin er athygli á því að gjaldskráin hækkar frá síðasta ári til móts við lækkun á gjaldskrá vatnsveitu.
Veitu- og hafnaráð samþykkir framlagða gjaldskrá og vísar henni til sveitarstjórnar til staðfestingar.
4.
Gjaldskrá Vatnsveitu Dalvíkurbyggðar 2017.
Málsnúmer 201608020
Kynntar voru breytingar á gjaldskrá Vatnsveitu Dalvíkurbyggðar fyrir árið 2016. Gjaldskráin hefur tekið breytingum byggingarvísitölu frá september 2015 til september 2016, eða um 2,812%. Einnig er lagt til fyrirkomulag verðbreytinga á henni til framtíðar litið.Vakin er athygli á því að gjaldskráin lækkar frá síðasta ári til móts við hækkun á gjaldskrá fráveitu.
Veitu- og hafnaráð samþykkir framlagða gjaldskrá og vísar henni til sveitarstjórnar til staðfestingar.
5.
Gjaldskrá Hafnasjóðs Dalvíkurbyggðar 2017.
Málsnúmer 201608017
Fyrir fundinum liggja tillögur að breytingum á gjaldskrá Hafnasjóðs Dalvíkurbyggðar sem taka mun gildi 1. janúar 2017. Gjaldskráin hefur tekið breytingum, eftir því sem við á, samkvæmt: 1. byggingarvísitölu frá september 2015 til september 2016, eða um 2,812% 2. launabreytingum samkvæmt kjarsamningi um 15%. 3. breytingu á gjaldskrálið raforkusölu 0,8%.Einnig er lagt til fyrirkomulag verðbreytinga á henni til framtíðar litið.
Veitu- og hafnaráð samþykkir framlagða gjaldskrá og vísar henni til sveitarstjórnar til staðfestingar.
6.
Gjaldskrá og reglur um útleigu verbúða 2017
Málsnúmer 201610073
Fyrir fundinum liggja tillögur að breytingum á "gjaldskrá og reglum um útleigu verbúða", sem taka mun gildi 1. janúar 2017. Gjaldskráin hefur tekið breytingum, eftir því sem við á, samkvæmt byggingarvísitölu frá september 2015 til september 2016, eða um 2,812% Einnig er lagt til fyrirkomulag verðbreytinga á henni til framtíðar litið.
Veitu- og hafnaráð samþykkir framlagða gjaldskrá og vísar henni til sveitarstjórnar til staðfestingar.
7.
Fjárhagsáætlun 2017, undirbúningsvinna
Málsnúmer 201606019
Á fundinum var farið yfir fjáhagsáætlun og starfsáætlun fyrir árið 2017 ásamt fylgigögnum.Vegna óvissu um þörf framkvæmda er sú breyting gerð á framkvæmdaáætlun að þeirra er einungis getið án kostnaðar. Þetta er gert vegna þess að ekki liggur ljóst fyrir þátttaka hlutaðeigenda í framkvæmdakostnaði.
Veitu- og hafnaráð samþykkir framlagða starfs- og fjárhagsáætlun fyrir árið 2017.