Veitu- og hafnaráð Dalvíkurbyggðar
5. fundur
23. september 2013
kl.
16:00
-
16:00
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Berglind Björk Stefánsdóttir
Formaður
Óskar Óskarsson
Aðalmaður
Pétur Sigurðsson
Aðalmaður
Þorsteinn Már Aðalsteinsson
Varaformaður
Svanfríður Inga Jónasdóttir
Sveitarstjóri
Þorsteinn K. Björnsson
Sviðstjóri
Gunnþór Eyfjörð Sveinbjörnsson
Starfsmaður
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Svanfríður Inga Jónasdóttir
Hafnastjóri
Dagskrá
1.
Fjárhagsáætlun 2014
Tekin var fyrir starfsáætlun veitu- og hafnasviðs. Einnig voru kynnt þau vinnublöð sem fylgja starfsáætlun.
Veitu- og hafnaráð samþykkir fyrirliggjandi starfsáætlun fyrir árið 2014 og fjárhagsáætlun henni tengdri.
2.
Gjaldskrár
Teknar voru fyrir gjaldskrár hafnasjóðs, verbúða, hitaveitu, vatnsveitu og fráveitu.
Veitu- og hafnaráð samþykkir fyrirliggjandi drög að hækkunum á gjaldskrám sem heyra undir ráðið og munu þær verða lagðar fyrir næsta fund ráðsins til staðfestingar.
3.
Framkvæmdir ársins 2014, tillögur
Fjallað var um fyrirhugaðar framkvæmdir ársins, en þær koma einnig fram í starfsáætlun sviðsins.
Ræddar voru framkvæmdir næsta árs en reiknað er með að fjárhæðir til framkvæmda verði þær sömu og fram koma í þriggja ára áætlun.
4.
Sérstakt strandveiðigjald hafna
Bréf frá Fiskistofu sem dagsett er 13.09.2013, en þar kemur fram að framlag vegna strandveiða til hafna Dalvíkurbyggðar er kr. 536.616,-.