Veitu- og hafnaráð Dalvíkurbyggðar
42. fundur
16. desember 2015
kl.
07:30
-
10:10
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Pétur Sigurðsson
Formaður
Óskar Óskarsson
Varaformaður
Anna Guðný Karlsdóttir
Aðalmaður
Kristján Hjartarson
Aðalmaður
Silja Pálsdóttir
Varamaður
Starfsmenn
Þorsteinn K. Björnsson
Sviðstjóri
Gunnþór Eyfjörð Sveinbjörnsson
Starfsmaður
Fundargerð ritaði:
Þorsteinn K. Björnsson
sviðsstjóri veitu- og hafnasviðs
Dagskrá
1.
Beiðni um upplýsingar frá hafnasjóðum
Á seinasta hafnasambandsþingi var töluvert rætt um kynningu á starfsemi hafna og hvernig megi auka jákvæða ímynd þeirra. Þingið samþykkti svo ályktun um að mikilvægt væri að kynna starfsemi hafna með jákvæðum hætti gagnvart almenningi og fyrirtækjum. Stjórn Hafnasambands Íslands hefur tekið málið fyrir og ákveðið að óska eftir upplýsingum frá aðildarhöfnum til að kortleggja það sem nú þegar er verið að gera. Því er óskað eftir upplýsingum um öll þau verkefni sem hafnasjóður kemur að og snýr að kynningu á höfninni, eða því að bæta jákvæða ímynd hafna og sem og annað þessu tengdu. Sem dæmi er nefnt kynnisferðir fyrir nemendur, kynningarfundir fyrir íbúa, opið hús, hafnardagar og fleira.
Sviðsstjóra falið að setja saman texta og senda á fundarmenn til staðfestingar áður en hann er áframsendur á Hafnasambandið. Einnig kom fram að nauðsynlegt er að uppfæra upplýsingar á heimasíðu Hafnasjóðs.
2.
Fundargerðir Hafnasambandsins 2015
Fyrir fundinum lá fundargerð 379. fundar stjórnar Hafnasambands Íslands sem haldinn var 16. nóvember sl.
Lögð fram til kynningar.
3.
Skipulagslýsing vegna breytinga á aðalskipulagi og nýtt deiliskipulag Dalvíkurhafnar
Til kynningar og umræðu voru umsagnir á skipulagslýsingu vegna breytinga á aðalskipulagi og deiliskipulag Dalvíkurhafnar. Ráðsmenn kynntu sér þær athugasemdir sem borist hafa.
Lagt fram til kynningar.
4.
Hafnasamlag Norðurlands, samráðsfundur.
Formaður veitu- og hafnaráðs kynnti fyrir ráðsmönnum þær viðræður sem átt hafa sér stað síðan þetta málefni var síðast til umræðu á fundi ráðsins. Lagt var fram á fundinum "Minnisblað vegna mögulegrar sameiningar Hafnasamlags Norðurlands og Hafnasjóðs Dalvíkur".
Lagt fram til kynningar.