Fara í efni

Veitu- og hafnaráð Dalvíkurbyggðar

36. fundur
2. september 2015 kl. 07:30 - 10:00
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Pétur Sigurðsson Formaður
Anna Guðný Karlsdóttir Aðalmaður
Ásdís Svanborg Jónasdóttir Aðalmaður
Ásgeir Páll Matthíasson Varamaður
Silja Pálsdóttir Varamaður
Starfsmenn
Bjarni Theódór Bjarnason Sveitarstjóri
Þorsteinn K. Björnsson Sviðstjóri
Fundargerð ritaði:
Þorsteinn K. Björnsson sviðsstjóri veitu- og hafnasviðs
Dagskrá
1.
Fjárhags- og starfsáætlun 2016
Málsnúmer 201508034
Á fundinum voru kynntar tillögur að gjaldskrá fyrir Hafnasjóð Dalvíkurbyggðar, Vatnsveitu Dalvíkurbyggðar, Hitaveitu Dalvíkur og Fráveitu Dalvíkurbyggðar. Í þeim er gert ráð fyrir að þær taki breytingum byggingarvísitölu frá 1. september 2014 til 1. september 2015 samkvæmt ákvörðun sveitarstjórnar frá árinu 2014.Að auki voru kynnt ýmis vinnugögn sem tengjast vinnu við starfs- og fjárhagsáætlun næsta árs.
Veitu-og hafnaráð vekur athygli á því að byggingarvísitala hefur hækkað umtalsvert að undanförnu.
Að framansögðu varpar þeirri fyrirspurn til byggðarráðs hvort fara eigi eftir þeirri forskrift sem samþykkt var á síðasta ári hvað varðar hækkanir á gjaldskrám sveitarfélagsins.
2.
Fundargerðir Hafnasambandsins 2015
Málsnúmer 201501125
Fundargerð 376. fundar stjórnar Hafnasambands Íslands sem haldinn var 24. ágúst sl.
Lögð fram til kynningar.
Sviðstjóra falið að óska eftir þeim gögnum sem fylgdi 6. og 7. lið fundargerðarinnar og að þau verði kynnt á næsta fundi ráðsins.