Fara í efni

Veitu- og hafnaráð Dalvíkurbyggðar

35. fundur
19. ágúst 2015 kl. 07:30 - 10:00
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Pétur Sigurðsson Formaður
Anna Guðný Karlsdóttir Aðalmaður
Ásdís Svanborg Jónasdóttir Aðalmaður
Kristján Hjartarson Aðalmaður
Starfsmenn
Bjarni Theódór Bjarnason Sveitarstjóri
Þorsteinn K. Björnsson Sviðstjóri
Gunnþór Eyfjörð Sveinbjörnsson Starfsmaður
Fundargerð ritaði:
Þorsteinn K. Björnsson sviðsstjóri veitu- og hafnasviðs
Dagskrá
1.
Hafnafundur 2015
Málsnúmer 201508036
Stjórn Hafnasambands Íslands boðar til 7. hafnafundar, sem haldinn verður í Hafnarfirði, föstudaginn 28. ágúst nk.
Veitu- og hafnaráð samþykkir að Bjarna Th. Bjarnason, sveitarstjóri og Gunnþór Sveinbjörnsson, yfirhafnavörður verði fulltrúar Hafnasjóðs Dalvíkurbyggðar á fundinum.
2.
Smávirkjanir í Dalvíkurbyggð
Málsnúmer 201407032
Síðla sumars 2014 ákvað sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar að láta vinna úttekt á möguleikum til virkjunar vatnsfalla í sveitarfélaginu. Tilgangurinn var að gera grófa könnun á hvaða möguleikar væru á smávirkjunum af ýmsum stærðum, ekki síst virkjunum sem gætu selt rafmagn inn á dreifikerfið og stuðlað að atvinnuuppbyggingu í sveitarfélaginu.Hluti af þessari úttekt er að framkvæma mælingar á vatnafari í Dalvíkurbyggð. Hér er til kynningar fyrsta skýrsla þess efnis.
Veitu- og hafnaráð samþykkir að skýrsla um smávirkjanir í Dalvíkurbyggð verði kynnt opinberlega við fyrstu hentugleika og felur sveitarstjóra að finna hentugan tíma til þess. Lagt er einnig til að framangreind skýrsla verði birt á heimasíðu Dalvíkurbyggðar fyrir fundinn.
3.
Viljayfirlýsing um vatnsaflvirkjun í Brimnesá.
Málsnúmer 201508020
Á fund sveitarstjóra kom Garðar Lárusson, frá Íslenskri Vatnsorku ehf, hann kynnti fyrirtækið áhuga þess að koma að byggingu vatnsaflsvirkjunar í Brimnesá.Fyrir fundinum liggja drög að viljayfirlýsingu um framangreinda framkvæmd.
Afgreiðslu erindisins frestað.
4.
Viljayfirlýsing um samstarf.
Málsnúmer 201506149
Bjarni Th. átti fund með fulltrúum EAB á skrifstofu Fallorku þann 12.júní 2015. Fundur haldinn af tilstuðlan Andra Teitssonar frmkv.stj. Fallorku sem skrifaði nýverið undir viljayfirlýsingu á milli Fallorku og EAB á aðalfundi AFE þann 20.maí 2015. Fulltrúar EAB sendu drög að viljayfirlýsingu til Dalvíkurbyggðar í framhaldinu til skoðunar.
Afgreiðslu erindisins frestað.
5.
Vatnssýni 2015
Málsnúmer 201501131
Við hefðbundið eftirlit Heilbrigðiseftirlits kom í ljós að vatnsýni úr lagnakefi Vatnsveitunnar úr Krossafjalli reyndist ekki í lagi. Brugðist var við með því að loka fyrir eitt brunnsvæðið í fjallinu og sýni sem tekið var 4. ágúst sl. reyndist í lagi.
Lagt fram til kynningar.
6.
Fjárhags- og starfsáætlun 2016
Málsnúmer 201508034
Til upplýsingar var fjárhagsrammi fyrir árið 2016 kynntur auk hans var tímarammi vegna starfs- og fjárhagsáætlunar lagður fram.
Veitu- og hafnaráð stefnir að halda fund um starfs- og fjárhagsáætlun 2016 miðvikudaginn 2. september n.k..