Veitu- og hafnaráð Dalvíkurbyggðar
33. fundur
1. júlí 2015
kl.
07:30
-
10:00
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Pétur Sigurðsson
Formaður
Óskar Óskarsson
Varaformaður
Anna Guðný Karlsdóttir
Aðalmaður
Ásdís Svanborg Jónasdóttir
Aðalmaður
Kristján Hjartarson
Aðalmaður
Starfsmenn
Bjarni Theódór Bjarnason
Sveitarstjóri
Þorsteinn K. Björnsson
Sviðstjóri
Gunnþór Eyfjörð Sveinbjörnsson
Starfsmaður
Fundargerð ritaði:
Þorsteinn K. Björnsson
sviðsstjóri veitu- og hafnasviðs
Dagskrá
1.
Minnisblað um tryggingamál hafna
Reykjavík 24. júní 2015Með rafpósti þann 24. júní 2015, barst minnisblað sem hafnasambandið lét LEX lögmannsstofu vinna fyrir sig á vormánuðum. Í minnisblaðinu er farið yfir réttarstöðu hafna í tryggingarmálum. Fram kom að erindi um þetta málefni verður erindi hafnafundinum sem verður 28. ágúst nk.Í inngangi kemur eftirfarandi fram:"Að beiðni formanns Hafnasambands Íslands, Gísla Gíslasonar, höfum við tekið saman minnisblað þetta í tengslum við tryggingamál hafna. Tilefnið mun vera það að ýmis konar atvik hafa komið upp í og við hafnir sem mikilvægt er að átta sig á hvort hægt sé að fá næga tryggingavernd fyrir. Við höfum undir höndum bréf Hafnasambands Íslands dags. 16. febrúar 2015 þar sem gerð er grein fyrir tilefni gerðar minnisblaðs þessa auk þess sem nefnd eru dæmi um vafatilvik sem komið hafa upp.Við gerð minnisblaðs þessa hefur viðeigandi lagagrundvöllur verði kannaður auk þess sem aflað hefur verið upplýsinga frá vátryggingafélaginu VÍS sem m.a. sérhæfir sig í tryggingum af því tagi sem hér koma til álita."
Lagt fram til kynningar.
2.
Deiliskipulag Dalvíkurhafnar, endurskoðun
Ágúst Hafsteinsson, arkitekt, kynnti fyrir ráðsmönnum fyrirliggjandi drög að greinargerð og deiliskipulagsuppdrætti. Nokkrar breytingar voru gerðar á fyrirliggjandi gögnum og mun arkitekt senda inn nýjar tillögur í samræmi við þær.
Afgreiðslu frestað.