Veitu- og hafnaráð Dalvíkurbyggðar
3. fundur
22. maí 2013
kl.
17:00
-
18:00
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Berglind Björk Stefánsdóttir
Formaður
Pétur Sigurðsson
Aðalmaður
Þorsteinn Már Aðalsteinsson
Varaformaður
Valdís Guðbrandsdóttir
Varamaður
Freyr Antonsson
Varamaður
Svanfríður Inga Jónasdóttir
Sveitarstjóri
Þorsteinn K. Björnsson
Sviðstjóri
Gunnþór Eyfjörð Sveinbjörnsson
Starfsmaður
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Svanfríður Inga Jónasdóttir
Hafnastjóri
Dagskrá
1.
Hafskipakantur á Dalvík
Fyrir fundinum liggur nýtt minnisblað frá Siglingastofnun, Sigurði Sigurðarsyni og Baldri Bjartmarssyni, dags. 6. maí 2013, um aðkomu skipa að nýjum hafskiptakanti. Minnisblaðið er skrifað í kjölfar þess að það var skoðað hvort lega kantsins gæti verið önnur en fram kom á teikningu með minnisblaði dags. 15. apríl 2013. Meðfylgjandi eru þrjár tillögur; A, B og C.
Veitu- og hafnaráð samþykkir að tillaga C og dýpkunarsvæði verði samkvæmt mynd 4, verði skoðuð nánar og að óskað verði eftir kostnaðarútreikningum á grundvelli hennar.
2.
Fráveita dælustöð suður
Á 2. fundi veitu- og hafnaráðs voru til kynningar breytingar á suður dælustöð fráveitunnar. Samkvæmt fjárhagsáætlun var gert ráð fyrir kr. 4.000.000,-, í þá framkvæmd, en sé farin sú leið sem hér er til umræðu gæti kostnaður aukist um kr. 4.000.000,-.
Ráðið samþykkir að fara að þeirri tillögu sem fyrir liggur en óskar jafnframt að ýtrasta hagræðis sé gætt við framkvæmdina og rekstur fráveitu á árinu.
3.
Íbúagátt, mín orka.
Dalvíkurbyggð er að fara að opna íbúagátt sem þátt í að auka þjónustu við bæjarbúa. Einn þáttur er að viðskiptavinir Hitaveitu Dalvíkur geti kynnt sér ýmsar upplýsingar úr upplýsingakerfi veitunnar sem ber heitið "Mín orka".
Kynnt var tilboð það sem fram kemur í rafpósti til sviðsstjóra fjármála- og stjórnsýslusviðs sem dagsettur er 14.05.2013.Sviðstjóra falið að ræða frekar við Applicon um málið.