Fara í efni

Veitu- og hafnaráð Dalvíkurbyggðar

29. fundur
13. maí 2015 kl. 07:30 - 10:00
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Pétur Sigurðsson Formaður
Óskar Óskarsson Varaformaður
Ásdís Svanborg Jónasdóttir Aðalmaður
Hólmfríður Guðrún Skúladóttir Varamaður
Ásgeir Páll Matthíasson Varamaður
Starfsmenn
Bjarni Theódór Bjarnason Sveitarstjóri
Þorsteinn K. Björnsson Sviðstjóri
Gunnþór Eyfjörð Sveinbjörnsson Starfsmaður
Fundargerð ritaði:
Þorsteinn K. Björnsson sviðsstjóri veitu- og hafnasviðs
Dagskrá
1.
Deiliskipulag Dalvíkurhafnar, endurskoðun
Málsnúmer 201401168
Til umföllunar hefur verið vinna við deiliskipulag Dalvíkurhafnar og svæðinu umhverfis. Nú liggur fyrir tillaga sem byggist á þeirri umræðu sem verið hefur á fundum ráðsins um fjölgun viðlegukanta og flotbryggja. Í þessari tillögu er aðalbreytingin fólgin í eftirfarandi atriðum: a. löndunarkanti við Martröðb. aðstöðu fyrir hvalaskoðun við "Olíubryggju" og Ferjubryggju c. frekari aðstöðu fyrir smábáta í krikanum fyrir smábátad. braut fyrir niðursetningu smábáta í krikanume. landfyllingu norðan við Norðurgarð.f. flutning á annari verðbúðinni að Sandskeiðg. frekari bílastæðum við Sandskeiðh. einnig hefur byggingafulltrúi lagt til flutning á sjóvörn við Sandskeið um 70 -80m utar en hún er í dagi. er ekki gert ráð fyrir aðstöðu fyrir hótelskipið Hanza
Ákeðið er að halda kynningarfund með hagsmunaaðilum miðvikudaginn 27. maí kl. 10:00 þar sem þessi drög að deiliskipulagi verða lögð fram.Sviðsstjóra falið að boða til fundarins.
Sviðsstjóra falið að gera aðilum sem sóttu um aðstöðu fyrir hótelskipið Hanza grein fyrir umræðum á fundinum og áformum þeim sem fram koma í framlögðum drögum að deiliskipulagi.
2.
Dýpkun Dalvíkurhafnar 2015.
Málsnúmer 201505032
Send var umsókn um framlag til dýpkunar Dalvíkurhafnar og hefur nú borist eftirfarandi svar: "Tekið er jákvætt í erindi Hafnarsjóðs Dalvíkurbyggðar og er fallist á að styrkja viðhaldsdýpkun allt að 2 m.kr. og 60% af framkvæmdarkostnaði".
Sviðsstjóra falið að kanna hvaða möguleikar eru til þess að dýpka Dalvíkurhöfn og skila inn tillögum á mæsta fund ráðsins, en fundur er fyrirhugaður 27. maí n.k.