Veitu- og hafnaráð Dalvíkurbyggðar
28. fundur
29. apríl 2015
kl.
07:30
-
10:00
í Múla á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Pétur Sigurðsson
Formaður
Óskar Óskarsson
Varaformaður
Anna Guðný Karlsdóttir
Aðalmaður
Ásdís Svanborg Jónasdóttir
Aðalmaður
Kristján Hjartarson
Aðalmaður
Starfsmenn
Bjarni Theódór Bjarnason
Sveitarstjóri
Þorsteinn K. Björnsson
Sviðstjóri
Gunnþór Eyfjörð Sveinbjörnsson
Starfsmaður
Fundargerð ritaði:
Þorsteinn K. Björnsson
sviðsstjóri veitu- og hafnasviðs
Dagskrá
1.
Starfsmannamál
Á hverju vori eru til umræðu ráðningar á starfsmönnum til sumarafleysingar hjá veitu- og hafnasviði. Sumarleyfi fastráðinna starfsmanna eru sex vikur og þarf að gera ráð fyrir að starfsmenn geti tekið sitt orlof.Einnig er tekið til umræðu, á hverju vori, lengd viðvera hafnastarfsmanna vegna strandveiða.
Rúnar Ingvarsson mun hefja störf hjá Hafnasjóði Dalvíkurbyggðar frá 1. maí n.k. og mun starf hjá veitum verða auglýst.
Veitu- og hafnaráð samþykkir að viðverutími hafnastarfsmanna verði lengdur á meðan strandveiðatími er þ.e. frá 17:00 til 19:00.
Veitu- og hafnaráð samþykkir að viðverutími hafnastarfsmanna verði lengdur á meðan strandveiðatími er þ.e. frá 17:00 til 19:00.
2.
Hafnasamlag Norðurlands, samráðsfundur.
Búið er að tilnefna fulltrúa í samráðsnefnd hjá báðum aðilum. Fram kom hjá formanni að búið er að boða til fundar 5. maí n.k.
Kynnt fundarmönnum.
3.
Fundargerðir Hafnasambandsins 2015
Á fundinum var kynnt fundargerð 374. fundar Hafnasambands Íslands.
Lögð fram til kynningar.
4.
Gjaldskrá Hafnasjóðs Dalvíkurbyggðar
Yfirhafnavörður hefur fengið fyrirspurnir um ákveðna gjaldskrárliði í gildandi gjaldskrá Hafnasjóðs Dalvíkurbyggðar. Hann fór yfir málið með ráðinu sem snéri að gjaldi sem tekið er fyrir fast viðlegugjald.
Veitu- og hafnaráð samþykkir að taka gjaldskrá Hafnasjóðs til endurskoðunar fyrir lok maí.
5.
Dalvíkurhöfn, dýpkun 2015.
Í mörg ár hefur staðið til að fara í viðhaldsdýpkun í Dalvíkurhöfn. Á árinu 2012 voru útbúin útboðsgögn vegna þeirrar framkvæmdar.
Stefnt hefur verið að viðhaldsdýpkun í nokkur ár, en í tengslun við gerð nýs hafnarkants var gert ráð fyrir að dýpkun yrði einn verkliður þeirrar framkvæmdar. Vegna tafa á framangreindri framkvæmd hefur þessi verkliður tafist og er orðið brýnt að ráðast í hann sem fyrst.
Hafnastjóra og sviðsstjóra falið að ganga frá umsókn um viðhaldsdýpkun til siglingasviðs Vegagerðar ríkisins.
Hafnastjóra og sviðsstjóra falið að ganga frá umsókn um viðhaldsdýpkun til siglingasviðs Vegagerðar ríkisins.
6.
Tékklisti og ferlar vegna verkefna
Umræða hefur verið innan stjórnsýslu Dalvíkurbyggðar um að nauðsyn sé á að skerpa á ferli erinda sem koma til afgreiðslu og umfjöllunar hjá Dalvíkurbyggð. Því var gerður ofangreindur "Tékklisti" em hér er til kynningar.
Lagður fram til kynningar.
7.
Smávirkjanir í Dalvíkurbyggð.
Drög að skýrslu liggur nú fyrir um Smávirkjanir í Dalvíkurbyggð. Að auki hefur verið unnið að mælingu á rennsli vatnsfalla til þess að geta staðfest betur hvað afrennsli vatnasvæðisins er mikið í Dalvíkurbyggð.
Skýrslan er lögð fram til kynningar.
8.
Gagnaveita Dalvíkurbyggðar
Kynning á fundi sem sveitarstjóri á með fulltrúum Mílu ehf 10. apríl sl.
Sveitarstjóri gerði ráðsmönnum grein fyrir ofangreindum fundi.
9.
Verksamningur um rotþróarhreinsun
Hreinsitækni hefur séð um rotþróartæmingu hjá Dalvíkurbyggð á undanförnum árum. Auk þess hefur fyrirtækið einnig séð um hreinsun á lagnakerfi fráveitunnar og safnþrær. Nú liggja fyrir drög að nýjum samningi við fyrirtækið.
Upphæð framangreinds samnings er hærri en viðmið innkaupareglna Dalvíkurbyggðar og hafnar veitu- og hafnaráð samningsdrögunum.
Sviðsstjóra falið að afla tilboða frá fleiri verktökum í umræddan verkþátt og að samningurinn uppfylli innkaupareglur Dalvíkurbyggðar.
Sviðsstjóra falið að afla tilboða frá fleiri verktökum í umræddan verkþátt og að samningurinn uppfylli innkaupareglur Dalvíkurbyggðar.
10.
Suðurdælustöð Fráveitu Dalvíkurbyggðar.
Kynning og umræður vegna framkvæmda við uppsetningu á búnaði dælustöðvarinnar en í fjárhagsáætlun fyrir árið 2015 er gert ráð fyrir kr. 1.500.000,- til þess að ljúka endurbótum á henni.
Veitu- og hafnaráð telur brýnt að tengingu suðurdælustöðvar verði lokið eins fljótt og auðið er eigi síðar en í lok júní.
11.
Frumvarp til laga um stjórn vatnamála (gjaldtaka fyrir vatnsþjónustu, EES-reglur), 511. mál.
Umhverfis- og samgöngunefnd Alþingis sendir yður til umsagnar frumvarp til laga um stjórn vatnamála (gjaldtaka fyrir vatnsþjónustu, EES-reglur), 511. mál.Þess er óskað að undirrituð umsögn berist eigi síðar en 23. febrúar nk. á netfangið nefndasvid@althingi.isEf engar athugasemdir eru þarf ekki að senda sérstaka tilkynningu þess efnis. Þingskjalið er hægt að sækja á vef Alþingis: http://www.althingi.is/altext/144/s/0888.htmlSamband íslenskar sveitafélaga skilaði umsögn um frumvarpið og eru hér lokaorð þess."Eins og hér hefur verið rakið allítarlega er það eindregin afstaða Sambands íslenskra sveitarfélaga að ekki verði unað við þá skattlagningu á almannaþjónustu sem hér er lögð til heldur beri að fjármagna stjórnsýsluverkefni vegna innleiðingar vatnatilskipunarinnar með framlögum áfjárlögum. Allt frá því að fyrst var byrjað að huga að innleiðingu vatnatilskipunarinnar hefur sambandið lagst gegn auknum álögum á sveitarfélög vegna þeirrar auknu stjórnsýslu sem af henni hlýst.Sambandið væntir þess að við umfjöllun um málið á Alþingi verði sérstaklega kallað eftir afstöðu ríkisins til þess hvort ekki sé skynsamlegra að auka stuðning við sveitarfélög sem ekki hafa lokið nauðsynlegumfráveituframkvæmdum og þau áform um skattlagningu á almenningsveitur sem hér eru til umsagnar verði jafnframt lögð á hilluna til frambúðar.Sambandið leggst eindregið gegn samþykkt frumvarpsins."
Veitu- og hafnaráð gerir lokaorð umsagnar Sambands íslenskra sveitarfélaga að sínum og leggur til að sveitarstjórn Dalvíkurbyggðar geri það einnig.
12.
Trúnaðarmál
13.
Trúnaðarmál
14.
Trúnaðarmál