Veitu- og hafnaráð Dalvíkurbyggðar
26. fundur
10. mars 2015
kl.
07:30
-
10:00
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Pétur Sigurðsson
Formaður
Óskar Óskarsson
Varaformaður
Anna Guðný Karlsdóttir
Aðalmaður
Ásdís Svanborg Jónasdóttir
Aðalmaður
Kristján Hjartarson
Aðalmaður
Starfsmenn
Bjarni Theódór Bjarnason
Sveitarstjóri
Þorsteinn K. Björnsson
Sviðstjóri
Gunnþór Eyfjörð Sveinbjörnsson
Starfsmaður
Fundargerð ritaði:
Þorsteinn K. Björnsson
sviðsstjóri veitu- og hafnasviðs
Dagskrá
1.
Hlutverk og starfsemi ungmennaráðs Dalvíkurbyggðar.
Erindi barst frá ungmennaráði Dalvíkurbyggðar um að koma inn á fund veitu- og hafnaráðs og kynna starfsemi sína. Tilgangur ungmennaráðs er að þjálfa ungmenni í lýðræðislegum vinnubrögðum og skapa þeim vettvang til að koma á framfæri hagsmunamálum, skoðunum og áherslum ungs fólks á aldrinum 14-20 ára í Dalvíkurbyggð.
Enginn mætti frá ungmennaráði Dalvíkurbyggðar en þau höfðu bókað sig á fund ráðsins kl. 7:30.
3.
Leiðbeiningar um gerð siðareglana og hlutverk siðanefndar
Siðanefnd Samband íslenskra sveitarfélaga sem starfar skv. 29. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011 hefur útbúið meðfylgjandi fræðslurit um hvað sveitarstjórnir þurfa að hafa í huga við gerð og endurskoðun siðareglna. Ritið ber heitið "Leiðbeiningar um gerð siðareglna og hlutverk siðanefndar".Reynt var að setja leiðbeiningarnar upp á einfaldan og skýran hátt og notast við dæmi til að vekja fólk til umhugsunar. Vonast siðanefndin til þess að leiðbeiningarnar veki upp jákvæða umræðu um siðamál og að hún nýtist kjörnum fulltrúum í sinni vinnu.
Lagt fram til kynningar.
4.
Fundargerðir Hafnasambandsins 2015
Með rafpósti sem dagsettur er 18. febrúar 2015 barst fundargerð 372. fundar stjórnar Hafnasambands Íslands.Umræddur fundur var haldinn 13. febrúar sl.Í viðhengi má einnig finna tillögu að landsskipulagsstefnu 2015-2026. Í henni má finna kafla sem snertir hafnirnar.
Lagt fram til kynningar.
5.
Starfsleyfisskilyrði og ný fráveitusamþykkt
Með rafpósti frá heilbrigðisfulltrúa eru kynnt neðangreind ákvæði en þau eru fengin heilbrigðisnefnd en þau fjalla um forhreinsun iðnaðarskólps og er fyrirmyndin fengin úr innahúsvinnu hjá Orkuveitu Reykjavíkur.Heilbrigðisfulltrúi bendir á að það sé um að gera að setja þessi skilyrði inn í nýja fráveitusamþykkt Dalvíkurbyggðar.
Lagt fram til kynningar.
6.
Deiliskipulag Dalvíkurhafnar, endurskoðun
Kynnt var á fundinum ný tillaga að fyrirkomulagi innan hafnar.
Veitu- og hafnaráð samþykkir að senda umrædd drög að deiliskipulagi til umsagnar umhverfisráðs.
7.
Gagnaveita Dalvíkurbyggðar
Fyrir fundinum liggja samningsdrög við Tengi hf um lagningu ljósleiðara í Dalvíkurbyggð.
Veitu- og hafnaráð leggur til við sveitarstjórn að samningurinn verði samþykktur.
8.
Uppsögn úr starfi hafnavarðar.
Mað rafpósti, sem dagsettur er 8. mars 2015, segir Óli Þór Jóhannsson hafnavörður, upp störfum hjá Dalvíkurbyggð.
Veitu- og hafnaráð þakkar óla Þór vel unnin störf fyrir Hafnasjóð Dalvíkurbyggðar og óskar honum velfarnaðar á nýjum starfsvettfangi.