Veitu- og hafnaráð Dalvíkurbyggðar
22. fundur
14. janúar 2015
kl.
08:15
-
11:00
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Pétur Sigurðsson
Formaður
Óskar Óskarsson
Varaformaður
Anna Guðný Karlsdóttir
Aðalmaður
Ásdís Svanborg Jónasdóttir
Aðalmaður
Kristján Hjartarson
Aðalmaður
Bjarni Theódór Bjarnason
Sveitarstjóri
Þorsteinn K. Björnsson
Sviðstjóri
Gunnþór Eyfjörð Sveinbjörnsson
Starfsmaður
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Þorsteinn K. Björnsson
sviðsstjóri veitu- og hafnasviðs
Dagskrá
1.
Siðareglur fyrir kjörna fulltrúa; endurskoðun í upphafi kjörtímabils.
Markmið þessara reglna er að skilgreina hátterni og viðmót sem kjörnum fulltrúum ber að sýna við störf sín á vegum Dalvíkurbyggðar.Á fundinum voru siðareglurnar lesnar upphátt og ræddu ráðsmenn ýmsar greinar þeirra.
Lagt fram til kynningar.
2.
Fundargerðir Hafnasambandsins 2014.
Á fundinum var kynnt fundargerð Hafnasambandsins nr. 370.
Lögð fram til kynningar.
3.
Hafnasamlag Norðurlands, samráðsfundur.
Á síðasta kjörtímabili áttu stjórnir Hafnasambands Norðurlands og Hafnasjóðs Dalvíkurbyggðar viðræður um frekara samstarf og samvinnu.
Veitu- og hafnaráð óskar heimildar sveitastjórnar til að ganga til frekari viðræðna við Hafnasamband Norðurlands.
5.
Gagnaveita Dalvíkurbyggðar
Á fundinn voru mættir Gunnar Björn Þórhallsson og Steinmar Rögnvaldsson frá Tengi hf. Þeir gerður grein fyrir hugsanlegri áfangaskiptingu á uppbyggingu gagnaveitu í Dalvíkurbyggð.
Sviðsstjóra falið að yfirfara tillögurnar að teknu tilliti til umræðna sem áttu sér stað á fundinum. Stefnt er að öðrum fundi um mál gaganveitu nú í janúar.
6.
Leiðbeiningar um uppbyggingu ljósleiðaraneta og ríkisaðstoðarreglur EES
Með bréfi, sem dagsett er 20. nóvember 2014, fylgdi vefslóð á "Leiðbeiningar um uppbyggingu ljósleiðaraneta og ríkisaðstoðarreglur EES". Fram kom í bréfinu einnig að innanríkisráðuneytið hefði óskað eftir þeim upplýsingum,sem fram koma í skýrslunni,í þeirri viðleitni að styðja við undirbúning og framkvæmd við uppbyggingu ljósleiðarakerfa á vegum obinberra aðila, einkum sveitarfélaga.
Lagt fram til kynningar