Fara í efni

Veitu- og hafnaráð Dalvíkurbyggðar

21. fundur
3. desember 2014 kl. 08:15 - 10:30
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Pétur Sigurðsson Formaður
Óskar Óskarsson Varaformaður
Anna Guðný Karlsdóttir Aðalmaður
Ásdís Svanborg Jónasdóttir Aðalmaður
Kristján Hjartarson Aðalmaður
Bjarni Theódór Bjarnason Sveitarstjóri
Þorsteinn K. Björnsson Sviðstjóri
Gunnþór Eyfjörð Sveinbjörnsson Starfsmaður
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Þorsteinn K. Björnsson sviðsstjóri veitu- og hafnasviðs
Dagskrá
1.
Gjaldskrá Hitaveitu Dalvíkur
Málsnúmer 201411141
Undir þessum lið var mættur til fundarins Árni Sveinn Sigurðsson, verkfræðingur, starfsmaður Eflu, verkfræðistofu. Árni Sveinn kynnti útreikninga á samanburði á orkuverði og rúmmetraverði heita vatnsins í Dalvíkurbyggð. Fram kom að miðað við að halda heildartekjum hitaveitunnar sambærilegum er útreiknað orkuverð 2,30kr/kwst miðað við að viðmiðunarhitastig orkumælis sé 25°C.Á fundinum var tekin fyrir gjaldskrá hitaveitunnar sem gildi tekur 1. janúar 2015. Þær breytingar eru helstar að hún hefur tekið breytingum byggingarvísitölu september 2013 til september 2014. Breytingin er 1,85%. Einnig er kominn nýr gjaldaliður þar sem viðskiptavinir greiða fyrir orkunotkun kr/kwst. í stað m3. Einnig verður fjölgað gjaldflokkum mælaleigu þar sem gjaldið miðast við stærð mæla og kostnað við hvern stærðarflokk.
Veitu- og hafnaráð samþykkir framlagða gjaldskrá og sendir hana til afgreiðslu í sveitarstjórn.
2.
Jöfnun húshitunarkostnaðar 2014
Málsnúmer 201411142
Fyrir fundinum liggur útreikningur á jöfnun húshitunarkostnaðar fyrir árið 2014. Í honum er tekið tillit til breytinga á gjaldskrám veitufyrirtækja og er gjaldið nú 237,59 kr/m3 húss. Heildarkostnaður Hitaveitu Dalvíkur er því um kr. 3.376.000,-.
Veitu- og hafnaráð samþykkir framlagðan útreikning.
3.
Endurnýjun á samstarfssamningi milli Dalvíkurbyggðar og Ferðafélags Svarfdæla.
Málsnúmer 201410305
Þessu erindi var frestað á 20. fundi ráðsins.Á 257. fundi Umhverfisráðs Dalvíkurbyggðar þann 7. nóvember sl., var tekið fyrir ofangreint erindi.Lagður fram til staðfestingar endurnýjaður samstarfssamningur milli Dalvíkurbyggðar og Ferðafélags Svarfdæla. Á fundi umhverfisráðs var eftirfarandi fært til bókar. "Þar sem greiðslur vegna þessa styrkjar hafa verið greiddar af umhverfisverkefnum veitna undanfarin ár vísar umhverfisráð samningnum til veitu- og hafnaráðs."
Veitu- og hafnaráð hafnar erindinu og vísar því til byggðarráðs til afgreiðslu.
4.
Atkvæðagreiðsla um merki fyrir hafnasambandið
Málsnúmer 201411020
Erindi lá fyrir fundinum frá Hafnasambandi Íslands um að greidd yrðu atkvæði um tvær tillögur að merki félagsins.
Veitu- og hafnaráð mælir með því að tillaga 1 verði merki félagsins.
5.
Hafnasamlag Norðurlands, samráðsfundur á Akureyri
Málsnúmer 201403115
Með vísan til 20. fundar ráðsins, en á þeim fundi voru kynntar þær viðræður sem áttu sér stað sl. vor. Nú er málið tekið upp aftur hér.
Veitu- og hafnaráð samþykkir að boða til sérstaks fundar um þetta mál fljótlega eftir áramót.
6.
Gjaldskrá Hafnasjóðs Dalvíkurbyggðar
Málsnúmer 201411143
Fyrir var tekin gjaldskrá Hafnasjóðs Dalvíkurbyggðar fyrir árið 2015. Helstu breytingar á henni eru þær að tekið hefur verið tillit til launabreytinga og breytinga á byggingarvísitölu frá september 2013 til september 2014, sem er 1,85%.
Veitu- og hafnaráð samþykkir framlagða gjaldskrá og vísar henni til sveitarstjórnar til staðfestingar.
7.
Gjaldskrá og reglur um útleigu verbúða
Málsnúmer 201411144
Fyrir var tekið gjaldskrá og reglur um útleigu verbúða. Lagt er til að framgreind gjaldskrá taki breytingum byggingarvísitölu september 2013 til september 2014 eða um 1,85%.
Veitu- og hafnaráð samþykkir framlagða gjaldskrá og reglur um útleigu sem henni fylgja og vísar henni til staðfestingar sveitarstjórnar.