Veitu- og hafnaráð Dalvíkurbyggðar
19. fundur
22. október 2014
kl.
08:15
-
10:30
í Múla á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Pétur Sigurðsson
Formaður
Ásdís Svanborg Jónasdóttir
Aðalmaður
Kristján Hjartarson
Aðalmaður
Bjarni Theódór Bjarnason
Sveitarstjóri
Þorsteinn K. Björnsson
Sviðstjóri
Gunnþór Eyfjörð Sveinbjörnsson
Starfsmaður
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Þorsteinn K. Björnsson
sviðsstjóri veitu- og hafnasviðs
Dagskrá
1.
Reglugerð fyrir Hitaveitu Dalvíkur, endurskoðun 2014
Vegna breytinga á skipuriti Dalvíkurbyggðar og fleiri þátta er nauðsynlegt að endurskoða gildandi reglugerð fyrir Hitaveitu Dalvíkur.
Nokkar athugasemdir voru gerðar og mun sviðsstjóri vinna úr þeim fyrir næstu umfjöllun ráðsins.
2.
Reglugerð um Fráveitu Dalvíkurbyggðar, endurskoðun 2014
Vegna breytinga á skipuriti Dalvíkurbyggðar og fleiri þátta er nauðsynlegt að endurskoða gildandi reglugerð.
Nokkar athugasemdir voru gerðar og mun sviðsstjóri vinna úr þeim fyrir næstu umfjöllun ráðsins.
3.
Umsóknir vegna verkefna í hafnargerð og sjóvörnum
Með bréfi sem dagsett er 9. október 2014, bendir Vegagerð ríkisins á að verið er að vinna að gerð samgönguáætlunar fyrir árin 2015 - 2018. Umsóknum um ríkisframlög til verkefna á næsta áætlunartímabili skal senda til Vegagerðarinnar fyrir 7. nóvember nk. Um er að ræða umsóknir fyrir eftirtaldar framkvæmdir:Umsókn um framlag til nýrra verkefna í hafnargerð.Staðfesting eldri verkefna.Umsókn um framlag til frumrannsókna.Umsókn um framlag til sjóvarna.Sviðstjóri kynni þau verkefni sem um hefur verið sótt síðan 2010, um var að ræða:1. Hafskipakantur, Stálþil, lagnir og þekja2. Árskógssandur, dýpkun smábátaaðstöðu, tengist færslu á grjótgarði og uppsetningu flotbryggju3. Árskógssandur, flotbryggja4. Færsla á grjótgarði, þessi framkvæmd er forsenda dýpkunar og flotbryggju í Árskógssandarhöfn5. Viðhald hafnamannvirkja hjá Hafnasjóði Dalvíkurbyggðar
Veitu- og hafnaráð felur hafnastjóra, sviðsstjóra og formanni ráðsins að ganga frá umsóknum vegna verkefna í hafnargerð sem upp eru talin hér að ofan og senda þær til Vegagerðar ríkisins.
4.
Deiliskipulag Dalvíkurhafnar, endurskoðun
Vinna við endurskoðun deiliskipulags Dalvíkurhafnar hefur verið í gangi, til upprifjunar fyrir nýtt veitu- og hafnaráð er staða skipulagsins reifað.
Ráðið samþykkir að Ágúst Hafsteinsson, arkitekt, mæti á næsta fund ráðsins.