Fara í efni

Veitu- og hafnaráð Dalvíkurbyggðar

17. fundur
23. september 2014 kl. 08:15 - 10:00
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Pétur Sigurðsson Formaður
Óskar Óskarsson Varaformaður
Anna Guðný Karlsdóttir Aðalmaður
Kristján Hjartarson Aðalmaður
Þorsteinn K. Björnsson Sviðstjóri
Gunnþór Eyfjörð Sveinbjörnsson Starfsmaður
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Þorsteinn K. Björnsson sviðsstjóri veitu- og hafnasviðs
Dagskrá
1.
Fjárhags- og starfsáætlun fyrir árið 2015.
Málsnúmer 201409041
Til umræðu var fjárhags- og starfsáætlun fyrir veitu- og hafnasvið einnig var til umræðu framkvæmdaáætlun næsta árs, en hún er hluti af starfsáætlun sviðsins. Fjárhagsáætlunin var einnig kynnt á síðasta fundi ráðsins.Guðrún Pálína Jóhannsdóttir, sviðstjóri, mætti til fundar undir þessum lið og svaraði fyrirspunum ráðsmanna um lánamál og afskriftir veitna og hafna.
Sviðstjóra var falið að lagfæra framlagða fjárhags- og starfsáætlun fyrir árið 2015 til samræmis við þær breytingar sem gerðar voru á fundinum.
2.
Hafnasamlag Norðurlands, samráðsfundur á Akureyri
Málsnúmer 201403115
13. mars sl. var haldinn sameiginlegur fundur stjórna Hafnasjóðs Dalvíkurbyggðar og Hafnasambands Norðurlands. Samantekt vegna þessa fundar er meðfylgjandi fundargagn með þessum fundi.Ráðið fór yfir fyrri samskipti á milli hafnanna.
Ráðið frestar umræðu um framangreint mál til næsta fundar.