Veitu- og hafnaráð Dalvíkurbyggðar
162. fundur
6. nóvember 2026
kl.
08:15
-
09:50
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Helgi Einarsson
formaður
Sigvaldi Gunnlaugsson
varaformaður
Þorvaldur Eyfjörð Kristjánsson
aðalmaður
Gunnþór Eyfjörð Sveinbjörnsson
aðalmaður
Tryggvi Kristbjörn Guðmundsson
aðalmaður
Starfsmenn
Óðinn Steinsson
starfsmaður
Fundargerð ritaði:
Óðinn Steinsson
Verkefnastjóri þvert á svið
Dagskrá
1.
Gjaldskrár 2027 - Gjaldskrá Fráveitu Dalvíkurbyggðar
Endurskoðuð gjaldskrá Fráveitu Dalvíkurbyggðar fyrir árið 2027 lögð fram til umræðu. Lagðar til 2,5% hækkanir líkt og uppleggið er með aðrar gjaldskrár.
Veitu- og hafnaráð samþykkir framlagða gjaldskrá samhljóða með fimm atkvæðum.
Veitu- og hafnaráð beinir því til Framkvæmdasviðs að samþykkt um fráveitu og rotþrær í Dalvíkurbyggð verði tekin til endurskoðunar á nýju ári. Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
Veitu- og hafnaráð beinir því til Framkvæmdasviðs að samþykkt um fráveitu og rotþrær í Dalvíkurbyggð verði tekin til endurskoðunar á nýju ári. Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
2.
Nýr vigtarskúr
Á fundinum eru lögð fram vinnugögn sem eru til umræðu.
Veitu- og hafnaráð telur mikilvægt að endurskoða umfang verkefnisins. Umræðum fram haldið á næsta fundi ráðsins.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
3.
Verbúð, syðri - viðgerð á þaki
Hafnarstjóri leggur fram beiðni um viðauka vegna nauðsynlegra viðgerða á þaki syðri verbúðar.
Veitu- og hafnaráð samþykkir samhljóða með fimm atkvæðum að fela sveitarstjóra að óska eftir viðauka í byggðaráði vegna viðgerða á þaki syðri verbúðar.
4.
Mánaðarlegar skýrslur 2026
Lagt fram yfirlit yfir stöðu bókhalds janúar - september 2026 í samanburði við heimildir í fjárhagsáætlun.
Lagt fram til kynningar.
5.
Fundargerðir Hafnasambands Íslands 2026
Lagðar fram til kynningar fundargerðir stjórnar Hafnasambands Íslands af 483. fundi þann 29. maí sl., af 484. fundi þann 19. ágúst sl., 485. fundi þann 7. september sl., 486. fundi þann 2. október sl., og 487. fundi þann 21. október sl.
Lagt fram til kynningar.
6.
Vatnstankur Upsa - Nýr tankur
Fundargerð síðasta verkfundar frá 19.október sl. lögð fram sem og upplýsingar um viðbótar einangrun á þak vatnstanksins.
Í lok fundar var farið á verkstað í skoðunarferð.
Í lok fundar var farið á verkstað í skoðunarferð.
Veitu- og hafnaráð samþykkir samhljóða með fimm atkvæðum að farið verði í að setja viðbótar einangrun á þak vatnstanksins, líkt og framlagt tilboð gerir ráð fyrir. Vísað á deild 44200-11606.
Veitu- og hafnaráð þakkar byggingarstjóra vatnstanksins fyrir kynningu á verkstað.
Veitu- og hafnaráð þakkar byggingarstjóra vatnstanksins fyrir kynningu á verkstað.