Veitu- og hafnaráð Dalvíkurbyggðar
16. fundur
10. september 2014
kl.
08:15
-
10:00
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Pétur Sigurðsson
Formaður
Anna Guðný Karlsdóttir
Aðalmaður
Kristján Hjartarson
Aðalmaður
Silja Pálsdóttir
Varamaður
Bjarni Theódór Bjarnason
Sveitarstjóri
Þorsteinn K. Björnsson
Sviðstjóri
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Þorsteinn K. Björnsson
sviðsstjóri veitu- og hafnasviðs
Dagskrá
1.
Fundargerðir Hafnasambandsins 2014.
Fyrir fundinu lá fundargerð 366. fundar stjórnar Hafnasambands Íslands sem haldinn var 15. ágúst 2014.
Lögð fram til kynningar
2.
Hafnir landsins og matvælaöryggi
Með bréfi sem dagsett er 11. október 2013 kemur fram að olíutankur er staðsettur óþarflega nærri löndunaraðstöðu á Árskógssandi.
Veitu- og hafnaráð samþykkir fyrirhugaða staðsetningu á olíutanki og óskar eftir því við Skeljung hf. að flytja hann á þann stað sem fram kemur á teikningu.
3.
Tilboð í öryggismyndavélabúnað
Öryggismál hafna hafa verið til umræðu um tíma en sú tækni sem öryggismyndavélar bjóða uppá geta tryggt betur bæði menn og skip.Fyrir fundinum liggur tilboð frá Icetronica í slíkan búnað fyrir hafnir Dalvíkurbyggðar.
Veitu- og hafnaráð þakkar tilboðið sem er áhugavert en það er ekki tímabært að fara í þessa framkvæmd á þessum tímapunkti. Ráðið felur sviðstjóra að ræða við tölvuumsjónarmann um öryggismyndavélakerfi á höfnunum.
4.
Fjárhagsáætlun 2015
Unnið hefur verið að gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2015, fyrir þá málaflokka sem heyra undir veitu- og hafnaráð. Sviðsstjóri kynnti vinnugögn í tengslum við fjárhagsáætlunargerðina ásamt tillögu að breytingu að gjaldskrám fyrir 2015.
Veitu- og hafnaráð samþykkir að gjaldskrár sem heyra undir ráðið taki breytingum byggingarvísitölu frá september 2013 til september 2014. Frávik frá þessu er ef gjaldtaka byggist á útseldum launataxta þá breytist gjaldskrá samkvæmt forsendum fjárhagsáætlunar fyrir 2015 og útselt rafmagn taki breytingum samkvæmt hækkun á gjaldskrá Rarik og Orkusölunnar.
Það skal tekið fram að unnið er að gerð nýrrar gjaldskrá fyrir Hitaveitu Dalvíkur sem kemur til með að taka mið af seldri orku í stað m3. Stefnt er að því að sú gjaldskrá taki gildi um áramótin 2014 - 2015.
Það skal tekið fram að unnið er að gerð nýrrar gjaldskrá fyrir Hitaveitu Dalvíkur sem kemur til með að taka mið af seldri orku í stað m3. Stefnt er að því að sú gjaldskrá taki gildi um áramótin 2014 - 2015.
5.
Karlsá, tenging við veitukerfi Dalvíkurbyggðar.
Jökull Bergmann sendir inn erindi f.h. Bergmanna ehf. um ósk að íbúðarhúsið að Karlsá verði tengt hita- og vatnsveitu Dalvíkurbyggðar. Fram kemur í erindi hans að fyrirhugað er að leggja rafmagn frá Hóli og vaknar þá upp sú spurning um hvort hægt sé að samnýta skurðinn fyrir allar veitur. Um er að ræða skurðlengd sem er um 1,5 km. langur.Einnig kemur fram í erindi hans ósk um endurnýjun á rotþró.
Veitu- og hafnaráð samþykkir að sett verði niður rotþró að Karlsá. Einnig er samþykkt að tengja kalt vatn og leggja rör fyrir ljósleiðara að Karlsá. Ráðið óskar eftir ferkari upplýsingum um þá þörf á heitu vatni sem óskað er eftir.