Fara í efni

Veitu- og hafnaráð Dalvíkurbyggðar

158. fundur
1. júlí 2026 kl. 08:15 - 09:50
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Helgi Einarsson formaður
Þorvaldur Eyfjörð Kristjánsson aðalmaður
Benedikt Snær Magnússon varamaður
Tryggvi K. Guðmundsson aðalmaður
Starfsmenn
Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir sveitarstjóri
Óðinn Steinsson starfsmaður
Björgvin Páll Hauksson yfirhafnarvörður
Fundargerð ritaði:
Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir sveitarstjóri
Dagskrá
1.
Veitur Dalvíkurbyggðar, yfirferð í upphafi kjörtímabils
Málsnúmer 202606180
Með fundarboði fylgdi samantekt Óðins Steinssonar sem lagt var fram á fundi veitu- og hafnaráðs þann 16.júní sl.
Lagt fram til kynningar.
2.
Trúnaðarmál
Málsnúmer 202401127
Bókað í trúnaðarmálabók.
3.
Hafnasjóður Dalvíkurbyggðar, yfirferð í upphafi kjörtímabils
Málsnúmer 202606179
Með fundarboði fylgdu tvær skýrslur, önnur um ástandsskoðun hafnamannvirkja í Eyjafirði unna af Vegagerðinni og hin um stöðugreiningu Hafnasamlags Norðurlands og Hafna Dalvíkurbyggðar, unna af HLH ráðgjöf.
Lagt fram til kynningar.
4.
Starfs- og fjárhagsáætlun 2027 og þriggja ára áætlun 2028-2030
Málsnúmer 202605002
Með fundarboði fylgdi samþykkt um fjárhagsáætlunarferli Dalvíkurbyggðar.Sveitarstjóri fer yfir tímaramma vinnu við fjárhagsáætlun.
Björgvin Páll Hauksson mætti til fundar kl. 9:15

Lagt fram til kynningar.
5.
Fjárfestingar og framkvæmdir 2026
Málsnúmer 202602011
Sveitarstjóri fer yfir fjárfestingar og framkvæmdir á árinu 2026. Yfirlit lagt fram á fundinum.
Lagt fram til kynningar.
6.
Aukinn umhverfislegur ávinningur af hreinsun skólps
Málsnúmer 202601009
Á 156.fundi veitu- og hafnaráðs þann 6.maí sl., var Stefáni H. Steindórssyni og Óðni Steinssyni falið að óska eftir tillögu að sýnatöku ásamt verðtilboði í verkefnið frá Eflu.Með fundarboði fylgdi áætlun um fráveitugreiningu fyrir Dalvíkurbyggð frá Eflu.
Veitu- og hafnaráð samþykkir samhljóða með 4 atkvæðum tilboð Eflu ehf. um fráveitugreiningu og vísar til byggðaráðs til umræðu og staðfestingar.

Björgvin Páll vék af fundi kl. 9:26
7.
Vatnstankur Upsa - Nýr tankur
Málsnúmer 202501059
Knútur Emil Jónasson frá Faglausn kemur til fundar á TEAMS kl. 9:30Farið yfir drög að erindisbréfi en á 392.fundi sveitarstjórnar þann 23.júní sl., var eftirfarandi bókað:Til máls tóku: Börkur Þór Ottósson. Helgi Einarsson. Monika Margrét Stefánsdóttir, forseti, sem leggur fram eftirfarandi tillögu: "Ég legg til að endurskipað verði í vinnuhópinn þannig að kjörnir fulltrúar í veitu- og hafnaráði skipi hópinn ásamt starfsmönnum ráðsins sem eru nú sveitarstjóri og verkefnastjóri þvert á svið. Sveitarstjóra verði falið að gera erindisbréf fyrir vinnuhópinn þar sem m.a. komi fram að Faglausn haldi áfram utan um verkefnið, sveitarstjóri skrifi fundargerðir hópsins og verkefnastjóri haldi utan um störf hópsins. Fjallað verði um verkefnið reglulega á fundum veitu- og hafnaráðs ." Fleiri tóku ekki til máls. Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda tillögu forseta sveitarstjórnar.
Knútur Emil Jónasson frá Faglausn hefur með höndum framvindu eftirlit með byggingu nýs vatnstanks ásamt yfirferð skilagreina, samræmingu við verktaka á meðan á verkinu stendur. Knútur fór yfir stöðuna á verkinu í dag ásamt því að fara yfir fundargerðir verkfunda þar sem öll samskipti við verktaka eru skráð.

Knútur vék af fundi kl. 9:45

Veitu- og hafnaráðs þakkar Knút fyrir skýra og skilmerkilega yfirferð. Samþykkt samhljóða með 4 atkvæðum.
8.
Hafnasambandsþing 2026
Málsnúmer 202601074
Hafnasambandsþing, Hafnasambands Íslands verður haldið 22. - 23.október nk., í Reykjanesbæ. Ákveða þarf fulltrúa Hafna Dalvíkurbyggðar á þingið en búið er að ganga frá gistingu fyrir tvo fulltrúa í eina nótt.
Veitu- og hafnaráð samþykkir samhljóða að formaður veitu- og hafnaráðs og sveitarstjóri/hafnarstjóri verði fulltrúar hafna Dalvíkurbyggðar á fundinum.
9.
Áform um frumvarp til laga um breytingu á hafnalögum, boð um þátttöku í samráði.
Málsnúmer 202605162
Með fundarboði fylgdi umsögn Hafnasambands Íslands, en umsagnarfrestur var til 19.júní sl.
Veitu- og hafnaráð samþykkir samhljóða með 4 atkvæðum að taka heilshugar undir umsögn Hafnasamband Íslands.