Fara í efni

Veitu- og hafnaráð Dalvíkurbyggðar

156. fundur
6. maí 2026 kl. 08:15 - 10:10
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Benedikt Snær Magnússon formaður
Þorvaldur Eyfjörð Kristjánsson varaformaður
Gunnlaugur Svansson aðalmaður
Silja Pálsdóttir aðalmaður
Sigvaldi Gunnlaugsson aðalmaður
Starfsmenn
Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir sveitarstjóri
Óðinn Steinsson
Fundargerð ritaði:
Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir sveitarstjóri
Dagskrá
1.
Hitastigulsrannsóknir Þorvaldsdal
Málsnúmer 202501060
Á 154.fundi veitu- og hafnarráðs var eftirfarandi bókað:Verkefnastjóra þvert á svið er falið að uppfæra þá samninga sem eru í gildi á milli Dalvíkurbyggðar og ÍSOR og leggja fyrir næsta fund ráðsins.Á 155.fundi veitu- og hafnaráðs var eftirfarandi bókað: Fyrir fundinum liggja drög að endurnýjuðum samningum við Ísor ásamt yfirliti yfir þá samninga sem hafa verið gerðir undanfarin ár.Veitu- og hafnaráð samþykkir samhljóða með fimm atkvæðum að Ísor ljúki sinni vinnu skv. þeim samningi um efnaeftirlit sem rann út í lok febrúar. Verkefnastjóra þvert á svið falið að leggja fyrir næsta fund drög að heildarsamningi við Ísor þar sem tekið er á vinnslueftirliti og almennri þjónustu og ráðgjöf.Með fundarboði fylgdu drög að samningum við ÍSOR
Veitu- og hafnaráð samþykkir meðfylgjandi drög að samningum við ÍSOR og vísar þeim til umræðu og afgreiðslu sveitarstjórnar.
2.
Staða vatnsveitu á Árskógssandi og Hauganesi
Málsnúmer 202602151
Þær skýrslur og greinargerðir um neysluvatnsmál Dalvíkurbyggðar sem til eru hjá ÍSOR hafa borist. Vinna er í gangi við að lesa þessi gögn og önnur sem Dalvíkurbyggð á. Þá hafði Árni Hjartarson samband og lét vita að hann fyrirhugi að ganga upp að vatnslindum í Upsa nú í maí mánuði. Mun hann verða í sambandi að þeirri könnunarferð lokinni.
Lagt fram til kynningar.
3.
Aukinn umhverfislegur ávinningur af hreinsun skólps
Málsnúmer 202601009
Undir þessum lið kom á fund veitu- og hafnaráðs Leifur Þorkelsson, heilbrigðisfulltrúi og framkvæmdarstjóri HNE, kl. 8:30 í gegnum TEAMS.
Veitu- og hafnaráð felur Stefáni H. Steindórssyni og Óðni Steinssyni að óska eftir tillögu að sýnatöku ásamt verðtilboði í verkefnið frá Eflu.
4.
Mánaðarlegar skýrslur 2026
Málsnúmer 202602002
Sveitarstjóri kynnti eftirfarandi skýrslu staða bókhalds janúar - apríl 2026 í samanburði við heimildir í fjárhagsáætlun, með þeim fyrirvara að útsendir reikningar vegna mars og apríl fyrir hitaveitu eru ekki farnir út og laun vegna apríl eru ekki bókuð, þar sem svo stutt er liðið á maí mánuð.
Lagt fram til kynningar.

Stefán og Óðinn fóru af fundi kl. 8:52

Til fundar komu Björgvin Páll Haukson, Björn Björnsson og Leifur Kr. Harðarson, starfsmenn hafna kl. 8:57.
5.
Hafnarskúr, könnun á húsnæði
Málsnúmer 202406129
Á 155.fundi veitu- og hafnaráðs var eftirfarandi bókað:Veitu- og hafnaráð samþykkir samhljóða með fimm atkvæðum að fela starfsmönnum hafnarinnar að kanna hver kostnaður væri við kaup á þeim gámaeiningum sem eru nú þegar á leigu og koma með inn á næsta fund ráðsins.Á fundinum voru lögð fram tvö tilboð:Tilboð 1 sölutilboð í nýjar 20 ft. húseiningar og notaðan stálgám.Tilboð 2 sölutilboð í einingar sem eru í leigu hjá Dalvíkurbyggð.
Veitu- og hafnarráð felur hafnarstjóra að koma með uppfært tilboð í þrjá gáma; kaupa skrifstofu gám sem við erum með í leigu, kaupa 20 ft. gám húseining 100 mm með wc og 2o ft. Jafnframt að halda áfram vinnu við niðurrif á hafnaskúr. Samþykkt samhljóða með 5 atkvæðum.

Gunnlaugur fór af fundi kl. 9:27
6.
Leiðbeiningar um afmörkun hafnasvæða
Málsnúmer 202603106
Á 155.fundi veitu- og hafnaráðs var eftirfarandi bókað:Veitu- og hafnaráð samþykkir samhljóða með fimm atkvæðum að fela starfsmönnum hafnarinnar að koma með fyrir næsta fund ráðsins tillögur að afmörkun hafnarsvæða í Dalvíkurbyggð. Innviðaráðuneytið hefur birt leiðbeiningar um afmörkun hafnarsvæða. Leiðbeiningunum er ætlað að tryggja samræmda afmörkun hafnarsvæða á Íslandi fyrir þá starfsemi sem þar fer fram.Eigendur hafna skulu senda innviðaráðuneytinu endurskoðuð ákvæði í hafnarreglugerðum um stærð og takmörk hafnarsvæðis á sjó, með hliðsjón af nýjum viðmiðum, eigi síðar en 1. janúar 2027. Fyrir fundinum liggja tillögur starfsmanna hafnanna að afmörkun hafnasvæða í Dalvíkurbyggð.
Veitu- og hafnaráð felur starfsmönnum hafnanna að vinna áfram að verkefninu.

Lagt fram til kynningar.
7.
Minnisblað vegna virðisaukaskattskyldu skemmtiferðaskipa
Málsnúmer 202604073
Með fundarboði fylgdi minnisblað frá Hafnasambandi Íslands vegna virðisaukaskatts á skemmtiferðaskip.
Lagt fram til kynningar.