Veitu- og hafnaráð Dalvíkurbyggðar
155. fundur
15. apríl 2026
kl.
08:15
-
11:40
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Benedikt Snær Magnússon
formaður
Þorvaldur Eyfjörð Kristjánsson
varaformaður
Gunnlaugur Svansson
aðalmaður
Silja Pálsdóttir
aðalmaður
Sigvaldi Gunnlaugsson
aðalmaður
Starfsmenn
Óðinn Steinsson
Fundargerð ritaði:
Óðinn Steinsson
Verkefnastjóri þvert á svið
Dagskrá
1.
Staða vatnsveitu á Árskógssandi og Hauganesi
Á fundinn undir þessum lið mætir, á Teams, Árni Hjartarson frá ÍSOR og fer yfir stöðu vatnsveitu á Árskógssandi og Hauganesi.
Veitu- og hafnaráð samþykkir samhljóða með fimm atkvæðum að fela Árna Hjartarsyni að kanna lindir í Upsa með vorinu. Verkefnastjóra þvert á svið er falið að finna gögn er varðar vatnsöflun í Þorvaldsdal sem til eru hjá vatnsveitu Dalvíkurbyggðar og Ísor.
Árni Hjartarson víkur af fundi kl. 8:45.
Árni Hjartarson víkur af fundi kl. 8:45.
2.
Hitastigulsrannsóknir Þorvaldsdal
Á 154.fundi veitu- og hafnarráðs var eftirfarandi bókað:Verkefnastjóra þvert á svið er falið að uppfæra þá samninga sem eru í gildi á milli Dalvíkurbyggðar og ÍSOR og leggja fyrir næsta fund ráðsins.Fyrir fundinum liggja drög að endurnýjuðum samningum við Ísor ásamt yfirliti yfir þá samninga sem hafa verið gerðir undanfarin ár.
Veitu- og hafnaráð samþykkir samhljóða með fimm atkvæðum að Ísor ljúki sinni vinnu skv. þeim samningi um efnaeftirlit sem rann út í lok febrúar.
Verkefnastjóra þvert á svið falið að leggja fyrir næsta fund drög að heildarsamningi við Ísor þar sem tekið er á vinnslueftirliti og almennri þjónustu og ráðgjöf.
Verkefnastjóra þvert á svið falið að leggja fyrir næsta fund drög að heildarsamningi við Ísor þar sem tekið er á vinnslueftirliti og almennri þjónustu og ráðgjöf.
3.
Aukinn umhverfislegur ávinningur af hreinsun skólps
Á 154.fundi veitu- og hafnaráðs var lagt fram til kynningar að óskað hefði verið eftir því við Eflu ehf. að útbúa minnisblað um áhrif nýrrar reglugerðar á fráveitu Dalvíkurbyggðar.Nú liggur minnisblað Eflu fyrir og er til umræðu.
Veitu- og hafnaráð samþykkir samhljóða með fimm atkvæðum að óska eftir að fulltrúi heilbrigðiseftirlits Norðurlands eystra mæti á næsta fund ráðsins til að ræða niðurstöður í minnisblaði Eflu.
Veitu- og hafnaráð samþykkir samhljóða að vísa úrbótum á útrás og skólphreinsun á Árskógssandi til næstu fjárhagsáætlunargerðar.
Veitu- og hafnaráð samþykkir samhljóða að vísa úrbótum á útrás og skólphreinsun á Árskógssandi til næstu fjárhagsáætlunargerðar.
4.
Fjárfestingar og framkvæmdir 2026
Stefán H. Steindórsson og Óðinn Steinsson leggja fram viðauka vegna fjárfestinga ársins 2026, viðaukinn mun fara fyrir byggðaráð á nk. fimmtudag til afgreiðslu.
Stefán fór yfir viðauka vegna fjárfestinga.
5.
Mánaðarlegar skýrslur 2026
Farið yfir skýrslu um rekstur hafna og veitna fyrir janúar - mars 2026.
Lagt fram til kynningar
6.
Trúnaðarmál
Bókað í trúnaðarmálabók.
7.
Niðurrif á vigtarskúr
Á 154.fundi veitu- og hafnaráðs var Björgvini Páli að hafa samband við Vogir sem tilboðsgjafa til þess að óska eftir uppfærðu tilboði þar sem þjónustan er veitt í viðhaldsferð, en ekki sér ferð.Björgvin Páll Hauksson og Leifur Harðarson starfsmenn hafnarinnar mættu til fundar kl. 10:15 og sátu undir lið 7 og 8.
Veitu- og hafnaráð samþykkir samhljóða með fimm atkvæðum að Vogir og lagnir komi í næstu þjónustuferð til að aftengja vigtunarbúnað og setja upp í stakstæðum skáp við vigtina.
8.
Hafnarskúr, könnun á húsnæði
Til umræðu staðsetning á hafnarskúr, að leigja gám frá Stólpa stóð til í eitt til tvö ár.a) á að kaupa gám/einingahús á grunn vigtarskúrs sem á að rífa og allar lagnir eru til staðar sem og bílavogin.b) ný staðsetning þá hvar?Björgvin Páll Hauksson og Leifur Harðarson véku af fundi kl. 11:30
Veitu- og hafnaráð samþykkir samhljóða með fimm atkvæðum að fela starfsmönnum hafnarinnar að kanna hver kostnaður væri við kaup á þeim gámaeiningum sem eru nú þegar á leigu og koma með inn á næsta fund ráðsins.
9.
Leiðbeiningar um afmörkun hafnasvæða
Leiðbeiningar um afmörkun hafnarsvæða
Veitu- og hafnaráð samþykkir samhljóða með fimm atkvæðum að fela starfsmönnum hafnarinnar að koma með fyrir næsta fund ráðsins tillögur að afmörkun hafnarsvæða í Dalvíkurbyggð.
10.
Umferðaröryggisáætlun Dalvíkurbyggðar - Endurskoðun 2026
Til umsagnar drög að uppfærðri Umferðaröryggisáætlun Dalvíkurbyggðar. Á 41. fundi Umhverfis- og dreifbýlisráðs, þann 13. mars sl., var drögunum vísað til umsagnar í öðrum fagráðum sveitarfélagsins.Áður tekið fyrir í byggðaráði þann 9. apríl sl. og í umhverfis- og dreifbýlisráði þann 13. mars sl.
Veitu- og hafnaráð samþykkir samhljóða með fimm atkvæðum að við vinnu við umferðaröryggisáætlun Dalvíkurbyggðar verði sérstaklega hugað að öryggismálum við ferjubryggjur m.t.t. gangandi og akandi vegfarenda.