Veitu- og hafnaráð Dalvíkurbyggðar
151. fundur
5. nóvember 2025
kl.
08:15
-
10:45
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Benedikt Snær Magnússon
formaður
Gunnar Kristinn Guðmundsson
varaformaður
Gunnlaugur Svansson
aðalmaður
Silja Pálsdóttir
aðalmaður
Sigvaldi Gunnlaugsson
aðalmaður
Starfsmenn
Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir
sveitarstjóri
Fundargerð ritaði:
Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir
sveitarstjóri
Dagskrá
1.
Hitastigulsrannsóknir Þorvaldsdal
Tekið fyrir minnisblað frá Norðurorku um stöðu jarðhitarannsókna í Þorvaldsdal í lok september sl., dags. 8.október 2025.
Veitu- og hafnaráð minnir á bókun ráðsins frá 6.febrúar sl., þar sem óskað var eftir því að fá drög að samningi við Norðurorku vegna þessa verkefnis og leggur áherslu á að ljúka þarf samningi sem fyrst. Jafnframt samþykkir veitu- og hafnaráð samhljóða með 5 atkvæðum að veita Auði Öglu Óladóttur, hjá ÍSOR, formlegt umboð til þess að gæta hagsmuna sveitarfélagsins í þessu verkefni.
2.
ISOR kynning á stöðu jarðhitarannsókna Dalvíkurbyggð
Á 131.fundi veitu- og hafnaráðs þann 10.janúar 2024 var eftirfarandi bókað:Í þriggja ára fjárhagsáætlun 2025-2027 er á árinu 2026 áætlað að bora vinnsluholu, staðsetning hefur ekki verið ákveðin. Veitu- og hafnarráð samþykkir samhljóða með 4 atkvæðum að fela veitustjóra að fá ÍSOR til þess að hefja þá vinnu að rannsaka hvar skynsamlegast er að bora fyrirhugaða vinnsluholu. Þessi bókun veitu- og hafnaráðs var staðfest á 365.fundi sveitarstjórnar þann 23.janúar 2024.Auður Agla Óladóttir, jarðfræðingur hjá ÍSOR kom til fundar á TEAMS kl. 8:30 og fór yfir stöðu jarðhitarannsókna í Dalvíkurbyggð.
Veitu- og hafnaráð samþykkir samhljóða með 5 atkvæðum að mikilvægast er fyrir Hitaveitu Dalvíkur að svera upp lögnina frá Birnunesborgum að Hamri, ráðið telur mikilvægt að fara í þessa framkvæmd áður en farið verði í að bora vinnsluholu. Erindinu er vísað til byggðaráðs og fjárhagsáætlunar 2026 til umræðu og afgreiðslu.
Auður Agla vék af fundi kl. 9:05
Auður Agla vék af fundi kl. 9:05
3.
Trúnaðarmál
Sveitarstjóri upplýsir um stöðu mála.
Lagt fram til kynningar.
4.
Djúpdælur HA-11 og ÁRS-32
Tekin fyrir kaup á djúpdælu til þess að setja niður í holu á Brimnesborgum ÁRS-32 og kostnaðaráætlun fyrir niðursetningu á henni sem og kostnaði við niðursetningu á djúpdælu í HA-11. Setja á báðar djúpdælur niður næsta vor/sumar.
Veitu- og hafnaráð samþykkir samhljóða með 5 atkvæðum að taka tilboði í niðursetningu á djúpdælu á Hamri en vísar ákvörðun um kaup á djúpdælu ásamt kostnaði við niðursetningu á Birnunesborgum til byggðaráðs. Veitu- og hafnaráð felur sveitarstjóra að kanna hvort gert er ráð fyrir kostnaði við að taka upp dælu á Birnunesborgum ásamt því að setja niður djúpdælu.
5.
Vatnstankur Upsa - Nýr tankur
Lagt fram til kynningar staða á útboði á nýjum vatnstank.
Lagt fram til kynningar.
6.
Aðalskipulag Dalvíkurbyggðar 2025-2045
Óskað er umsagnar um tillögu á vinnslustigi að nýju aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar sem er í kynningu til 11.nóvember nk. Gögn málsins má nálgast hér:https://skipulagsgatt.is/issues/2024/1264
Veitu- og hafnaráð fór yfir tillögu á vinnslustigi að nýju aðalskipulagi Dalvíkurbyggðar og er sveitarstjóra falið að senda þær ábendingar sem fram komu til skipulagsfulltrúa. Samþykkt samhljóða með 5 atkvæðum.
7.
Mánaðarlegar skýrslur 2025
Sveitarstjóri fór yfir stöðu á rekstri veitna og hafna frá janúar til september 2025.
Lagt fram til kynningar.
8.
Fjárfestingar, framkvæmdir, viðhald og skipulagsmál 2025 skv. fjárhagsáætlun
Lagt fram og farið yfir á fundinum.
Lagt fram til kynningar.
9.
Niðurrif á vigtarskúr
Á 150. fundi veitu- og hafnaráðs þann 19. september sl. var eftirfarandi bókað: "Fyrir fundinum liggja tvö verðtilboð í niðurrif ásamt förgun og að fjarlægja allt efni. Eitt verðtilboð í niðurrif. Niðurstaða : Veitu- og hafnaráð samþykkir samhljóða með 4 atkvæðum að taka tilboði Dalverks sem hljóðar upp á kr. 980.000.- án vsk. í niðurrif, förgun og allt efni verði fjarlægt, fært á lið 41210 - 4650. Verkinu skal vera lokið fyrir 1.desember."Málið var tekið fyrir á 383.fundi sveitarstjórnar þann 4.nóvember sl., og var eftirfarandi bókað:Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu veitu- og hafnaráðs og samþykkir að taka tilboði Dalverks að upphæð kr. 980.000 án vsk. Kostnaði vísað á lið 41210-4650.Tekið fyrir minnisblað frá hafnastarfsmönnum varðandi seinkun á niðurrifi á vigtarskúr.Leifur Kristinn Harðarson, hafnavörður, kom til fundar undir þessum lið kl. 10:30.
Veitu- og hafnaráð samþykkir samhljóða með 5 atkvæðum að fela hafnastarfsmönnum að ljúka niðurrifi á hafnaskúr skv. tilboði Dalverks ehf. og því verði lokið fyrir 1.desember nk.
Leifur Kristinn vék af fundi kl. 10:40
Leifur Kristinn vék af fundi kl. 10:40
10.
Fundargerðir Hafnasambands Íslands 2025
Lögð fram til kynningar fundargerð stjórnar Hafnasambands Íslands, af 475 fundi þann 10.september sl.
Formaður vekur athygli veitu- og hafnaráðs á 5.tl. fundargerðarinnar.
Lagt fram til kynningar.
Lagt fram til kynningar.