Veitu- og hafnaráð Dalvíkurbyggðar
15. fundur
14. ágúst 2014
kl.
08:00
-
11:30
í Múla á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Pétur Sigurðsson
Formaður
Óskar Óskarsson
Varaformaður
Ásdís Svanborg Jónasdóttir
Aðalmaður
Hólmfríður Guðrún Skúladóttir
Varamaður
Bjarni Theódór Bjarnason
Sveitarstjóri
Þorsteinn K. Björnsson
Sviðstjóri
Gunnþór Eyfjörð Sveinbjörnsson
Starfsmaður
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Þorsteinn K. Björnsson
sviðsstjóri veitu- og hafnasviðs
Dagskrá
1.
Efnahagsleg áfhrif íslenskra hafna
Á 38. hafnasambandsþingi sem haldið var í Vestmannaeyjum dagana 20. og 21. september 2012 var stjórn Hafnasambands Íslands falið að láta gera úttekt á efnahagslegum áhrifum íslenskra hafna og vægi þeirra í íslensku atvinnulífi. Starfsmaður hafnasambandsins hefur á seinustu mánuðum unnið í úttektinni sem var einnig MA-ritgerð hans í stjórnun og stefnumótun.Í úttektinni var stuðst við ársreikninga hafnasjóða og sveitarfélaga fyrir árið 2012 sem og gögn frá Hagstofu Íslands og Íslenska sjávarklasanum. Að auki var notast við SVÓT greiningu til að greina styrkleika, veikleika, ógnanir og tækifæri íslenskra hafna.Niðurstöðurnar sýna okkur að beint framlag íslenskra hafna var um 0,3% af landsframleiðslu en aftur á móti var óbeina framlag hafnanna mun meira eða rúmlega 28%. Mikilvægi íslenskra hafna fyrir íslenskt samfélag var og er því óumdeilt þó svo að deila megi um mikilvægi hverrar hafnar fyrir sig.Rétt er að það komi fram að um Hafnasjóð Dalvíkurbyggðar er fjallað á blaðsíðu 56 og 57 í skýrslunni.Afraksturinn má nálgast í heild sinni á heimasíðu Hafnasambands Íslands: http://hafnasamband.is/2014/06/24/efnahagsleg-ahrif-islenskra-hafna/
Lagt fram til kynningar.
2.
Hafnasambandsþing 2014
Til umræðu var móttaka gesta Hafnasambandsþigsins til Dalvíkurbyggðar. Kynntar voru hugmyndir að dagskrá kynnisferðar sem eru að koma við í Promens Dalvík, kynna hafnasvæðið og ljúka ferðinni í Menningarhúsinu Bergi þar sem Fiskidagurinn mikli verður kynntur.
Lagt fram til kynningar.
3.
Vatnssýni 2014
Undir þessum lið var mættur Alfreð Schiöth, framkvæmdastjóri Heilbrigðiseftirlits Norðurlands Eystra.Kynntar voru þær aðgerðir sem gripið hefur verið til vegna mengunar á neysluvatni sem Vatnsveitan virkjar í Krossafjalli.
Veitu- og hafnaráð samþykkir að farið verði í endurbætur á núverandi vatnsbólum í Krossafjalli. Framhaldsumræður um vatnsbólin verða teknar við gerð fjárhagsáætlun fyrir árið 2015.
4.
Ósk um tengingu á köldu vatni og rotþró
Með bréfi frá 3. júlí 2014, óskar Helgi Ásgrímsson eftir tengingu á köldu vatni og að fá leyfi til niðursetningar á rotþró, við sumarhús sem hefur fastanúmer 234-9317 í landi Skáldalækjar Ytri.
Lagt fram til kynningar.
5.
Framkvæmdir ársins 2014, tillögur
Kynntar voru fyrir ráðinu staða á framkvæmdum ársins, einnig var lagt fram 6 mánaða staða Hafnasjóðs, Hitaveitu, Vatnsveitu og Fráveitu.Til umræðu voru einnig fjárhagsáætlun ársins 2015 og þá sérstaklega fyrirhugaðar framkvæmdir þess árs.
Farið var yfir fyrirliggjandi gögn en umræðu frestað til næsta fundar.