Veitu- og hafnaráð Dalvíkurbyggðar
148. fundur
12. júní 2025
kl.
08:15
-
11:19
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Benedikt Snær Magnússon
formaður
Gunnar Kristinn Guðmundsson
varaformaður
Silja Pálsdóttir
aðalmaður
Sigvaldi Gunnlaugsson
aðalmaður
Starfsmenn
Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir
sveitarstjóri
Björgvin Páll Hauksson
yfirhafnarvörður
Fundargerð ritaði:
Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir/ Guðrún Pálína Jóhannsdóttir
sveitarstjóri/sviðsstjóri fjármála- og stjórnsýslusviðs
Dagskrá
1.
Hitastigulsrannsóknir Þorvaldsdal
Sigurveig Árnadóttir og Stefán H. Steindórsson frá Norðurorku sátu fundinn í gegnum fjarfundarbúnað, á Teams og kynntu næstu skref varðandi ÁRS-41 í Þorvaldsdal.
Veitu- og hafnaráð þakkar Sigurveigu og Stefáni fyrir góða kynningu.
Lagt fram til kynningar.
Lagt fram til kynningar.
2.
Dreifibréf í hús, fráveita
Tillögur af dreifibréfi lagðar fram.
Veitu- og hafnaráð samþykkir samhljóða með 4 atkvæðum að fela veitustjóra að óska eftir leyfi Norðurorku til þess að nota dreifibréf þeirra um óleyfilegt niðurhal.
3.
Varðar hitastig á vatni í Lækjarkoti-Hreiðarsstöðum 2
Veitustjóri leggur fram tillögu til um umræðu og afgreiðslu, um árlega niðurgreiðslu vegna lágs hitastigs á vatni til notanda.
Veitu- og hafnaráð samþykkir samhljóða með 4 atkvæðum að afla frekari upplýsinga og leggja fyrir næsta fund ráðsins.
4.
Verksamningur um þjónustu og ráðgjöf 2025
Lagður fram fram verksamningur um þjónustu og ráðgjöf frá ISOR, sem hefur það að markmiði að halda utan um ýmis tilfallandi verkefni og verkefnastjórnun sem ÍSOR hafa með höndum fyrir Hitaveitu Dalvíkur.
Veitu- og hafnaráðs samþykkir samhljóða með 4 atkvæðum fyrirliggjandi samning við ÍSOR.
5.
Birnunesborgir - mælingar
Lagður fram verksamningur við ISOR, þar sem verkefnið er að rannsaka jarðhitasvæðið á Birnunesborgum og staðsetja næstu vinnsluholu á svæðinu fyrir Hitaveitu Dalvíkur.
Veitu- og hafnaráðs samþykkir samhljóða með 4 atkvæðum fyrirliggjandi samning við ÍSOR.
6.
Samningur um mælaleigu, þjónustu og notkunarmælingar orkusölumæla
Formaður upplýsti fundarmenn um stöðu mála.
Lagt fram til kynningar
7.
Vatnstankur Upsa - Nýr tankur
Fyrir fundinum liggur tillöguteikning og afstöðumynd, auk þess verður lögð fram á fundinum frumkostnaðaráætlun.
Veitu- og hafnaráðs samþykkir með 4 atkvæðum að leggja til við sveitarstjórn að skipaður verði vinnuhópur til að halda utan um þetta verkefni og í honum eigi sæti:
Benedikt Snær Magnússon, formaður veitu- og hafnaráðs.
Gunnar Kristinn Guðmundsson, varaformaður.
Veitustjóri.
Fulltrúi úr byggðaráði.
Benedikt Snær Magnússon, formaður veitu- og hafnaráðs.
Gunnar Kristinn Guðmundsson, varaformaður.
Veitustjóri.
Fulltrúi úr byggðaráði.
8.
Tengingar veitna vegna nýrra hverfa skv skipulagi
Nýtt mál sett á dagskrá vegna komandi áætlunargerðar við fjárhags- og framkvæmdaáætlun.
Veitu- og hafnaráð samþykkir samhljóða með 4 atkvæðum að setja þetta verkefni á fjárhagsáætlun næsta árs, sjá mál 202505063 og felur veitustjóra hefja skoðun á tengimöguleikum inn á kerfið.
9.
Bréf frá Fiskistofu vegna strandveiða
Lagt fram bréf frá Fiskistofu er varðar skráningu aflaupplýsinga og strandveiða, þar sem vakin er athygli á að með reglugerð nr. 385/2025, um breytingu á reglugerð 460/2024, um strandveiðar er hafnarstarfsmönnum gert að tengja saman aflaskráningu við það auðkenni sem kemur þegar afladagbók er skilað.
Lagt fram til kynningar.
10.
Endurbygging Norðurgarðs, fjárveiting 2022-2025 - HD017
Snjóbræðsla undir þekju við endurbyggingu Norðurgarðs er ekki styrkhæf af Hafnabótasjóði, taka þarf ákvörðun um hvort fara eigi í verkið.
Veitu- og hafnaráð samþykkir samhljóða með 5 atkvæðum að setja snjóbræðslu undir 5,6 metra af nýju þekjunni á Norðurgarði. Verkefnið rúmast innan fjárhagsáætlunar og er vísað á lið 11551 - 42200.
11.
Starfs- og fjárhagsáætlun 2026-2029
Tekið fyrir erindi frá Byggðaráði 1147 fundi. Þar var til umræðu vinna við starfs- og fjárhagsáætlun Dalvíkurbyggðar 2026-2029. Samþykkt var fjárhagsáætlunaferli Dalvíkurbyggðar. Fyrstu skref eru: a) Umræður um hugmyndir að verkefnum, framkvæmdum, áherslum, forgangsröðun og stefnu. b) Umræður um tillögur að verklagi, fjárhagsleg markmið, áhættumat og tímaramma. c) Ákvörðun um markmið fjárhagsáætlunar og stefna sett. d) Tillaga að auglýsingu vegna erinda. e) Rafrænar kannanir. f) Tímarammi fjárhagsáætlunar. g) Fundur sveitarstjóra og stjórnenda fagsviða með kjörnum fulltrúum til að fara yfir verkefni, stefnu og áherslur í fjárhagsáætlunarvinnunni. h) Þjónustustefnan. Til umræðu ofangreint.Á 1148.fundi byggðaráðs var eftirfarandi bókað:a) Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum fyrirliggjandi tillögu að auglýsingu. b) Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum fyrirliggjandi tillögu að tímaramma með þeirri breytingu að seinni fundur með kjörnum fulltrúum verði fimmtudaginn 28.8.2025. c) Á fundinum var unnið áfram í vinnuskjali byggðaráðs.
Lagt fram til kynningar.
12.
Mánaðarlegar skýrslur 2025
Með fundarboði veitu- og hafnaráðs fylgdi skýrsla janúar - maí 2025 sem sýnir stöðu bókhalds í samanburði við heimildir í fjárhagsáætlun.
Á fundinum var farið yfir ofangreint og lagt fram til kynningar.
13.
Fjárfestingar, framkvæmdir, viðhald og skipulagsmál 2025 skv. fjárhagsáætlun
Farið yfir fjárfestingar og framkvæmdir á árinu og stöðu þeirra.
Ofangreint til umræðu á fundinum og lagt fram til kynningar.
14.
Samgönguáætlun 2026-2030, endurskoðun áætlunar - Hafnaframkvæmdir og sjóvarnir.
Tekið fyrir erindi sem var á dagskrá síðasta fundar, búið er að framlengja umsóknarfrest til 1.ágúst nk.Vegagerðin skal samkvæmt hafnalögum nr. 61/2003 og lögum um sjóvarnir nr.28/1997 vinna tillögu að áætlun um hafnarframkvæmdir og sjóvarnir með kostnaðarþátttöku ríkissjóðs sbr. lög nr. 33/2008 um samgönguáætlun. Nú er komið að því að hefja undirbúning að næstu fimm ára áætlun, þ.e.samgönguáætlun 2026 - 2030.
Veitu- og hafnaráð samþykkir samhljóða með 4 atkvæðum að fela sveitarstjóra að sækja um eftirfarandi verkefni í samgönguáætlun:
a) Dýpkun í Dalvíkurhöfn niður í 9 metra - við Austurgarð.
b) Landfylling með því að lengja Austurgarð í norður.
a) Dýpkun í Dalvíkurhöfn niður í 9 metra - við Austurgarð.
b) Landfylling með því að lengja Austurgarð í norður.
15.
Hafnarskúr, könnun á húsnæði
Yfirhafnarvörður fer yfir stöðu máls.Fram kom að leyfi liggur fyrir frá Heilbrigðiseftirlitinu til niðurrifs og framkvæmdaleyfi frá Skipulagsráði. Næsta skref er að fá tilboð í niðurrif á skúrnum.
Lagt fram til kynningar.
16.
10 feta gámur fyrir togaralandanir
Yfirhafnarvörður leggur málið fram til kynningar.Til umræðu ofangreint og þeir möguleikar sem eru í stöðunni.
Vísað áfram til skoðunar við vinnu við fjárhagsáætlun 2026-2029.
17.
Rafmagn í verbúðum
Nýtt mál sett á dagskrá vegna komandi áætlunargerðar við fjárhags- og framkvæmdaáætlun.Yfirhafnavörður gerði grein fyrir ástæðu þess að rafmagnskostnaður vegna verbúða er hærri en ætti að vera.
a) Veitu- og hafnaráð samþykkir samhljóða með 4 atkvæðum að fela yfirhafnaverði að koma stórnotendum rafmagns í verbúðum á sérmæli.
b) Veitu- og hafnaráð samþykkir samhljóða með 4 atkvæðum að leggja til við byggðaráð að verbúðirnar fari úr eigu og rekstri Hafnasjóðs/sveitarfélagsins.
b) Veitu- og hafnaráð samþykkir samhljóða með 4 atkvæðum að leggja til við byggðaráð að verbúðirnar fari úr eigu og rekstri Hafnasjóðs/sveitarfélagsins.
18.
Niðurstaða útboða; Vegagerðin
Lagt fram til kynningar niðurstaða útboða, annarsvegar Hauganes, hækkun grjótvarnar 2025 og hins vegar Norðurgarður, steypt þekja og lagnir.
Lagt fram til kynningar.