Fara í efni

Veitu- og hafnaráð Dalvíkurbyggðar

147. fundur
7. maí 2025 kl. 08:15 - 10:55
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Benedikt Snær Magnússon formaður
Helgi Einarsson varamaður
Silja Pálsdóttir aðalmaður
Gunnlaugur Svansson aðalmaður
Kristinn Bogi Antonsson varamaður
Starfsmenn
Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir sveitarstjóri
Halla Dögg Káradóttir veitustjóri
Björgvin Páll Hauksson yfirhafnarvörður
Fundargerð ritaði:
Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir sveitarstjóri
Dagskrá
1.
Bakkavörn - vatnslögn í á - Bakki
Málsnúmer 202503019
Veitustjóri kynnir niðurstöður mælinga og óskar eftir áframhaldandi vinnslu verkefnis.
Veitu- og hafnaráð samþykkir samhljóða með fimm atkvæðum að áfram verði unnið og kostnaðaráætlun fyrir verkinu verður lögð fram þegar hún liggur fyrir.
2.
Styrkur til kaupa á varmadælum vegna húshitunar.
Málsnúmer 202503146
Yfirferð á reglum.
Veitu- og hafnaráð samþykkir samhljóða með fimm atkvæðum hjálagðar reglur um styrk til kaupa á varmadælum og vísar málinu til afgreiðslu og umfjöllunar í sveitarstjórn.
3.
Framtíðasýn - Hauganes - Árskógsandur - Dalvík
Málsnúmer 202409121
Veitustjóri fór yfir verksamning vegna myndunar fráveitulagna á Dalvík (1.áfangi) ásamt stöðu verkefnisins í heild.
Veitu- og hafnaráð samþykkir samhljóða með 5 atkvæðum framlagðan verksamning við Verkval ehf.
4.
Vatnstankur Upsa - Nýr tankur
Málsnúmer 202501059
Veitustjóri kynnir stöðu verkefnis.
Lagt fram til kynningar.
5.
Hitastigulsrannsóknir Þorvaldsdal
Málsnúmer 202501060
Veitustjóri óskar eftir niðurstöðu varðandi samstarf Norðurorku varðandi frekari rannsóknir í Þorvaldsdal.
Veitu- og hafnaráð samþykkir samhljóða með 5 atkvæðum að fela veitustjóra að útbúa viðauka við fjárhagsáætlun 2025 að upphæð kr. 11.000.000 á deild 48200 - lykil 11860, sérfræðiþjónusta v/nýframkv. m/vsk og að viðaukanum verði mætt með lækkun á handbæru fé.
Vísað til umfjöllunar og afgreiðslu í sveitarstjórn.

Veitu- og hafnaráð óskar eftir fundi með Norðurorku um umrætt verkefni sem allra fyrst. Samþykkt samhljóða með 5 atkvæðum.
6.
Djúpdæla
Málsnúmer 202407047
Staða kynnt á verkefni varðandi niðursetningu á djúpdælu í holu HA-11, Hamri.
Lagt fram til kynningar.
7.
Birnunesborgir - mælingar
Málsnúmer 202505014
Veitustjóri óskar eftir niðurstöðu varðandi áframhaldandi skoðun á niðursetningu djúpdælu í ÁRS-32 til að flýta fyrir rannsóknum á niðurdrætti.
Veitu- og hafnaráð samþykkir samhljóða með fimm atkvæðum að falla frá einhverjum af minni verkefnum ársins 2025 til þess að hægt verði að setja niður djúpdælu í ÁRS-32 á þessu ári.
8.
Yfirlit Siglingaverndar
Málsnúmer 202504060
Lagt fram til kynningar yfirlit siglingaverndar á Íslandi. Yfirlitið er ætlað Samgöngustofu, verndarfulltrúum eftirlitsskyldra aðila og öðrum þeim sem skyldur hafa vegna siglingaverndar á Íslandi.
Lagt fram til kynningar.
9.
Hafnafundur 2025 - gisting
Málsnúmer 202504096
Veitu- og hafnaráð samþykkir samhljóða með 5 atkvæðum að Benedikt Snær Magnússon og Björgvin Páll Hauksson verði fulltrúar Dalvíkurhafna á fundinum.
10.
Fundargerðir Hafnasambands Íslands 2025
Málsnúmer 202502012
Lagðar fram til kynningar fundargerðir stjórnar Hafnasambands Íslands, af 470.fundi þann 19.febrúar sl., 471.fundi þann 28.mars sl. og 472.fundi þann 28.apríl sl.
Lagt fram til kynningar.
11.
Mánaðarlegar skýrslur 2025
Málsnúmer 202502075
Sveitastjóri og veitustjóri fara yfir mánaðarlegar skýrslur.

Lagt fram til kynningar.
12.
Fjárfestingar, framkvæmdir, viðhald og skipulagsmál 2025 skv. fjárhagsáætlun
Málsnúmer 202501021
Veitustjóri fer yfir stöðu framkvæmda veitna.
Veitustjóri og yfirhafnavörður fóru yfir stöðu á fjárfestingum og framkvæmdum ársins.

Lagt fram til kynningar.
13.
Samgönguáætlun 2026-2030, endurskoðun áætlunar - Hafnaframkvæmdir og sjóvarnir.
Málsnúmer 202505027
Vegagerðin skal samkvæmt hafnalögum nr. 61/2003 og lögum um sjóvarnir nr.28/1997 vinna tillögu að áætlun um hafnarframkvæmdir og sjóvarnir með kostnaðarþátttöku ríkissjóðs sbr. lög nr. 33/2008 um samgönguáætlun. Nú er komið að því að hefja undirbúning að næstu fimm ára áætlun, þ.e.samgönguáætlun 2026 - 2030.Umsókn um ríkisframlög til verkefna á næsta áætlunartímabili, sem talin eru upp í bréfi Vegagerðarinnar, skal senda til Vegagerðarinnar fyrir 20. júní 2025.
Lagt fram til kynningar.
14.
Verksamningur um þjónustu og ráðgjöf 2025
Málsnúmer 202505023
Veitustjóri kynnir verksamning um þjónustu og ráðgjöf á árinu 2025.
Veitustjóra er falið að uppfæra fyrirliggjandi samning og leggja fyrir næsta fund veitu- og hafnaráðs. Samþykkt með 4 atkvæðum.
15.
Ársreikningur Hafnasambands Íslands 2024
Málsnúmer 202505030
Tekin er fyrir ársreikningur Hafnasambands Íslands fyrir árið 2024. Samkvæmt 5. mgr. 5. gr. laga Hafnasambands Íslands skal stjórn samþykkja ársreikninga eftir að þeir hafa verið kynntir aðildarhöfnunum og yfirfarnir að skoðunarmönnum.Athugasemdir, ef einhverjar eru, sendist vinsamlega til undirritaðs fyrir 22. maí nk.
Lagt fram til kynningar.