Veitu- og hafnaráð Dalvíkurbyggðar
146. fundur
2. apríl 2025
kl.
08:19
-
10:56
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Benedikt Snær Magnússon
formaður
Gunnar Kristinn Guðmundsson
varaformaður
Silja Pálsdóttir
aðalmaður
Gunnlaugur Svansson
aðalmaður
Starfsmenn
Halla Dögg Káradóttir
veitustjóri
Björgvin Páll Hauksson
yfirhafnarvörður
Fundargerð ritaði:
Halla Dögg Káradóttir
veitustjóri
Dagskrá
1.
Vatnstankur Upsa - Nýr tankur
Almennt fara yfir stöðuna á verkefninu.
Framkvæmdaleyfi fyrir uppbyggingu vegar er komið og hægt að fara i verðkönnun.
2.
Verksamningur um efnaeftirlit með vinnslusvæðum Hitaveitu Dalvíkur
Frá ÍSOR
Veitu- og hafnaráð samþykkir framlagðan verksamning um efnaeftirlit með vinnslusvæðum.
3.
Samningur um mælaleigu, þjónustu og notkunarmælingar orkusölumæla
Niðurstaða lögmanns á yfirferð samnings kynnt.
Veitu- og hafnaráð samþykkir með fjórum atkvæðum að samningnum verði sagt upp við Frumherja. Hafin verði vinna við að setja upp eigin mæla frá Hitaveitu Dalvíkur.
4.
Lagning bráðabirgðalagna hitaveitu
Fer fyrir skipulagsráð þann 9.apríl, athuga hvort þarf að samræma afgreiðslu.
Lagt fram til kynningar.
5.
Styrkur til kaupa á varmadælum vegna húshitunar.
Veitu- og hafnaráð samþykkir með þremur atkvæðum að leggja til við sveitarstjórn að veittur verði 500.000kr styrkur vegna framkvæmda við varmadælur á lögbýlum þar sem föst búseta hefur verið í 6 mánuði. Styrkur er veittur vegna framkvæmda frá áramótum 2024/2025. Nánar er kveðið á um skilyrði í reglum um styrki vegna varmadæla í Dalvíkurbyggð. Styrkir verða greiddir af kostnaðarliði 47310-9110.
Veitustjóra er falið að halda íbúafund sem fyrst fyrir íbúa Dalvíkurbyggðar. Yfirskrift fundarins verður „varmadælur á mannamáli“. Á þeim fundi verður erindi sem útskýrir hvernig varmadælur virka, hvaða dælur henta best og við hvaða aðstæður, auk þess sem útskýrt verður hvaða styrkir eru í boði við framkvæmdir á varmadælum.
Veitu og hafnaráð samþykkir með þremur atkvæðum að leggja til við sveitarstjórn að styrkur vegna jöfnunar húshitunarkostnaðar sem hefur verið greiddur út í desember undanfarin ár, verði greiddur til lögbýla í síðasta skipti fyrir árið 2025 og styrkur vegna uppsetningu varmadælna komi í staðinn.

6.
Hafnarskúr, könnun á húsnæði
Yfirhafnavörður fer yfir stöðuna á verkefninu.
Veitu- og hafnaráð samþykkir með fjórum atkvæðum að sótt verði um leyfi fyrir niðurrifi hafnarskúrs (F2155363) og gerð verði verðkönnun vegna niðurrifsins.
7.
Mánaðarlegar skýrslur 2025
Veitu- og hafnaráð leggur til að yfirhafnarvörður yfirfari kaup og sölu á rafmagni.
8.
Fjárfestingar, framkvæmdir, viðhald og skipulagsmál 2025 skv. fjárhagsáætlun
Farið yfir fjárfestingar og framkvæmdir veitna og hafna á fundinum.
Veitustjóri og yfirhafnarvörður fara yfir stöðu framkvæmda.