Fara í efni

Veitu- og hafnaráð Dalvíkurbyggðar

145. fundur
5. mars 2025 kl. 08:15 - 11:50
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Benedikt Snær Magnússon formaður
Gunnar Kristinn Guðmundsson varaformaður
Silja Pálsdóttir aðalmaður
Gunnlaugur Svansson aðalmaður
Starfsmenn
Halla Dögg Káradóttir veitustjóri
Fundargerð ritaði:
Halla Dögg Káradóttir Veitustjóri
Dagskrá
1.
Norðurorka - Kynning jarðhitaleitar
Málsnúmer 202502081
Sigurveig Árnadóttir verkefnastjóri rannsókna og viðhalds á Veitu og tæknisviði Norðurorku kynnti verkefnið.
Veitu- og hafnarráð þakkar Sigurveigu Árnadóttur fyrir greinargóða kynningu á stöðu jarðhitaleitar í Þorvaldsdal. Vegna áhuga á virkjunarframkvæmdum í Þorvaldsdal þarf að huga að frekari rannsóknum í dalnum, áður og ef til framkvæmda kemur í dalnum.

2.
Eimur - kynning á starfsemi og verkefnum
Málsnúmer 202501135
Ottó Eíasson framkvæmdastjóri Eims kynnti starfsemi og verkefni fyrirtækisins.
Veitu og hafnaráð þakkar Óttó Elísassyni fyrir góða kynningu á starfssemi Eims.

3.
ÍSOR kynning á stöðu jarðhitarannsókna Dalvíkurbyggð
Málsnúmer 202304061
Veitustjóri kynnir gögn frá ÍSOR varðandi frekari vatnsöflun Dalvíkurbyggðar.
Lagt fram til kynningar.
4.
Íslandsturnar - Vatnstankur - Brimnesborgir
Málsnúmer 202502011
Íslandsturnar óska eftir leyfi og leigu á aðstöðu fyrir loftnet á vatnstanki við Brimnesborgir.
Veitu og hafnarráð samþykkir með 4 atkvæðum leigusamning og viðaukasamning vegna búnaðar frá Nova á þak vatnstanks við Brimnesborgir, með þeim breytingum að í viðaukasamningi í grein 6.4 sé talað um samningsaðila en ekki leigutaka, að í leigusamningi sé talað um töfluskáp í stað 2-4fm og að hvorugur samningurinn sé framseljanlegur. Veitustjóra er falið að fá bæjarlögmann til að koma breytingum inn í samningana og lesa þá yfir, áður en til samþykktar sveitarstjórnar kemur.
Samþykkt með 4 atkvæðum.
5.
Varnargarður í á við Bakka
Málsnúmer 202305017
Veitustjóri leggur til að gerðar verði ráðstafanir til að verja vatnslögn yfir á í samráði við landeigendur ef lögn telst vera í hættu.
Veitustjóra er falið að komast að því hver sverleikinn á lögninni er yfir ánna og hver dýptin niður á lögnina er. Veitustjóri kemur með upplýsingar á næsta fund ráðsins.
Samþykkt með 3 atkvæðum


6.
Staða verkefna
Málsnúmer 202501021
Veitustjóri fer yfir stöðu verkefna.
Veitustjóra er falið að fara yfir verkefnalista hitaveitunnar, og meta hvort hægt sé að ráðast í öll verkefni á þessu ári, og þá hvort hægt sé að fresta hluta af verkefnum, eins og t.d. nýju dæluhúsi á Hamri og nýta frekar fjármuni í að klára að setja djúpdælu á Birnunesborgir, svo hægt sé í framhaldinu að fá gögn um hvað holan getur gefið af sér.
Samþykkt með 3 atkvæðum.