Veitu- og hafnaráð Dalvíkurbyggðar
144. fundur
5. febrúar 2025
kl.
08:15
-
11:00
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Benedikt Snær Magnússon
formaður
Gunnar Kristinn Guðmundsson
varaformaður
Silja Pálsdóttir
aðalmaður
Gunnlaugur Svansson
aðalmaður
Sigvaldi Gunnlaugsson
aðalmaður
Starfsmenn
Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir
sveitarstjóri
Halla Dögg Káradóttir
veitustjóri
Björgvin Páll Hauksson
embættismaður
Fundargerð ritaði:
Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir
sveitarstjóri
Dagskrá
1.
Skúr við Brimnesá
Veitustjóri kynnti málið.
Veitu- og hafnaráð samþykkir samhljóða með 5 atkvæðum að skilgreina lóð og skrá mannvirkið í fasteignaskrá HMS.
2.
Varmaskiptir - afgreiðsla reiknings
Veitustjóri óskar eftir afgreiðslu fundarmanna á reikningi.
Veitu- og hafnaráð samþykkir með 5 atkvæðum að reikningur nr. 2024-0004080 dags. 4.10.2024 verði felldur niður vegna bilunar í búnaði.
3.
Lækjarkot_Hreiðarstaðarkot 2
Veitu- og hafnaráð felur veitustjóra að vinna málið áfram.
Lagt fram til kynningar.
Lagt fram til kynningar.
4.
Hitastigulsrannsóknir Þorvaldsdal
Veitu- og hafnaráð samþykkir samhljóða með 5 atkvæðum að fá drög að samningi við Norðurorku á næsta fund ráðsins.
5.
Endurbygging Norðurgarðs, fjárveiting 2022-2025 - HD017
Fannar Gíslason og Hrafnkell Már Stefánsson mættu til fundar kl. 9:00 á Teams og fóru yfir stöðuna á verkinu.
Tekin var ákvörðun um að setja löndunarkrana niður á Norðurgarð til bráðabirgða þar sem gert er ráð fyrir að verklok verði ekki fyrr en í maí - júní.
Samþykkt samhljóða með 5 atkvæðum.
Samþykkt samhljóða með 5 atkvæðum.
6.
Rekstur fiskeldisstöðvar á Hauganesi
Forsvarsmenn Ocean EcoFarm ehf. munu kynna áform sín á fundi skipulagsráðs í næstu viku þann 12.febrúar nk., byggðaráð er einnig boðað til fundarins. Veitu- og hafnaráð beinir þeim tilmælum til byggðráðs að hafa þarf í huga gjaldtöku á sjó. Samþykkt samhljóða með 5 atkvæðum.
7.
Mánaðarlegar skýrslur 2024
Lagt fram til kynningar yfirlit yfir rekstur hafna og veitna Dalvíkurbyggðar janúar - desember 2024.
Sveitarstjóri fór rekstur hafna og veitustjóri yfir rekstur veitna Dalvíkurbyggðar.
Lagt fram til kynningar.
Lagt fram til kynningar.
8.
Fjárfestingar, framkvæmdir, viðhald og skipulagsmál 2025 skv. fjárhagsáætlun
Sveitarstjóri og veitustjóri fóru yfir fjárfestingar og framkvæmdir ársins 2025.
Sveitarstjóri og veitustjóri fóru yfir þær fjárfestingar sem eru á Fjárhagsáætlun Dalvíkurbyggðar árin 2025-2028, á höfnum og á veitum.
Lagt fram til kynningar.
Lagt fram til kynningar.
9.
Opnunartími hafna Dalvíkurbyggðar vegna styttingu vinnuvikunnar
Í kjarasamningi Kjalar stéttarfélags og Sambands íslenskra sveitarfélaga er kveðið á um styttri vinnuviku starfsfólks í fullu starfi sem er 36 virkar vinnustundir. Til upplýsinga er lögð fram tillaga að útfærslu þessa hjá starfsmönnum í ljósi opunartíma hafnanna.
Veitu- og hafnaráð samþykkir samhljóða með 5 atkvæðum að halda opnunartíma hafna Dalvíkur óbreyttum. Opnunartíminn er frá kl. 8:00 - 17:00.
10.
Ný flotbryggja í Dalvíkurhöfn - HD011
Yfirhafnavörður Björgvin Páll Hauksson fór yfir þau gögn sem liggja fyrir vegna kaupa á nýrri flotbryggju á Dalvík.
Veitu- og hafnaráð samþykkir samhljóða með 5 atkvæðum að leggja til við sveitarstjórn að kaupa 2 sinnum 20 metra langar og 3 metra breiðar, steyptar flotbryggjur með fríborði 0,5 metra, frá Köfunarþjónustunni. Sveitarstjóra er falið að útbúa viðauka vegna verkefnisins og leggja fyrir byggðaráð.
11.
Hafnarskúr, könnun á húsnæði
Yfirhafnavörður Björgvin Páll Hauksson fór yfir stöðu mála. Með fundarboði var lagt fram sölutilboð og teikningar af gámaeiningum frá Stólpi Gámar.
Lagt fram til kynningar.
12.
Fundargerðir Hafnasamand Íslands 2025
Teknar fyrir fundagerðir Hafnasambands Íslands af 468.fundi, sem haldinn var 6.desember 2024 og fundargerð 469.fundar, sem haldinn var 24.janúar 2025.
Lagt fram til kynningar.