Fara í efni

Veitu- og hafnaráð Dalvíkurbyggðar

143. fundur
8. janúar 2025 kl. 08:15 - 10:00
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Gunnar Kristinn Guðmundsson varamaður
Benedikt Snær Magnússon varaformaður
Gunnlaugur Svansson aðalmaður
Silja Pálsdóttir aðalmaður
Sigvaldi Gunnlaugsson aðalmaður
Starfsmenn
Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir sveitarstjóri
Björgvin Páll Hauksson
Halla Dögg Káradóttir veitustjóri
Fundargerð ritaði:
Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir sveitarstjóri
Dagskrá
1.
Brekkusel - umsókn um heimlagnir
Málsnúmer 202409002
Veitustjóri fór yfir stöðu mála í Brekkuseli.
Lagt fram til kynningar.
2.
Samningur um mælaleigu, þjónustu og notkunarmælingar orkusölumæla
Málsnúmer 201303116
Á 140.fundi veitu- og hafnaráðs var eftirfarandi bókað:Veitustjóra falið að leita lögfræðiálits á lengd samningsins með uppsögn hans í huga og hvort Hitaveita Dalvíkur geti sett sína mæla í hús. Samþykkt samhljóða með 4 atkvæðum.
Lögmaður sveitarfélagsins er að vinna að málinu, beðið er eftir svari frá honum.
Lagt fram til kynningar.
3.
Rekstur fiskeldisstöðvar á Hauganesi
Málsnúmer 202303130
Veitu- og hafnaráð felur veitustjóra að vinna að gjaldskrá fyrir jarðsjó.
Samþykkt samhljóða með 5 atkvæðum.
4.
Þrýstingur á köldu vatni Árskógssandur
Málsnúmer 202402156
Á 133.fundi veitu- og hafnaráðs þann 6.mars. 2024 var eftirfarandi bókað:Veitustjóri fór yfir stöðu mála varðandi kalt vatn á Árskógssandi.Lagt fram til kynningar.Á 134.fundi veitu- og hafnaráðs þann 11.apríl 2024 var eftirfarandi bókað:Veitustjóri fóru yfir stöðu mála varðandi kalt vatn á Árskógssandi, stefnt er á endurnýjun á hluta dælulagnar og tengingu brunahana milli Dalvíkur og Árskógssands. Lagt fram til kynningar.
Veitu- og hafnaráð óskar eftir kostnaðaráætlun á sverun lagnar á milli Árskógssands og Dalvíkur.
Samþykkt samhljóða með 5 atkvæðum.
5.
Jöfnun húshitunarkostnaðar 2024
Málsnúmer 202411001
Rætt um endurskoðun á reglum um jöfnun húshitunarkostnaðar með tilliti til styrkja vegna varmadælna.
Veitu- og hafnaráð mun vinna málið áfram.
Samþykkt samhljóða með 5 atkvæðum.
6.
Endurbygging Norðurgarðs, fjárveiting 2022-2025 - HD017
Málsnúmer 202110045
Fyrir fundinum liggur fundargerð verkfundar sem haldinn var 13.desember 2024.
Yfirhafnarvörður fór yfir stöðu á verkinu. Veitu- og hafnaráð leggur til að löndunarkranar á Norðurgarði færist ekki meira en 5 metra austur frá fyrri staðsetningu.
Samþykkt samhljóða með 5 atkvæðum.
7.
Hafnarskúr, könnun á húsnæði
Málsnúmer 202406129
Yfirhafnavörður er í leit að nýju bráðabirgðahúsnæði fyrir starfsmenn hafnanna.
Lagt fram til kynningar.
8.
Sérstakt strandveiðigjald hafna 2024
Málsnúmer 202412062
Sumarið 2024 innheimti Fiskistofa sérstakt gjald af strandveiðibátum sem greiða á hverri höfn í hlutfalli viðkomandi hafnar í heildarafla sem fenginn var við strandveiðar tímabilið 01.05.24 - 31.08.24.Í hlut hafna Dalvíkurbyggðar kom:Dalvík kr. 649.892.-Árskógssandur kr. 0.-Hauganes kr. 11.916.-
Lagt fram til kynningar.
9.
Umferðaröryggisáætlun Dalvíkurbyggðar
Málsnúmer 201501114
Endurskoðun umferðaröryggisáætlunar Dalvíkurbyggðar hófst árið 2019 en var aldrei lokið.Á 133.fundi veitu- og hafnaráðs, þann 6.mars 2024 var eftirfarandi bókað:Veitu- og hafnaráð leggur áherslu á að hafin verði endurskoðun á umferðaröryggisáætlun Dalvíkurbyggðar 2018-2022, sem samþykkt var í desember 2017. Jafnframt leggur veitu- og hafnaráðs áherslu á að greindar verði hættur á höfnum Dalvíkurbyggðar og tekið verði tillit til þeirra við endurskoðun áætlunarinnar. Samþykkt samhljóða með 3 atkævðum.
Veitu- og hafnaráð vísar Umferðaröyggisáætlun Dalvíkurbyggðar til umhverfis- og dreifbýlisráðs til vinnslu, sem hefur málaflokkinn á sínu forræði.
Samþykkt samhljóða með 5 atkvæðum.
10.
Heimsókn í stofnanir 2025
Málsnúmer 202501019
Í lok fundar var farið í skoðunarferð á Norðurgarð og framkvæmdir endurbyggingar hans skoðaðar.
Veitu- og hafnaráð leggur til að vigtarkranar á Norðurgarði verði færðir, þó ekki meira en um 5 metra austur frá núverandi staðsetningu.
Samþykkt samhljóða með 5 atkvæðum.