Veitu- og hafnaráð Dalvíkurbyggðar
141. fundur
20. nóvember 2024
kl.
08:15
-
10:04
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Júlíus Magnússon
varamaður
Benedikt Snær Magnússon
varaformaður
Gunnlaugur Svansson
aðalmaður
Silja Pálsdóttir
aðalmaður
Sigvaldi Gunnlaugsson
aðalmaður
Starfsmenn
Halla Dögg Káradóttir
veitustjóri
Fundargerð ritaði:
Halla Dögg Káradóttir
Veitustjóri
Dagskrá
1.
Dreifibréf í hús, fráveita
Hvað má EKKI fara í klósettið
Veitu-og hafnaráð leggur til að farið verði í almennt auglýsingaátak veitna. Veitustjóra er falið að vinna málið með upplýsingafulltrúa Dalvíkurbyggðar. Samþykkt samhljóða með 5 atkvæðum.
Til er efni á netsíðu klosettvinir.is
Til er efni á netsíðu klosettvinir.is
2.
Færsla á inntaki, Öldugata 2, 620 Dalvík
Veitu- og hafnaráð samþykkir umsóknina með fjórum greiddum atkvæðum.
3.
Endurnýjun og færsla inntaka, Miðkot, 621 Dalvík
Sótt hefur verið um niðurrif á hluta húss sem er ónýtur (Miðkot), í framhaldi þarf að færa inntak fyrir heitt vatn.
Veitu- og hafnaráð samþykkir með fimm atkvæðum umsókn um færslu inntaks.
4.
Umsókn um heimlögn,Brekkusel, 620 Dalvík
Umsókn um heimlagnir heitt/kalt og fráveitu við nýtt aðstöðuhús við Brekkusel. Verið er að skoða bestu lausnir lagnaleiðar. Tillaga er að leið er í máli.
Veitu- og hafnaráð samþykkir heimlagnir með 5 greiddum atkvæðum og vill jafnframt að samkomulag verði gert við Skíðafélagið um eignarhald veitna á lögnum að Brekkuseli.
5.
Umsókn um heimlögn, Bjarney Jóhannsdóttir
Umsókn um inntök í sumarbústað vestan við Ólafsfjarðarveg, nærri Bessastöðum, á ræktunarlandi.
Veitu- og hafnaráð samþykkir umsóknir um heimlagnir og rotþró samkvæmt núgildandi gjaldskrám með fimm atkvæðum.
6.
Framtíðasýn - Hauganes
Farið yfir stöðu fráveitu á Hauganesi.
Veitustjóri fer yfir stöðu fráveitumála á Hauganesi. Búið er að ástandskoða allar fráveitulagnir og meta ástand þeirra. Ónýtar lagnir verða endurnýjaðar.
7.
Umsókn um heimlögn Hringsholt, 621 Dalvík_Þorsteinn Egilsson
Veitu- og hafnaráð samþykkir umsókn með fimm greiddum atkvæðum og felur veitustjóra að athuga með hliðtengingu á lögn.
8.
Umsókn um heimlögn, Syðra Holt, 621 Dalvík
Veitu- og hafnaráð samþykkir umsókn með fimm greiddum atkvæðum.
9.
Útrás hreinsistövar á Hauganesi
Veitu- og hafnaráð samþykkir samhljóða með 5 atkvæðum að framlengja útrás hreinsistöðvar á Hauganesi út í sjó.