Veitu- og hafnaráð Dalvíkurbyggðar
14. fundur
24. júní 2014
kl.
16:00
-
19:00
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Pétur Sigurðsson
Formaður
Óskar Óskarsson
Varaformaður
Anna Guðný Karlsdóttir
Aðalmaður
Ásdís Svanborg Jónasdóttir
Aðalmaður
Ásgeir Páll Matthíasson
Varamaður
Bjarni Theódór Bjarnason
Sveitarstjóri
Þorsteinn K. Björnsson
Sviðstjóri
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Þorsteinn K. Björnsson
sviðsstjóri veitu- og hafnasviðs
Dagskrá
1.
Gagnagátt - Veitu- og hafnaráð
Til kynningar fyrir aðal- og varamenn ráðsmenn var erindisbréf þess og skipurit.Einnig kom til umræðu að festa fundardag og tíma. Varamenn véku af fundi.
Ráðið samþykkir að funda 2. miðvikudag í mánuði kl. 8:15.
2.
Icelandic Fisheries Exhibition
Hafnasjóður Dalvíkurbyggðar er þátttakandi í Sjávarútvegssýningu í Kópavogi í haust.
Hafnastjóra og sviðsstjóra falið að ræða við upplýsingarfulltrúa um undirbúning kynningarinnar á Hafnasjóði Dalvíkurbyggðar.
3.
Hafnasambandsþing 2014
Hafnasambandsþing 2014 verður haldið á Dalvík og Ólafsfirði dagana 4. og 5. september 2014. Upplýsingar um gististaði hefur verið sent út.
Ráðið samþykkir að formaður og hafnastjóri sæki þingið sem fulltrúar Hafnasjóðs Dalvíkurbyggðar.
4.
Fundargerðir 2014
Fyrir fundinum lá fundargerð 365. fundar stjórnar Hafnasambands Íslands
Lögð fram til kynningar.
5.
Langtímastefna fyrir hafnir landsins
Unnið hefur verið að langtímastefnu fyrir hafnir landsins. Afrakstur þeirrar vinnu er hér til kynningar,. Þar kemur fram í inngangi m.a."Hafnir verði viðurkenndur hornsteinn í grunngerð samfélagins. Þær styrkiefnahagslíf Íslands og verði uppspretta atvinnutækifæra og verðmæta. Stjórnvöldskynji betur mikilvægi hafna fyrir íslenskt samfélag og tryggi uppbyggingu þeirraog endurnýjun til jafns við það sem gerist hjá erlendum nágrannahöfnum.Regluverk ríkisins skapi nauðsynlegan sveigjanleika fyrir hafnir til þróunar ogeflingar atvinnulífs.Ísland verði viðurkennd þjónustumiðstöð á Norður-Atlantshafi. Hafnalandið Íslandstandist samanburð við stærstu hafnir í Evrópu. Á Faxaflóasvæðinu verði ein stórog öflug vöruskiptahöfn með öflugu samgönguneti milli hafnarsvæða.Verkaskipting verði skýr milli hafna og á Íslandi verði færri og stærri hafnarsjóðir.Stöðugleiki einkenni rekstrarumhverfi hafna."
Lagt fram til kynningar.
6.
Endurvigtunarleyfi - Fiskmarkaður Norðurlands
Fiskistofa hefur veitt Fiskmarkaði Norðurlands leyfi til endurviktunar á afla.
Lagt fram til kynningar.
7.
Ársógssandur, tilboð í endurbætur á hafnarkannti
Óskað var eftir tilboði frá Steypustöð Dalvíkur ehf í viðgerð á steyptum kanti á bryggjunni á Árskógssandi. Tilboðið var innan fjárheimilda í fjárhagsáætlun. Upphæð þess var kr. 2.001.000,- m/vsk. og var því tekið.Þessu verki er lokið
Lagt fram til kynningar.
8.
Dalvíkurhöfn, tilboð í grjóthleðslu og hellulögn.
Þetta verk var boðið út og fengu fjórir verktaka útboðsgögn. Gefinn var kostur á að bjóða í verkið í heild sinni eða í eingöngu annan hluta þess. Tvö tilboð bárust, annars vegar í grjóthleðslu og hins vegar í hellulögn og frágang.Dalverk, eignarhaldsfélag ehf. í grjóthleðslu kr. 852.000,-.EB ehf. í hellulögn og fl. kr. 3.294.000,-.Umrædd tilboð eru innan fjárheimilda.Samið hefur verið við tilboðsgjafa á grundvelli fyrirliggjandi tilboða.
Lagt fram til kynningar.
9.
Dalvíkurhöfn, hlið á landgang.
Óskað var eftir tilboðum í smíði og uppsetningu á hliði á landgang að nýju flotbryggunni. Eftirfarandi tilboð bárust:Vélvirki ehf 898.000,-BHS ehf 385.178,-, án uppsetningarÞór Ingvason 385.000,-.Lagt er til að lægsta tilboði verði tekið.
Veitu- og hafnaráð samþykkir að ganga til samninga við lægstbjóðanda.
10.
Stækkun dreifiveitusvæðis hitaveitu
Erindi hefur bortist frá Orkustofnun um upplýsingar hvað varðar það húsnæði sem ekki nýtur þjónustu Hitaveitu Dalvíkur. Óskað hefur verið eftir að saman verði tekið fjöldi og staðsetning og þá einnig hvers vegna ekki sé unnt að veita þjónustuna.
Fyrir fundinum lá bréf þar sem framagreindri fyrirspurn er svarað.