Veitu- og hafnaráð Dalvíkurbyggðar
133. fundur
6. mars 2024
kl.
08:15
-
11:40
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Sigmar Örn Harðarson
formaður
Benedikt Snær Magnússon
varaformaður
Silja Pálsdóttir
aðalmaður
Starfsmenn
Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir
sveitarstjóri
Halla Dögg Káradóttir
deildarstjóri
Fundargerð ritaði:
Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir
sveitarstjóri
Dagskrá
1.
Mánaðarlegar skýrslur 2024
Lagt fram til kynningar yfirlit reksturs hafna Dalvíkurbyggðar í janúar.
Sveitarstjóri fór yfir rekstur hafna Dalvíkurbyggðar í janúar.
Lagt fram til kynningar.
Lagt fram til kynningar.
2.
Mánaðarlegar skýrslur 2023
Lagt fram til kynningar yfirlit reksturs hafna Dalvíkurbyggðar í janúar.
Sveitarstjóri fór yfir rekstur hafna Dalvíkurbyggðar á árinu 2023. LJóst er að rekstur hafnarinnar á árinu 2023 er mun betri en útkomuspá ársins gerði ráð fyrir.
Lagt fram til kynningar.
Lagt fram til kynningar.
3.
Þrýstingur á köldu vatni Árskógssandur
Veitustjóri fór yfir stöðu mála varðandi kalt vatn á Árskógssandi.
Lagt fram til kynningar.
Lagt fram til kynningar.
4.
Ferli lokunar á heitu vatni vegna vanskila
Veitustjóri fór yfir ferli lokunar á heitu vatni vegna vanskila. Lagt fram til kynningar.
5.
Úttekt á rekstri hafna Dalvíkurbyggðar; KPMG
Á 1086. fundi byggðaráðs þann 2. nóvember sl. var eftirfarandi bókað: "Tekið fyrir erindi frá sveitarstjóra, dagsett þann 31. október sl., þar sem óskað er eftir viðauka við fjárhagsáætlun 2023 að upphæð kr. 3.300.000 án vsk. vegna úttektar á rekstri hafna Dalvíkurbyggðar í ljósi hallarekstur. Fyrir liggur samþykki frá sveitarstjórn á tillögu veitu- og hafnaráðs um að gerð verði úttekt á rekstri Hafnasjóðs. Með fundarboði fylgdi einnig verkefna tillaga frá KPMG varðandi útttektina.Niðurstaða:Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum ofangreinda beiðni um viðauka vegna úttektar á rekstri Hafnasjóðs, viðauki nr. 36 við fjárhagsáætlun 2023, að upphæð kr. 3.300.000 á lið 41210-4391 þannig að hann verði kr. 3.400.000 í stað kr. 100.000 og að honum verði mmætt með lækkun á handbæru fé. Vísað til umfjöllunar og afgreiðslu sveitarstjórnar. Byggðaráð gerir ekki athugasemdir við meðfylgjandi verkefnatillögu frá KPMG." Leiðrétting á númeri viðauka - verður nr. 38 í stað nr. 36.Á 362.fundi sveitarstjórnar þann 7.nóvember 2023 var eftirfarandi bókað:Enginn tók til máls. Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með með 7 atkvæðum ofangreinda viðaukabeiðni, viðauki nr. 38 (leiðrétting á númeri) við fjárhagsáætlun 2023, að upphæð kr. 3.300.000 á lið 41210-4391 og að honum verði mætt með lækkun á handbæru fé. Sveitarstjórn gerir ekki athugasemdir við meðfylgjandi verkefnatillögu frá KPMG.Undir þessum lið kl. 9:15 komu til fundar Magnús Kristjánsson ráðgjafi frá KPMG, jafnframt hafnaverðirnir Björn Björnsson og Arnþór Hjörleifsson.
Magnús Kristjánsson fór yfir drög að úttekt á rekstri hafna Dalvíkurbyggðar.
Magnús, Björn og Arnþór viku að fundi kl. 10:40
Ábendingar fundarmanna, ef einhverjar, berist til sveitarstjóra fram til hádegis föstudaginn 8.mars. Vísað til byggðaráðs til afgreiðslu.
Samþykkt samhljóða með 3 atkvæðum.
Magnús, Björn og Arnþór viku að fundi kl. 10:40
Ábendingar fundarmanna, ef einhverjar, berist til sveitarstjóra fram til hádegis föstudaginn 8.mars. Vísað til byggðaráðs til afgreiðslu.
Samþykkt samhljóða með 3 atkvæðum.
6.
Eftirlit - hreinsistöðvar
Veitu- og hafnaráð samþykkir samhljóða að ganga til samninga við verktaka vegna eftirlits við hreinsistöðvar. Veitustjóra falið að leggja drög að samningi fyrir næsta fund veitu- og hafnaráðs. Samþykkt samhljóða með 3 atkvæðum.
7.
Eftirlit - rafstöðvar, dælustöðvar og borholur - KV
Veitu- og hafnaráð samþykkir samhljóða að ganga til samninga við verktaka vegna eftirlits við raf- dælustöðvar og borholur vatnsveitu. Veitustjóra falið að leggja drög að samningi fyrir næsta fund veitu- og hafnaráðs. Samþykkt samhljóða með 3 atkvæðum.
8.
Eftirlit - rafstöðvar, dælustöðvar og borholur - HV
Veitu- og hafnaráð samþykkir samhljóða að ganga til samninga við verktaka vegna eftirlits við raf-, dælustöðvar og borholur við Hitaveitu Dalvíkur. Veitustjóra falið að leggja drög að samningi fyrir næsta fund veitu- og hafnaráðs. Samþykkt samhljóða með 3 atkvæðum.
9.
Umferðaröryggisáætlun Dalvíkurbyggðar
Endurskoðun umferðaröryggisáætlunar Dalvíkurbyggðar hófst árið 2019 en var aldrei lokið.
Veitu- og hafnaráð leggur áherslu á að hafin verði endurskoðun á umferðaröryggisáætlun Dalvíkurbyggðar 2018-2022, sem samþykkt var í desember 2017. Jafnframt leggur veitu- og hafnaráðs áherslu á að greindar verði hættur á höfnum Dalvíkurbyggðar og tekið verði tillit til þeirra við endurskoðun áætlunarinnar. Samþykkt samhljóða með 3 atkævðum.
10.
Fundargerðir Hafnasambands Íslands 2024
Fundargerð stjórnar Hafnasambands Íslands af 461.fundi þann 16.febrúar sl. til umræðu.
11.
Dreifibréf í hús, fráveita
Veitu- og hafnaráð felur veitustjóra að útbúa dreifibréf með leiðbeiningum fyrir heimili og fyrirtæki sem útlista hvað á ekki að fara í salerni á heimilum og fyrirtækjum.