Veitu- og hafnaráð Dalvíkurbyggðar
132. fundur
12. febrúar 2024
kl.
10:00
-
11:30
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Sigmar Örn Harðarson
formaður
Benedikt Snær Magnússon
varaformaður
Gunnlaugur Svansson
aðalmaður
Silja Pálsdóttir
aðalmaður
Starfsmenn
Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir
sveitarstjóri
Fundargerð ritaði:
Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir
sveitarstjóri
Dagskrá
1.
Innviðagreining fyrir Dalvíkurbyggð
Á 1094.fundi byggðaráðs þann 25.janúar 2024 var eftirfarandi bókað:Byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að vísa drögum að innviðagreiningu fyrir Dalvíkurbyggð til umræðu í fagráðum sveitarfélagsins.
Veitu- og hafnaráð fór yfir drögin og er sammála um þau þarfnist verulegra úrbóta og yfirlesturs.
Samþykkt samhljóða með fjórum atkvæðum.
Samþykkt samhljóða með fjórum atkvæðum.
2.
Mánaðarlegar skýrslur 2024
Sveitarstjóri kynnti eftirfarandi skýrslu:Bókhald janúar 2024 í samanburði við heimildir.
Lagt fram til kynningar.
3.
Reglur um stuðning við framkvæmdir skv. 8.gr. Samþykktar um fráveitu og rotþrær í Dalvíkurbyggð
Á 362.fundi sveitarstjórnar Dalvíkurbyggðar þann 7.nóvember 2023 var eftirfarandi bókað:Enginn tók til máls. Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum fyrirliggjandi tillögu að reglugerð fyrir Fráveitu Dalvíkurbyggðar og vísar henni til staðfestingar Umhverfis-, orku- og loftlagsráðuneytisins.Samþykkt um fráveitu og rotþrær í Dalvíkurbyggð nr. 1490/2023 tók gildi þann 22.desember 2023.
Veitu- og hafnaráð felur veitustjóra að vinna reglur um stuðning um framkvæmdir skv. 8.gr. Samþykktar um fráveitu og rotþrær. Samþykkt samhljóða með 4 atkvæðum.
5.
Hafnasambandsþing 2024
Hafnasambandsþing Hafnasambands Íslands verður haldið 24.-25. október 2024 á Akureyri. Formlegt boð um þingið verður sent innan tíðar en mikilvægt er að aðildarhafnir gangi frá gistingu sem fyrst.
Sjá dagskrárlið nr. 6 Boðun Hafnasambandsþings.
Lagt fram til kynningar.
Lagt fram til kynningar.
6.
Boðun Hafnasambandsþings
Stjórn Hafnasambands Íslands boðar hér með formlega til hafnasambandsþings 24.-25. október 2024 í Hofi á Akureyri.Dagskrá þingsins er ekki klár en gert er ráð fyrir að þingið hefjist 9:30 þann 24. október og ljúki upp úr hádegi þann 25. október.
Veitu- og hafnarráð samþykkir samhljóða með 4 atkvæðum að Benedikt Snær Magnússon og Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir, sveitarstjóri verði fulltrúar Dalvíkurbyggðar á Hafnasambandsþingi 2024.
7.
Fundargerðir Hafnasambands Íslands 2024
Fundargerð stjórnar Hafnasambands Íslands af 460.fundi þann 15.janúar sl. til umræðu.
Lagt fram til kynningar.