Fara í efni

Veitu- og hafnaráð Dalvíkurbyggðar

131. fundur
10. janúar 2024 kl. 08:15 - 10:06
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Snæþór Arnþórsson varamaður
Benedikt Snær Magnússon varaformaður
Gunnlaugur Svansson aðalmaður
Silja Pálsdóttir aðalmaður
Starfsmenn
Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir sveitarstjóri
Halla Dögg Káradóttir deildarstjóri
Fundargerð ritaði:
Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir sveitarstjóri
Dagskrá
1.
ISOR kynning á stöðu jarðhitarannsókna Dalvíkurbyggð
Málsnúmer 202304061
Auður Agla Óladóttir frá ÍSOR kom inn á fundinn á Teams kl. 8:20.
Í þriggja ára fjárhagsáætlun 2025-2027 er á árinu 2026 áætlað að bora vinnsluholu, staðsetning hefur ekki verið ákveðin. Veitu- og hafnarráð samþykkir samhljóða með 4 atkvæðum að fela veitustjóra að fá ÍSOR til þess að hefja þá vinnu að rannsaka hvar skynsamlegast er að bora fyrirhugaða vinnsluholu.
2.
Borholur Hitastiguls Skíðadal
Málsnúmer 202110070
Á 364.fundi sveitarstjórnar þann 19.desember 2023 var eftirfarandi bókað:Til máls tók:Freyr Antonsson, sem leggur til að veitustjóra verði falið að byrja vinnu við kortlagningu lögbýla sem ekki eru tengdir vatnsveitu eða hitaveitu. Hvort nýjar lausnir gætu verið í boði og hvort sveitarfélagið geti liðkað fyrir framgangi verkefna í þá átt.a) Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu veitu- og hafnaráðs og að ekki verði ráðist í frekari rannsóknir í Skíðadal og Svarfdaðardal á grunni skýrslu ÍSOR.b) Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum tillögu Freys Antonssonar að veitustjóra verði falið að byrja vinnu við kortlagningu lögbýla sem ekki eru tengdir vatnsveitu eða hitaveitu. Hvort nýjar lausnir gætu verið í boði og hvort sveitarfélagið geti liðkað fyrir framgangi verkefna í þá átt.
Veitu- og hafnarráð samþykkir samhljóða með 4 atkvæðum að fela veitustjóra að hefja vinnu við kortlagningu lögbýla sem ekki eru tengdir vatnsveitu, hitaveitu og fráveitu. Kanna hvaða lausnir eru í boði sem og með hvaða hætti sveitarfélagið getur komið að verkefninu.
3.
Starfs- og fjárhagsáætlun 2024 og þriggja ára áætlun 2025-2027
Málsnúmer 202304162
Sveitarstjóri fór yfir samþykkta framkvæmda og fjárfestingaáætlun fyrir árið 2024.
Veitu- og hafnarráð óskar eftir því að á fundum ráðsins verði lagður fram verkefnalisti yfir framkvæmdir og fjárfestinga og hver staða þeirra er. Samþykkt samhljóða með 4 atkvæðum.
4.
Lagning ljósleiðara á Norðausturlandi
Málsnúmer 202311136
Lagt fram til kynningar.
5.
Fundargerðir Hafnasambands Íslands 2023
Málsnúmer 202301132
Fundargerðir Hafnasambands Íslands af fundum nr. 458 og 459 til umræðu.Veitu- og hafnarráð tekur heilshugar undir erindi Gunnars Tryggvasonar, hafnarstjóra Faxaflóahafna, undir 4.tl. á 459.fundi stjórnar HÍ, þar sem lagt er til að Hafnasambandið komi að gerð fræðsluefnis um öryggismál í höfnum. Samþykkt samhljóða með 4 atkvæðum.
Lagt fram til kynningar.