Veitu- og hafnaráð Dalvíkurbyggðar
130. fundur
6. desember 2023
kl.
08:15
-
10:15
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Sigmar Örn Harðarson
formaður
Benedikt Snær Magnússon
varaformaður
Gunnlaugur Svansson
aðalmaður
Silja Pálsdóttir
aðalmaður
Starfsmenn
Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir
sveitarstjóri
Fundargerð ritaði:
Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir
sveitarstjóri
Dagskrá
1.
Erindi vegna niðurfellingu á afslætti Ránarbraut 5
Veitu- og hafnaráð samþykkir erindið samhljóða með 4 atkvæðum.
2.
Jöfnun húshitunarkostnaðar 2023
Fyrir fundinum liggur útreikningur á jöfnun húshitunarkostnaðar fyrir árið 2023. Í honum er tekið tillit til breytinga á gjaldskrám veitufyrirtækja og er gjaldið nú 260,40 kr/m3 húss. Heildarkostnaður Hitaveitu Dalvíkur er því um kr. 2.810.131 kr.
Veitu- og hafnaráð leggur til við sveitarstjórn að samþykkja fyrirliggjandi útreikning á jöfnun húshitunarkostnaðar Jafnframt leggur veitu- og hafnaráð til að reglur um jöfnun húshitunarkostnaðar verði endurskoðaðar á árinu 2024. Samþykkt samhljóða með 4 atkvæðum.
3.
Rekstur fiskeldisstöðvar á Hauganesi
Á 362.fundi sveitarstjórnar þann 7.nóvember 2023 var eftirfarandi bókað:Forseti sveitarstjórnar sem leggur fram eftirfarandi tillögu:"Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að Skipulagsráð kanni mögulega breytingu á deiliskipulagi þar sem lóð sé skilgreind undir borholu og lagnaleiðir skilgreindar til viðtakanda.Sveitarstjórn samþykkir samhljóða að beina því til veitu- og hafnaráðs að koma með tillögu um gjaldtöku sem byggi á gjaldskrá hitaveitu, vatnsveitu eða nýrri. "Fleiri tóku ekki til máls.Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda tillögu forseta sveitarstjórnar.
Veitu- og hafnaráð samþykkir samhljóða með 4 atkvæðum að fela sveitarstjóra og veitustjóra að koma með tillögu að gjaldtöku vegna nýtingar á jarðsjó.
4.
Borholur Hitastiguls Skíðadal
Á 124.fundi veitu- og hafnarráðs var eftirfarandi bókað: veitu- og hafnaráð leggur áherslu á að ljúka við þær tilraunaboranir sem eru á áætlun í Skíðadal. Samþykkt samhljóða með 5 atkvæðum. Fyrir fundinum liggur skýrsla ÍSOR um niðurstöðu hitamælinga í hitastigulsholum í Skíðadal og Svarfaðardal.
ÍSOR leggur til að ekki verði ráðist í frekari rannsóknarboranir í Skíðadal og Svarfaðardal þar sem niðurstöður tilraunaborana sýna dauft hitafrávik og erfitt er að segja til um árangur frekari borana án þess að leggja í umtalsverðan kostnað. Framkvæma þarf dýpri rannsóknarboranir og til þess að ná tengingu við hitaveitulögn þarf að leggja 4-5 km lögn.
Veitu- og hafnaráð samþykkir samhljóða með 4 atkvæðum að ekki verði ráðist í frekari rannsóknir í Skíðadal og Svarfaðardal á grunni skýrslu ÍSOR.
Veitu- og hafnaráð samþykkir samhljóða með 4 atkvæðum að ekki verði ráðist í frekari rannsóknir í Skíðadal og Svarfaðardal á grunni skýrslu ÍSOR.
5.
Hitastigulsboranir við Þorvaldsdal - Norðurorka
Sveitarstjóri upplýsti um efni fundar með Norðurorku vegna tilraunaborana í mynni Þorvaldsdals.
Lagt fram til kynningar.
Lagt fram til kynningar.
6.
Umsóknir um heimlögn í Lyngholt 4-10
Tekin fyrir umsókn Kötlu ehf., um heimlögn fyrir heitt og kalt vatn.
Veitu- og hafnaráð samþykkir samhljóða með 4 atkvæðum framlagða umsókn.
7.
Eftirlitsskýrsla Vinnueftirlitsins í umsögn - V202310-GUV-2631895 - Sandskeið
Lagt fram til kynningar.
8.
Auglýst eftir umsóknum um styrki til jarðhitaleitar
Á 125.fundi veitu- og hafnaráðs þann 30.júní sl. var eftirfarandi bókað: Orkusjóður auglýsir eftir umsóknum um styrki til jarðhitaleitar. Áherslur sjóðsins snúa að því að ráðast í átak við leit að heitu vatni á þeim svæðum þar sem nú er notuð raforka og/eða olía til húshitunar og vísað til loftslagsmarkmiða. Niðurstaða: Veitu- og hafnarráð samþykkir samhljóða með 5 atkvæðum að fela sveitarstjóra í samráði við ÍSOR að sækja um styrk til jarðhitaleitar.Á 1073.fundi byggðaráðs þann 6.júlí sl. var eftirfarandi bókað: Orkusjóður auglýsir eftir umsóknum um styrki til jarðhitaleitar. Áherslur sjóðsins snúa að því að ráðast í átak við leit að heitu vatni á þeim svæðum þar sem nú er notuð raforka og/eða olía til húshitunar og vísað til loftslagsmarkmiða. Niðurstaða: Byggðaráð samþykkir samhljóða með 2 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu veitu- og hafnaráðs um að sótt verði um styrk í samráði við ÍSOR til jarðhitaleitar.
Í tölvupósti dags. 7. nóvember sl. upplýsir Orkusjóður um niðurstöðu styrkveitinga Orkusjóðs, Dalvíkurbyggð hlaut ekki styrk.
Lagt fram til kynningar.
Lagt fram til kynningar.
9.
Eftirlit með móttöku úrgangs og farmleifa frá skipum
Lagt fram til kynningar.
10.
Fundargerðir Hafnasambands Íslands 2023
Lagt fram til kynningar.