Veitu- og hafnaráð Dalvíkurbyggðar
128. fundur
18. október 2023
kl.
08:15
-
10:20
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Sigmar Örn Harðarson
formaður
Benedikt Snær Magnússon
varaformaður
Gunnlaugur Svansson
aðalmaður
Gunnþór Eyfjörð Sveinbjörnsson
varamaður
Sigvaldi Gunnlaugsson
varamaður
Starfsmenn
Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir
sveitarstjóri
Fundargerð ritaði:
Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir
sveitarstjóri
Dagskrá
1.
Gjaldskrár 2024
Til umræðu gjaldskrár hitaveitu, vatnsveitu, fráveitu og hafna Dalvíkurbyggðar fyrir árið 2024.
Veitu- og hafnaráð leggur til að gjaldskrár fráveitu, hitaveitu, vatnsveitu og hafna Dalvíkurbyggðar fyrir árið 2024 hækki um 4,9%. Samþykkt samhljóða 5 atkvæðum.
2.
Starfs- og fjárhagsáætlun 2024 og þriggja ára áætlun 2025-2027
Fyrir fundinum liggur yfirlit yfir framkvæmdir fyrir veitur og hafnir Dalvíkurbyggðar unnið af Gísla Bjarnasyni.
Veitu- og hafnarráð samþykkir samhljóða með 5 atkvæðum fyrirliggjandi skjal með þeim breytingum sem gerðar voru á fundinum.
3.
Erindi vegna niðurfellingu á afslætti Ránarbraut 5
Á 125.fundi veitu- og hafnaráðs þann 30.júní sl. var eftirfarandi bókað: Veitu - og hafnarráð, samþykkir samhljóða með 4 atkvæðum að fela sveitarstjóra að leita álits á framkvæmd afsláttarkjara skv. 2.gr. gjaldskrár Hitaveitu Dalvíkur.
Sveitarstjóri hefur óskað eftir áliti frá Sambandi íslenskra sveitarfélaga og umhverfis-, orku og loftslagsráðuneytinu varðandi erindið en svör liggja ekki fyrir.
Lagt fram til kynningar.
Lagt fram til kynningar.
4.
Hitaveitur á Íslandi - Úttekt á stöðu hitaveitna og nýtingar jarðhitavatns til húshitunar
Úttekt unnin af ÍSOR fyrir umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið, gefin út í maí 2023. Úttektin felur í sér að leggja mat á stöðu rannsókna og gagna um auðlindina, hvernig þróun nýtingar hefur verið og hvaða tækifæri eru til sjálfbærrar nýtingar jarðhita til framtíðar. Í köflum 8.29 og 8.30 er umfjöllun um Hitaveitu Dalvíkur og Brimnes/Birnunesborgir.Á 125.fundi veitu- og hafnaráðs þann 30.júní sl. var eftirfarandi bókað: Það vekur athygli veitu- og hafnaráðs að á mynd 5 á bls. 25 að metin afkastageta Hitaveitu Dalvíkur er rúmir 200 l/sek, sveitarstjóra er falið að afla upplýsinga hvaða forsendur eru að baki þessari tölu. Samþykkt samhljóða með 5 atkvæðum.
Sveitarstjóri upplýsti að fulltrúar ÍSOR sem unnu umrædda skýrslu munu koma á nóvemberfund veitu- og hafnarráðs.
Lagt fram til kynningar.
Lagt fram til kynningar.
5.
202209060 - Hitaveitulögn frá Syðri-Haga til Hjalteyrar
Lagt fram til kynningar.
6.
Smávirkjanir í Dalvíkurbyggð (Brimnesárvirkjun)
Á 127. fundi veitu- og hafnaráðs þann 6. september sl. var eftirfarandi bókað:"Á 1077.fundi byggðaráðs var samþykkt samhljóða með 3 atkvæðum að fela sveitarstjóra að setja könnun í loftið á grundvelli minnisblaðs með þeim breytingum á spurningum sem gerðar voru á fundinum.Starfandi formaður veitu- og hafnaráðs óskaði eftir að fá kynningu á framkvæmd íbúakönnunnar.Lagt fram til kynningar."Á 1083.fundi byggðaráðs þann 12.október sl. var eftirfarandi bókað:Lagt fram til kynningar og byggðaráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að vísa niðurstöðunni til kynningar í veitu- og hafnaráði.
Lagt fram til kynningar
7.
Fundargerðir Hafnasambands Íslands 2023
Lagðar fram til kynningar fundargerðir frá 455. fundi og 456. fundi stjórnar Hafnasambands Íslands.
Lagt fram til kynningar
8.
Hafnafundur 2023 haldinn 20.október 2023
Stjórn Hafnasambands Íslands boðar til 11. hafnafundar, sem haldinn verður í ráðstefnusal Hafrannsóknarstofnunar í Hafnarfirði, föstudaginn 20. október nk.
Veitu- og hafnarráð samþykkir samhljóða með 5 atkvæðum að Benedikt Snær Magnússon verði fulltrúi hafna Dalvíkurbyggðar á hafnafundinum.