Fara í efni

Veitu- og hafnaráð Dalvíkurbyggðar

127. fundur
6. september 2023 kl. 08:15 - 10:50
í Múla á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Sigmar Örn Harðarson varamaður
Benedikt Snær Magnússon aðalmaður
Gunnlaugur Svansson aðalmaður
Silja Pálsdóttir aðalmaður
Sigurður Valdimar Bragason aðalmaður
Starfsmenn
Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir sveitarstjóri
Fundargerð ritaði:
Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir sveitarstjóri
Dagskrá
1.
Umsókn um heimlögn
Málsnúmer 202306117
Tekin fyrir umsókn Önnu Baldvinu Jóhannesdóttur um heimlögn fyrir heitt og kalt vatn og rotþró.
Veitu- og hafnarráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum framlagða umsókn.
2.
Rekstur fiskeldisstöðvar á Hauganesi
Málsnúmer 202303130
Á 124.fundi veitu- og hafnaráðs var veitt heimild til borunar á tilraunaholu og vatnslögn frá henni að eldisstöðinni á Hauganesi. Veitu- og hafnaráð leggur til að veitt verði heimild til borun tilraunaholu og vatnslögn frá henni að eldisstöðinni á Hauganesi. Halda skal raski á klöpp og gróðri í lágmarki og ganga snyrtilega frá borholunni við verklok þannig að ummerki um framkvæmdina verði í lágmarki. Samþykkt samhljóða með 5 atkvæðum.Afgreiðsla veitu- og hafnaráðs var staðfest á fundi sveitarstjórnar þann 6.júní sl.Fyrir fundinum liggur umsókn Ocean EcoFarm ehf um framkvæmdaleyfi til þess að bora vinnsluholu. Borstæði verður innan við 20 metra frá núverandi borholu. Jafnframt egna heimilda landeiganda til gjaldtöku af borholuvatni er óskað eftir afstöðu Dalvíkurbyggðar, um hvort sveitarfélagið hyggst nýta þann rétt sinn til gjaldtöku af jarðsjó.
Veitu- og hafnarráð samþykkir samhljóða með 3 atkvæðum að leggja til við sveitarstjórn að framkvæmdaleyfi verði veitt fyrir vinnsluholu. Veitu- og hafnaráð hefur hug á að heimsækja fyrirtækið við fyrsta tækifæri. Ákvörðun um gjaldtöku er frestað.
3.
Reglugerð Fráveitu Dalvíkurbyggðar, endurskoðun
Málsnúmer 202304143
Veitu- og hafnaráð leggur til við sveitarstjórn að samþykkja fyrirliggandi drög að reglugerð.
4.
Umsókn um niðursetningu á rotþró við Læk
Málsnúmer 202308034
Veitu- og hafnaráð samþykkir með þrem atkvæðum fyrirliggjandi umsókn.
5.
Smávirkjanir í Dalvíkurbyggð (Brimnesárvirkjun)
Málsnúmer 201407032
Á 1077.fundi byggðaráðs var samþykkt samhljóða með 3 atkvæðum að fela sveitarstjóra að setja könnun í loftið á grundvelli minnisblaðs með þeim breytingum á spurningum sem gerðar voru á fundinum.Starfandi formaður veitu- og hafnaráðs óskaði eftir að fá kynningu á framkvæmd íbúakönnunnar.
Lagt fram til kynningar
6.
Ósk um viðræður til að sinna meindýravörnum í Dalvíkurbyggð
Málsnúmer 202208084
Á 121. fundi veitu- og hafnaráðs þann 4. janúar sl. var eftirfarandi bókað: "Með erindi, dagsett 17. ágúst 2022, er tekið fyrir frá Ólafi Pálma Agnarssyni þar sem hann vill kanna áhuga á viðræðum um að sinna þeim verkefnum sem snúa að meindýravörnum í Dalvíkurbyggð.Niðurstaða:Veitu- og hafnaráð þakkar Ólafi Pálma Agnarssyni fyrir innsent erindi og felur sviðsstjóra að útbúa vinnuferla varðandi eyðingu vargfugls í sveitarfélaginu. Ráðið telur að ekki sé þörf á að breyta fyrirkomulagi á meindýraeyðingu hjá veitum Dalvíkurbyggðar. Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum."Á 354.fundi sveitarstjórnar þann 17.janúar 2023 var eftirfarandi bókað:Sveitarstjórn samþykkir samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda afgreiðslu veitu- og hafnaráðs um að ekki sé metin þörf á að breyta fyrirkomulagi á meindýraeyðingu hjá veitum Dalvíkurbyggðar.
Veitu- og hafnaráð ítrekar bókun sína frá því í janúar og leggur til að gengið verði frá samningi við Meindýravarni MVE um meindýravarnir hjá veitum og höfnum Dalvíkurbyggðar.
Afgreiðslu á fyrirliggjandi erindi er frestað á meðan unnið er að verklagsreglum um eyðingu vargfugls í sveitarfélaginu í samstarfi við Friðland Svarfdæla og umhverfisráðuneytið.
Samþykkt samhljóða með 5 atkvæðum.
7.
Dalvíkurhöfn verði tollhöfn
Málsnúmer 202104001
Málinu er frestað, samþykkt samhljóða með 5 atkvæðum.
8.
Gjaldskrár 2024
Málsnúmer 202307014
Lagt fram til kynningar.
9.
Starfs- og fjárhagsáætlun 2024 og þriggja ára áætlun 2025-2027
Málsnúmer 202304162
Farið var yfir leiðbeiningar við gerð fjárhagsáætlunar, stöðu veitu- og hafna.
Veitu- og hafnaráð þakkar Guðrúnu Pálínu Jóhannsdóttur fyrir komuna og hennar innlegg til fundarins.
Veitu- og hafnaráð samþykkir samhljóða með 5 atkvæðum að leggja til við sveitarstjórn að gerð verði úttekt á rekstri hafna Dalvíkurbyggðar í ljósi hallareksturs. Í 17.gr. Hafnalaga segir "miða skal við að gjaldtaka standi undir rekstri hafnarinnar" en það er ljóst miðað við rekstur síðastliðinna ára að höfnin er rekin með tapi. Mikilvægt er að halda áfram að leita leiða til þess að snúa rekstrinum við.