Veitu- og hafnaráð Dalvíkurbyggðar
125. fundur
30. júní 2023
kl.
08:15
-
11:25
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Sigmar Örn Harðarson
varamaður
Benedikt Snær Magnússon
aðalmaður
Gunnlaugur Svansson
aðalmaður
Silja Pálsdóttir
aðalmaður
Sigurður Valdimar Bragason
aðalmaður
Starfsmenn
Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir
sveitarstjóri
Gísli Bjarnason
sviðsstjóri
Fundargerð ritaði:
Eyrún Ingibjörg Sigþórsdóttir og Gísli Bjarnason
Dagskrá
1.
Hitaveitur á Íslandi - Úttekt á stöðu hitaveitna og nýtingar jarðhitavatns til húshitunar
Úttekt unnin af ÍSOR fyrir umhverfis-, orku- og loftslagsráðuneytið, gefin út í maí 2023. Úttektin felur í sér að leggja mat á stöðu rannsókna og gagna um auðlindina, hvernig þróun nýtingar hefur verið og hvaða tækifæri eru til sjálfbærrar nýtingar jarðhita til framtíðar. Í köflum 8.29 og 8.30 er umfjöllun um Hitaveitu Dalvíkur og Brimnes/Birnunesborgir.
Það vekur athygli veitu- og hafnaráðs að á mynd 5 á bls. 25 að metin afkastageta Hitaveitu Dalvíkur er rúmir 200 l/sek, sveitarstjóra er falið að afla upplýsinga hvaða forsendur eru að baki þessari tölu. Samþykkt samhljóða með 5 atkvæðum.
2.
Göngubrú yfir Svarfaðardalsá meðfram hitaveitustokki
Fyrirspurn frá Hjörleifi Hjartarsyni hvort möguleiki er á að byggja létta göngubrú samhliða hitaveitumannvirki yfir Svarfaðardalsá. Settar eru fram þrjár spurningar sem óskað er svara við.Til upplýsingar þá var á árinu 2022 sótt um styrk í Framkvæmdasjóð ferðamannastaða, vegna framkvæmda 2023, fyrir göngubrú yfir Svarfaðardalsá. Umsókn Dalvíkurbyggðar var hafnað.
Á árinu 2022 var sótt um í framkvæmdasjóð ferðamanna til þess að byggja göngubrú yfir Svarfaðardalsá, umsókn sveitarfélagsins var hafnað. Það er ekki kominn tími á endurnýjun hitaveitulagnar og núverandi mannvirki hefur ekki burðarþol til þess að hengja göngubrú á. Samþykkt samhljóða með 5 atkvæðum.
3.
Auglýst eftir umsóknum um styrki til fráveituframkvæmda
Samorka auglýsir að opnað hafi verið fyrir umsóknir sveitarfélaga um styrki til fráveituframkvæmda. Umsóknarfrestur er til 1.september 2023.
Veitu- og hafnaráð samþykki samhljóða með 5 atkvæðum að fela framkvæmdasviði að sækja um styrk til fráveituframkvæmda fyrir lok umsóknarfrests.
4.
Hauganes gatnagerð - E2302
Með fundarboði fylgdu gögn er varða málið, vonir stóðu til að ný gögn varðandi útfærslu og áætlaðan kostnað vegna fráveitu við nýja götu myndu berast fyrir fundinn.
Lagt fram til kynningar.
5.
Umsókn um heimlögn, endurbætur fyrir heitt og kalt vatn.
Veitu- og hafnarráð samþykkir samhljóða með 4 atkvæðum að fara í viðhald á inntaki fyrir heitt og kalt vatn við fasteignina Ránarbraut 1, Dalvík.
6.
Auglýst eftir umsóknum um styrki til jarðhitaleitar
Orkusjóður auglýsir eftir umsóknum um styrki til jarðhitaleitar. Áherslur sjóðsins snúa að því að ráðast í átak við leit að heitu vatni á þeim svæðum þar sem nú er notuð raforka og/eða olía til húshitunar og vísað til loftslagsmarkmiða.
Veitu- og hafnarráð samþykkir samhljóða með 5 atkvæðum að fela sveitarstjóra í samráði við ÍSOR að sækja um styrk til jarðhitaleitar.
7.
Smávirkjanir í Dalvíkurbyggð (Brimnesárvirkjun)
Veitu- og hafnarráð tók málið fyrir á 123.fundi sínum þann 5.apríl sl. og var eftirfarandi bókað:"Farið yfir skýrslu Mannvits og virkjun Brimnesár rædd. Veitu- og hafnaráð sér ekki að Dalvíkurbyggð eigi að vera að fara í þessháttar framkvæmdir. Ráðið beinir því til byggðaráðs að haldinn verði íbúafundur sem allra fyrst til þess að kynna íbúum innihald skýrslunnar. Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum."Á 1064.fundi byggðaráðs þann 13.apríl var eftirfarandi bókað: "Byggðaráð felur sviðsstjóra framkvæmdasviðs að undirbúa fundinn og hann fari fram sem fyrst í maí."Íbúafundur var haldinn 3.maí í Menningarhúsinu Bergi, Dalvík.
Veitu- og hafnaráð leggur til við byggðaráð að skoðað verði að bjóða út réttindi til virkjunar Brimnesár. Samþykkt samhljóða með 4 atkvæðum.
8.
Innköllun gagna um upptöku og notkun vatns fyrir árið 2022
Orkustofnun og Veðurstofa Íslands hafa um árabil haft samstarf um skráningu á nýtingu vatns, bæði yfirborðsvatns og grunnvatns og með þeim hætti haft mikilvægar upplýsingar um vatnsauðlindina og hafa þær nýst sem undirstaða í skýrslugerð um vatn og vatnsnotkun, m.a. til alþjóðlegra stofnana.Orkustofnun óskar hér með eftir skilum fyrir síðasta ár, þ.e. 2022, bæði um upptöku og notkun vatnsveitna. Sveitarstjóri í samráði við verkstjóra veitna hefur sent Orkustofnun umbeðin gögn.
Lagt fram til kynningar.
9.
Starfs- og fjárhagsáætlun 2024 og þriggja ára áætlun 2025-2027
Lagt fram til kynningar.
10.
Endurbygging Norðurgarðs, fjárveiting 2022-2025
Í tölvupósti dags. 25.apríl sl. tilkynnir Vegagerðin um tafir á endurbyggingu Norðurgarðs. Í stað þess að verkið verði unnið í ár og á næsta ári þá hliðast það til um eitt ár og mun verktaki hefja rekstur stálþils á árinu 2024 og þekja verður steypt á árinu 2025.Á 1072.fundi byggðaráðs þann 29.júní sl. var tekin fyrir heildarviðauki I við fjárhagsáætlun 2023; fjárhagsáætlunarlíkan, þar sem tekið er tillit til þessa.
Lagt fram til kynningar.
11.
Stálþil Norðurgarður endurnýjun.
Sjá bókun undir dagskrárlið nr. 10 við mál nr. 202110045
12.
Samgönguáætlun 2024-2038 - drög í samráðsgátt
Lögð fram til kynningar og umræðu drög að Samgönguáætlun 2024-2025 þar sem fram kemur áætlaðar framkvæmdir við hafnir Dalvíkurbyggðar á þessum árum.
Lagt fram til kynningar
13.
Styrkir til orkuskipta 2023
Í tölvupósti þann 29.mars 2023 hvatti Orkusjóður aðildarhafnir Hafnasambands Íslands til þess að sækja um styrki til orkuskipta í höfnum. Umsóknarfrestur var til 19.apríl 2023.
Lagt fram til kynningar.
14.
Öryggismál á hafnarsvæðinu á Dalvík
Með fundarboði fylgdu punktar af fundi sem haldinn var í Ráðhúsi Dalvíkur þann 9.júní sl. þar sem aðilar frá fyrirtækjum sem hafa starfsemi á hafnarsvæðinu voru boðaðir.Rædd voru öryggismál og farið yfir það sem má betur fara í öryggismálum og skráð niður þau atriði sem aðilar voru sammála um að þyrfti að huga að.
Veitu - og hafnarráð, vísar málinu til umhverfisráðs til umræðu og ákvörðunartöku.
15.
Umsóknir um starf hafnavarðar - hafsögumanns
Sveitarstjóri upplýsti að gengið hefði verið frá ráðningu Arnþórs Hjörleifssonar í stöðu hafnavarðar frá og með 1.september 2023.
Lagt fram til kynningar. Veitu - og hafnaráð býður Arnþór velkomin til starfa.
16.
Uppsetning á sendiherra á höfninni á Árskógssandi
Norðursigling sækir um að setja upp svokallaðan "sendiherra" á höfninni á Árskógssandi, helst hjá Hríseyjarferjunni.
Veitu - og hafnarráð samþykkir með 4 atkvæðum að leyfa Norðursiglingu að setja upp sendiherra við norðurgarð á höfninni á Árskógssandi í sínu nærumhverfi. Veitu- og hafnaráðs áréttar að þessi framkvæmd er byggingaleyfisskyld og vísar erindinu til byggingafulltrúa. Samþykkt samhljóða með 4 atkvæðum.
17.
Erindi vegna niðurfellingu á afslætti Ránarbraut 5
Veitu - og hafnarráð, samþykkir samhljóða með 4 atkvæðum að fela sveitarstjóra að leita álits á framkvæmd afsláttarkjara skv. 2.gr. gjaldskrár Hitaveitu Dalvíkur.
18.
Fundargerðir Hafnasambands Íslands 2023
Lagt fram til kynningar