Veitu- og hafnaráð Dalvíkurbyggðar
120. fundur
7. desember 2022
kl.
08:15
-
12:45
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Haukur Gunnarsson
formaður
Monika Margrét Stefánsdóttir
aðalmaður
Benedikt Snær Magnússon
varaformaður
Gunnlaugur Svansson
aðalmaður
Silja Pálsdóttir
aðalmaður
Starfsmenn
Bjarni Daníel Daníelsson
embættismaður
Fundargerð ritaði:
Bjarni Daníel Daníelsson
Sviðsstjóri Framkvæmdasviðs
Dagskrá
1.
Álagsprófun borholna á Birnunesborgum
Í júni 2022 hóf Íslenskar orkurannsóknir (ISOR) álagspróf á jarðhitasvæðinu við Birnunesborgir . Nú liggja niðurstöður fyrir og munu starfsmenn ISOR kynna þær hér á fundi Veitu- og hafnaráðs.
Veitu- og hafnaráð þakkar starfsmönnum ISOR fyrir greinagóða kynningu.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
2.
Stálþil Norðurgarður endurnýjun. 2223
Á fjárlögum vegagerðarinnar fyrir árið 2022 er gert ráð fyrir endurbyggingu stálþils við Norðurgarð Dalvíkurhafnar. Starfsmenn vegagerðarinnar koma til með að kynna verkefnið í fjarfundabúnaði fyrir Veitu- og hafnaráði.
Veitu- og hafnaráð þakkar starfsmönnum vegagerðarinnar fyrir greinagóða kynningu.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
Samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
3.
Smávirkjanir í Dalvíkurbyggð (Brimnesárvirkjun)
Til kynningar
Lagt fram til kynningar
4.
Beiðni um afstöðu til afhendingarmagns á heitu vatni
Fyrir hönd Laxóss ehf óskar Guðmundur Valur Stefánsson eftir því að tekin verði fyrir beiðni sem barst í tölvupósti dags 5. des 2022 um afstöðu Veitu- og Hafnarráðs Dalvíkurbyggðar um mögulegt afhendingarmagn heits vatns til uppbyggingar seiða- og matfiskaeldis á landi á og í nágrenni Árskógssands.Samskonar beiðni var tekin fyrir á 77. fundi Veitu- og hafnaráðs og síðan á 305. fundi Sveitarstjórnar, undir málsnr. 201809022, þar sem Veitu- og hafnaráð lagði til við sveitarstjórn að hún feli Vatnsveitu Dalvíkurbyggðar að hefja viðræður við Laxós um vatnssölu til fyrirtækisins vegna hugmynda fyrirtækisins um starfrækslu á seiðaeldisstöð á Árskógssandi. Veitu- og hafnaráð samþykkti samhljóða framlagða tillögu. Sveitarstjórn samþykkti síðan samhljóða með 7 atkvæðum ofangreinda tillögu veitu- og hafnaráðs.
Í ljósi niðurstöðu á álagsprófunum ISOR á jarðhitasvæði Birnunesborga telur veitu- og hafnaráð að frekari langtíma rannsókna þurfi við til að ákvarða um getu jarðhitakerfisins til að afhenda umbeðið magn vatns umfram áfanga 1 og 2.
Sviðsstjóra framkvæmdasviðs er falið að ræða niðurstöður rannsókna ISOR við Laxós.
Veitu- og hafnaráð samþykkir með fjórum atkvæðum. Silja Pálsdóttir situr hjá.
Sviðsstjóra framkvæmdasviðs er falið að ræða niðurstöður rannsókna ISOR við Laxós.
Veitu- og hafnaráð samþykkir með fjórum atkvæðum. Silja Pálsdóttir situr hjá.
5.
Samningur um tjaldsvæði og baðströnd í Sandvík, Hauganesi
Fyrir hönd Ektabaða ehf sendir Elvar Reykjalín umsókn sem barst í tölvupósti dags 5. des 2022 um heitt og kalt vatn að tjaldsvæði á Hauganesi vegna fyrirhugaðrar aukningu umsvifa og stækkun hjá sjóböðunum og tjaldsvæðis.
Veitu- og hafnaráð samþykkir afhendingu á umbeðnu magni á heitu og köldu vatni.
Veitu- og hafnaráð getur ekki staðfest að Ektaböð ehf muni greiða fyrir notkun á heitu vatni samkvæmt 2. gr. b liðar heldur verði farið eftir a. lið 2. gr. gjaldskrár hitaveitu Dalvíkur þar sem starfsemin skilgreinist ekki sem sundlaug.
samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
Veitu- og hafnaráð getur ekki staðfest að Ektaböð ehf muni greiða fyrir notkun á heitu vatni samkvæmt 2. gr. b liðar heldur verði farið eftir a. lið 2. gr. gjaldskrár hitaveitu Dalvíkur þar sem starfsemin skilgreinist ekki sem sundlaug.
samþykkt samhljóða með fimm atkvæðum.
6.
Fundargerðir 2022
Lögð fram fundargerð frá 446. Fundi stjórnar hafnasambands Íslands.
Lagt fram til kynningar
7.
Óhirt og munaðarlaus veiðarfæri
Tekið fyrir erindi frá Hafnarsambandi Íslands, þar sem óskað er eftir því að fulltrúar hafna sem hafa munaðarlaus veiðarfæri á sínu umráðasvæði hafi samband við Samtök fyrirtækja í sjávarútvegi til að ráða úr þeim vanda.
Lagt fram til kynningar
8.
Vatnssýni 2022
Lagt fram til kynningar niðurstöður neysluvatnssýna sem HNE tók í ágúst og október, og einnig niðurstaða heilsýnatöku á neysluvatni frá Bakkalindum.
Lagt fram til kynningar
9.
Sérstak strandveiðigjald hafna 2022
Tekið fyrir bréf frá fiskistofu það sem Dalvíkurbyggð er tilkynnt hver hlutur hafnanna er, en sérstakt gjald er innheimt af strandveiðibátum sem greiða á hverri höfn í hlutfalli viðkomandi hafnar í heildarafla sem fenginn var við strandveiðar.
Lagt fram til kynningar.
10.
Skipulagsverkefni - forgangsmál
Lagt fram til kynningar forgangslista Skipulagsráðs um deiliskipulag Dalvíkurbyggðar.
Dagskrárliður 10. frestað til næsta fundar.
Veitu- og hafnaráð samþykkir samhljóða með fimm atkvæðum.
Veitu- og hafnaráð samþykkir samhljóða með fimm atkvæðum.
11.
Erindisbréf veitu- og hafnaráðs
Tekið fyrir breytingar á erindisbréfi Veitu- og hafnaráðs.
Veitu- og hafnaráð samþykkir samhljóða með fimm atkvæðum framlagðar breytingar á erindisbréfi veitu- og hafnaráðs.