Fara í efni

Veitu- og hafnaráð Dalvíkurbyggðar

12. fundur
14. apríl 2014 kl. 14:00 - 16:00
í Upsa á 3. hæð í Ráðhúsi Dalvíkur
Nefndarmenn
Þorsteinn Már Aðalsteinsson Formaður
Björgvin Hjörleifsson Varaformaður
Óskar Óskarsson Aðalmaður
Pétur Sigurðsson Aðalmaður
Svanfríður Inga Jónasdóttir Sveitarstjóri
Þorsteinn K. Björnsson Sviðstjóri
Gunnþór Eyfjörð Sveinbjörnsson Starfsmaður
Starfsmenn
Fundargerð ritaði:
Þorsteinn K. Björnsson sviðsstjóri veitu- og hafnasviðs
Dagskrá
1.
Fundargerðir 2014
Málsnúmer 201401135
Fundarmenn kynntu sér fundargerð 364. fundar stjórnar Hafnasambands Íslands, sem haldinn var 28. mars 2014.
Lögð fram til kynningar.
2.
Flotbryggja, tilboð apríl 2014
Málsnúmer 201404068
Fyrir fundinum lágu tilboð frá Króla ehf. í flotbryggju. Annars vegar var 20m langa bryggju 2,4m á breidd en hins vegar 20m og 3,0m breiða.
Ráðið samþykkir að taka tilboði Króla ehf. 20m langa og 3,0 breiða bryggju. Samkvæmt tilboðinu 5.500.000,-.
3.
Framkvæmdir Hafnasjóðs Dalvíkurbyggðar 2014
Málsnúmer 201404069
Rætt var um framkvæmdir sumarsins.Björgvin vék af fundi við afgreiðslu og umræður á þessum lið.
Sviðsstjóra falið að kanna kostnað við gerð göngustígs frá "krika" að ferjubryggju og kynna á næsta fundi ráðsins.
5.
Aðstaða í Dalvíkurhöfn
Málsnúmer 201304096
Erindi hefur borist frá Frey Antonssyni f.h. Bátaferða ehf. vegna óska um bætta aðstöðu fyrirtækisins í Dalvíkurhöfn.Gunnþór vék af fundi.
Erindinu er vísað til gerðar deiliskipulags Dalvíkurhafnar sem er í vinnslu.
6.
Vatnssýni 2014
Málsnúmer 201403041
Á fundinum voru kynntar niðurstöður sýna sem teknar voru af neysluvatni frá Vatnsveitu Dalvíkurbyggðar. Um var að ræða annars vegar efnagreiningu samkvæmt heildarúttekt reglugerðar nr. 536/2001 og stóðst það gæðakröfur samkvæmt reglugerðinni og hins vegar þrjú vatnssýni sen tekin voru í dreifbýli, á Dalvík og á Árskógssandi og reyndust þau öll vera í lagi.
Lögð fram til kynningar.
7.
Efnasýnataka í mars, frumniðurstöður
Málsnúmer 201404066
Árlega tekur Ísor sýni hjá Hitaveitu Dalvíkur sem er hluti af vinnslueftirliti veitunnar.
Lagt fram til kynningar.
8.
Ósk um skoðun á nýjum rennslismæli hitaveitu.
Málsnúmer 201403223
Fyrir liggur bréf frá Sveini Ríkharðssyni vegna orkumæla. Umrætt mál er í skoðun hjá Neytendastofu.
Sviðsstjóra er falið að svara erindinu þegar álit Neytendastofu liggur fyrir.